blaðið - 24.08.2006, Side 37
blaðiö FIMMTUDAGUR 24. ÁGÚST 2006
37
KoU«
Hvað er ástin á
móti buffi með
lauki.
George Bernard Shaw
Afmæhsborn dagsms
JORGE LUIS BORGES RITHÖFUNDUR, 1899
AS BYATT RITHÖFUNDUR, 1936
kolbrun@bladid.net
Opnun Reyk-
holtskirkju
hinnar eldri
í Reykholti í Borgarfirði eru
tvær kirkjur. Bak við þá nýju þar
sem guðsþjónustur eru núna
haldnar leynist önnur eldri og
minni kirkja sem byggð var
árið 1886. Sunnudaginn 27.
ágúst nk. opnar Þjóðminjasafn
íslands þessa fallegu gömlu
timburkirkju fyrir almenningi og
gefst tækifæri til að skoða hana
að innan sem utan. Reykholts-
kirkja hin eldri þarfnaðist við-
gerða þegar hún komst í vörslu
Þjóðminjasafnsins árið 2001.
Síðan þá hafa á vegum safns-
ins farið fram umfangsmiklar
endurbætur á henni í samstarfi
við Húsafriðunarnefnd ríkisins.
Kirkjan hefur auk þess verið
búin ýmsum viðeigandi kirkju-
gripum.
Einnig eru til sýnis fornminjar
sem fundust undir kirkjugólfi
og voru rannsakaðar á vegum
Fornleifaverndar ríkisins.
(tilefni opnunarinnar stendur
Snorrastofa fyrir sérstakri
dagskrá í Reykholti sem hefst
kl. 14:00 með messu í nýju kirkj-
unni. Kl. 15:00 verða veitingar í
safnaðarsal kirkjunnar. Kl. 15:30
flytur Guðrún Sveinbjarnardóttir,
stjórnandi fornleifarannsókn-
anna í Reykholti, fyrirlestur um
eldri kirkjur og segir frá minja-
svæðinu sunnan megin í kirkju-
garðinum. Áður stóðu kirkjurnar
nokkru sunnar en gamla kirkjan
nú og hefur Þjóðminjasafnið á
undanförnum árum staðið fyrir
fornleifarannsókn á þeim og
kirkjugarðinum. Kl. 16:30 opnar
svo Margrét Hallgrímsdóttir
þjóðminjavörður Reykholts-
kirkju hina eldri formlega og við-
staddur verður einnig Magnús
Skúlason, forstöðumaður Húsa-
friðunarnefndar.
Metsölulistinn - íslenskar bækur
1. Ðönsk-ís! / fsl-dönsk oröabók Oröabókaútgáfan Döntk itlensk
2. Ensk-ísl / (sl-ensk orðabók Orðabókaútgáfan
3. Islensk-dönsk/ Dönsk-íslensk vasaorðab. Edda útgáfa
4. Lostin lceland Sigurgeir Sigurjónsson
5. Draumalandiö: Sjálfshjálparbók handa hræddri þjóð AndriSnsrMagnason
6. Flugdrekahlauparinn - kilja Khaled Hosseini
7. Óvinafagnaður - kilja Ð'nar Kárason
8. Mýrin - kilja Arnaldur Indriöason
9. Dönsk-íslensk skólaorðabók Edda útgáfa
10. Réttritunarorðabók Námsgagnastofnun
Listinn er gerður út frá sölu í bókabúöum Pennans Eymunds-
sonar og Bókabúð Máls og menningar vikuna 15.08. - 22.08
-r-
The War of the World Bókin er hafsjór af fróðleik um sögu tuttugustu
aidarinnar.
að er farið að teljast
til tíðinda þegar gefin
er út bók eftir skoska
sagnfræðinginn Niall
Ferguson. Þrátt fyr-
ir að vera rétt rúmlega fertugur
hefur Ferguson sent frá sér fjölda
bóka síðustu tíu ár sem hafa vak-
ið eftirtekt meðal leikmanna og
fræðimanna. Þó að Ferguson leggi
megináherslu á hagsögu kemur
hann víða við i ritum sínum sem
eru bæði fjölbreytt í efnistökum
og fróðleg. Hann hræðist ekki
að synda á móti straumnum og í
mörgum bókum sínum rökstyður
hann skoðanir sem eru ekki líkleg-
ar til þess að falla í kramið hjá post-
ulum hinnar pólitísku rétttrún-
aðarkirkju samtímans. Framlag
hans felst ekki síst í því að vekja
upp frjóar umræður um gömul
sannindi enda hefur hann verið
óhræddur við að setja fram og rök-
styðja umdeildar skoðanir.
Niall Ferguson Framlag hans felst
ekki síst íþvíað vekja upp frjóar um-
ræöur um gömui sannindi.
Umdeildur fræðimaður
1 einni af sínum þekktustu bók-
um, The Pity of War sem kom út
árið 1998, ræðst hann gegn því
sem hann kallar „tíu goðsögur
um fyrri heimsstyrjöldina.” Bókin
olli töluverðu fjaðrafoki á sínum
tíma enda færir Ferguson rök fyr-
ir því að líklega hefði það verið
heiminum fyrir bestu ef breska
heimsveldið hefði látið það stríð
afskiptalaust. Þrátt fyrir að fleiri
þekktir fræðimenn hafi sett fram
svipaða skoðun gegnum tíðina
hefur Ferguson orðið að skotspóni
vegna hennar og segir það ef til vill
meira en mörg orð um stöðu hans
í fræðaheiminum. Fleiri hugmynd-
ir Fergusons hafa farið fyrir brjóst-
ið á fólki. I bókinni Empire, sem
kom út árið 2003, ræðst Ferguson
gegn þeirri neikvæðu ímynd sem
breska heimsveldið hefur fengið á
sig á síðari tímum og bendir á að
í raun hafi tilvist þess gert meira
gagn en ógagn. Bókin Colossus,
sem kom út ári síðar, enduróm-
ar þessar hugmyndir en að mati
Fergusons er veldi Bandaríkjanna
í dag sambærilegt því breska á 19.
öldinni en vandamálið felst í því
að Bandaríkjamenn eru ekki reiðu-
búnir til þess að nota það veldi til
góðra verka heimsbyggðinni í hag.
Onnur helstu verk Fergusons eru
The Cash Nexus og The House of
Rothschild í þeim báðum felst mik-
ilvægt framlag til skilnings á þró-
un hins alþjóðlega hagkerfis.
Hafsjór af fróðleik
í nýjustu bók sinni, The War
of the World: Twentieth-Century
Conflict and Descent of the West,
ræðst Ferguson ekki á garðinn þar
sem hann er lægstur. Bókinni er
ætlað að skýra hvers vegna tuttug-
usta öldin var jafn blóðug og raun
ber vitni. Ferguson hafnar hefð-
bundnum skýringum sem benda á
einstaka fyrirbæri eins og uppgang
öfgastefnu og óstöðugt efnahags-
kerfi heimsins. I stað þess fléttar
hann ólíkum fyrirbrigðum saman
og setur fram einfalda kenningu:
strið og átök brjótast gjarnan út í
meiriháttar hagsveiflum - hvort
sem um er að ræða þenslu eða sam-
drátt - og þegar slíkt ástand skap-
ast á sama tíma og veldi stórvelda
fer hnignandi er það líklegttil þess
að leiða til stórstyrjalda.
Bókin er hafsjór af fróðleik um
sögu tuttugustu aldarinnar. Um-
fjöllun Fergusons ber vott um
helstu áhugamál hans, eins og
sögu gyðinga í Evrópu og Rúss-
landi og samspil hagkerfis og
framþróunar sögunnar. Þrátt fyr-
ir að margt í bókinni sé endurtek-
ið efni úr fyrri bókum er hún vel
þess virði að hún sé lesin og bein-
línis ómissandi fyrir þá sem vilja
fylgjast með erlendri umræðu um
vandamál og ógnir samtímans.
Bókin fæst í bókabúðum Pennans
Eymundssonar og Bókabúð Máls
og menningar.
menningarmolinn
Vesúvíus gýs
Á þessum degi árið 79 gaus eldfjall-
ið Vesúvíus með þeim afleiðingum
að ítölsku borgirnar Pompei og Herc-
ulaneum grófust undir öskulagi og
aur. Þær voru aldrei endurreistar.
Árið 1748 var byrjað að grafa Pompei
upp. Þær minjar sem þar komu í ljós
eru ómetanleg heimild um daglegt
líf manna á þessum tíma.
Um 20.000 manns bjuggu í
Pompei, og í Herculaneum, sem
var vinsæll ferðamannastaður ríka
fólksins, voru um 5000 manns. Á há-
degi 24. ágúst hóf Vesúvíus að gjósa.
Flestir íbúar borganna flýðu en um
2000 manns urðu eftir í Pompei í
von um að eldgosinu myndi senn
Ijúka. Einhverjir urðu einnig eftir
í Herculaneum. Þessir ógæfusömu
íbúar brunnu til bana eða köfnuðu
í gosinu.
í dag er Pompei vinsæll ferða-
mannastaður og ógleymanlegur öll-
um sem þangað koma.