blaðið - 01.09.2006, Síða 8
8 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
FRETTIR
blaöiö
Iðnaðarnefnd Alþingis:
Engar sættir
um stífluna
■ Engin svör segja stjórnarandstæðingar
■ Pólitískt upphlaup segja stjórnarliðar
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Stjórnarliða og stjórnarandstæðinga
greinir enn á um endurskoðað áhættu-
mat vegna Kárahnjúkavirkjunar og
hvernig tekið var á greinargerð Gríms
Björnssonar jarðeðlisfræðings. Iðnað-
arnefnd Alþingis fundaði um málið í
fyrradag en það virtist ekki duga til
að þoka mönnum saman. Fundurinn
stóð í um sex tíma og lét meirihluti
nefndarinnar bóka í lok fundarins
að hann teldi ekki að neinum upplýs-
ingum hefði verið leynt í málinu og
að hann treysti þeim sérfræðingum
sem um málið hafa fjallað.Valgerður
Sverrisdóttir, fyrrverandi iðnaðarráð-
herra, sótti ekki fundinn líkt og full-
trúar stjórnarandstöðunnar höfðu
óskað eftir. Birkir Jón Jónsson, for-
maður nefndarinnar, sá ekki ástæðu
til þess að boða Valgerði á fundinn
þar sem ekkert nýtt hefði komið
fram og ráðherra hefði verið til svara
í þinginu á sínum tíma.
Iðnaðarnefnd fundar
Þrátt fyrir margra kluk-
kustunda fundarhöld
tókst þingmönnum ekki
aö ná saman um máliö.
Steingrímur J. Sigfússon:
Ólíðandi gjörningur
.Fundurinnvar gagnlegur
þó að hann hafi ekki
upplýst mikið um máls-
meðferðina, sérstaklega
ekki í iðnaðarráðuneyt-
inu varðandi ábendingar
Gríms Björnssonar. Allt
er í ótrúlegri þoku um
það hvernig málið var
meðhöndlað ínnan
iðnaðarráðuneytisins, en upplýsingar eru
afskaplega fátæklegar um hverjir vissu
hvað á hvaða tíma. Hvað ráðherra vissi
og hvenær skiptir reyndar ekki máli hvað
varðar hina stjórnskipulegu og lagalegu
ábyrgð, og reyndar ekki hina pólitísku
heldur."
Sigurjón Þórðarson:
Ráðherra til skammar
,Þáttur iðnaðarráðuneyt-
isins og fyrrverandi
iðnaðarráðherra ertil
skammar. Ráðherra á
eftir að standa fyrir máli
sínu og skýra hvers
vegna þessum upplýs-
ingumvar haldið leyndum.
Ef ráðherra gat mætt í
Kastljós Sjónvarpsins,
hvers vegna gat hann þá ekki mætt á fund
iðnaðarnefndar Alþlngis um málið? Komið
hefur í Ijós að flestar þessar ábendingar eiga
við rök að styðjast. Rök stjórnarliða um það
að athugasemdir frá leikmönnum sama efnis
hafi komið fram réttlæti það að halda eftir
skýrslu sem einn helsti jarðvísindamaður
þjóðarinnar hefur gert eru varla boðleg."
Katrin Júlíusdóttir:
Sýning sett á sviö
,Mér þykir mjög miður
hvernig fyrrverandi iðnað- df
arráðherra í Kastljósinu f/
og fulltrúar stjórnarmeiri- 1
hlutans í viðtölum hafa
kastað rýrð á mikilvægi V —2C:
greinargerðar Gríms
Björnssonar. Á fundinn , -A '■
komu fulltrúar frá Lands- ’ Kf
virkjun og Orkustofnun og
skýrðu hvernig athugasemdir Gríms Björns-
sonar voru meðhöndlaðar þar. Eftir stendur
að ráðuneytið gaf engin svör sem er alvar-
legasti þáttur málsins þar sem þar liggur
hin pólitíska ábyrgð. Engin svör fengust hjá
fulltrúum ráðuneytisins, sem voru ekki starf-
andi i ráðuneytinu á umræddum tíma."
Sigurður Kári Kristjánsson:
Pólitískt upphlaup
,Ég myndi kalla þetta
pólitískt upphlaup hjá
stjórnarandstöðunni.
Verið er að nota tækifærið
þegar á að fara að hleypa
vatni á stífluna. Eftir
fund nefndarinnar og
þær skýringarnar sem á
honum fengust, held ég
að hægt sé að fullyrða að
sjaldan hafi jafn mikið verið sagt um jafn lítið
og þessa skýrslu."
Að sögn Sigurðar Kára var fundurinn bæði
gagnlegur og upplýsandi. „Fundurinn leiddi
það í Ijós að þær athugasemdir sem Grímur
setur fram sem varða öryggi stíflunnar höfðu
allar komið fram áður við meðferð málsins
í þinginu."
Birkir Jón Jónsson:
Skýr svör fengust
.Meirihlutiinn telur að
engum mikilvægum upp-
lýsingum hafi verið haldið
frá Alþingi sem hefði
getað breytt ákvarðana-
ferli þingsins. Áfundinum
fengust skýr svör um
þá atburðarás sem fór í
gang eftir að Grímursendi
frá sér athugasemdirnar.
Ríkt tillit var tekið til þessara athugasemda
á fundi Landsvirkjunar, Orkustofnunar og
Gríms, enda var það svo að sambærilegar
athugasemdir höfðu komið fram við mat á
umhverfisáhrifum og voru til umræðu innan
þingsins. Hins vegar hefði veriö heppilegra
ef Orkustofnun hefði sent ráðuneytinu at-
hugasemdir Gríms með formlegum hætti."
HUGURINN BER ÞIG
AÐEINS HÁLFA LEIÐ
»2^ r .- >
TANGVEIÐI,
N OG STEFNUMO
*lnnifalið: Flug, flugvallarskattar, gisting á Best Western*** I tvlbýli I 8 nætur (1.- 9. desember 2006 og 23.- 31.janúar 2007).
Handhafar Vildarkorta VISA og lcelandair geta nýtt 10.000 Vildarpunkta sem 6.000 króna greiðslu upp I flugfargjald með áætlunarflugi lcelandair. Þetta flug gefur 5.000 - 12.400 Vildarpunkta.
FLUG OG GISTING í 8 NÆTUR FRÁ 68.600 KR.
Hákon Örvarsson, matreiðslumeistari, segir frá Orlando í Florida í nýjum
haust- og vetrarbæklingi lcelandair, Mín borg. Við bjóðum úrval pakkaferða,
helgarferða til 19 áfangastaða austan hafs og vestan, golfferða og sérferða.
Kynnið ykkur málið og takið síðan ákvörðun. Ævintýrin liggja í loftinu.
Bókaðu á www.icelandair.is
Vildarpunktar
v/sa JL Ferðaávisun gildir
WWW.ICELANDAIR.IS
-4