blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 10
10 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
FRETTIR
blaöiö
UTAN ÚR HEIMI
INDLAND K:
Kommúnistar velja Linux
Yfirvöld í Kerala-héraði á Indlandi hafa
ákveðið að skipta um stýrikerfi í tölvum í
grunnskólum. Linux kemur í stað Windows.
Kommúnistar stjórna héraðinu og hafa stutt
þá sem framleiða ókeypis hugbúnað.
Nýfundið verk eftir Bach
Áöur óþekkt verk eftir þýska meistarann
Johann Sebastian Bach uppgötvaðist í
pakka sem innihélt gömul afmæliskort
frá 18. öld. Pakkinn hafði verið til
geymslu í bókasafni en var fjarlægður
þaðan rétt áður en það brann til kaldra
kola á síðasta ári. Verkið var samið í okt-
óber árið 1713 og eru sérfræðingar sann-
færðir að nótnaheftið innihaldi tónsmíð
Bachs. Áður óþekkt verk eftir tónskáldið
uppgötvaðist síðast fyrir þrjátíu árum.
SÚDAN
Friðargæsluliðar til Darfúr
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna samþykkti
að senda friðargæslulið til Darfúr í Súdan.
Engir verða sendir nema með samþykki súd-
anskra stjórnvalda. Tólf þjóðir samþykktu
en Rússar, Kínhverjar og Katarar sátu hjá.
Kanadískur flugstjóri:
Fastur á klósettinu
Flugstjóri kanadískrar farþega-
þotu læstist inn á salerni vélarinnar
stuttu eftir flugtak i vikunni. Áhöfn
vélarinnar neyddist á endanum til
þess að losa salernisdyrnar af hjör-
unum til þess að leysa hinn ólán-
sama flugstjóra úr prísundinni. Að
sögn talsmanns flugfélagsins Air
Canada fór flugstjórinn á salernið
um hálftíma eftir flugtak. Kanad-
íska dagblaðið Ottawa Citizen hefur
eftir farþegum um borð að flugstjór-
inn hafi brugðist við innilokuninni
með því að öskra og berja í gríð og
erg á hurðina þangað til hann slapp
út. Hinsvegar segir talsmaður félags-
ins að flugmaðurinn hafi haldið
ró sinni, áhöfnin brugðist rétt við
og hvorki flugvél né farþegar hafi
verið í hættu.
Stóraukin dreifing Blaðsins:
Karl Garðarsson
„Ég tel Blaðiö eins og það er í
dag vera síst verra en hin dag-
blöðin og að mörgu leyti betra"
Verðum leiðandi fríblað
■ 100 þúsund eintök ■ Morgundreifing ■ Fríblaðamarkaðurinn vex
Eftir Atla fsleifsson
atlii@bladid.net
„Við ætlum okkur stóra hluti og að
ná að verða leiðandi á fríblaðamark-
aði á íslandi,“ segir Karl Garðarsson,
framkvæmdastjóri Árs og dags,
útgáfufélags Blaðsins. „Við setjum
stefnuna á að fara yfir Fréttablaðið
1 lestri á ákveðnum tíma og ég er
mjög bjartsýnn á að það takist. Að
fara í morgundreifingu er stórt
skref í þá átt.“
Blaðið kom út í stórauknu upplagi
í morgun, eða tæplega íoo þúsund
eintökum. „Blaðið er nú komið í
morgundreifingu, sem þýðir að fólk
á höfuðborgarsvæðinu og víða úti
á landi mun fá Blaðið heim til sín
fyrir klukkan sjö á morgnana. Auk
þess munum við dreifa um tiu þús-
und eintökum í nánast allar sjoppur,
matvöruverslanir og bensínstöðvar
hringinn í kringum landið," segir
Karl.
Fyrsta tölublað Blaðsins kom út
þann 6. maí 2005. „Við vorum upp-
haflega með höfuðstöðvar í Kópavogi,
en Blaðið hefur alla tíð verið prentað
í prentsmiðju Morgunblaðsins. Fram
til þessa hefur íslandspóstur séð um
dreifinguna. Blaðið hefur því komið
heim til fólks síðdegis sem hefur
hamlað okkur svolítið í gegnum tíð-
ina, sérstaldega varðandi auglýsinga-
sölu. Margir auglýsendur vilja að
auglýsingarnar séu komnar heim til
fólks á morgnana."
Karl segir morgundreifinguna
því vera mikla byltingu fyrir auglýs-
ingasöluna og fyrir Blaðið almennt.
„Nú er komið að þessu stóra skrefi
sem við höfum verið að undirbúa
mjög lengi, að komast heim til fólks
á morgnana þannig að við getum
keppt af fullum krafti við hin dag-
blöðin. Við erum mjög bjartsýn á
samkeppnina. Við teljum Blaðið eins
og það er í dag vera síst verra en hin
blöðin og að mörgu leyti betra.“
Að sögn Karls er alveg ljóst að frí-
blaðamarkaðurinn á Islandi á eftir
að stækka. „Mín skoðun er og hefur
verið mjög lengi að pláss sé fyrir tvö
fríblöð á markaðnum. Ég held að
við höfum sannað það að auglýsinga-
markaðurinn rúmi tvö fríblöð.“
Árvakur, útgáfufélag Morgunblaðs-
ins, eignaðist helmingshlut í Blaðinu
í desember á síðasta ári og flutti
Blaðið í Hádegismóa í apríl. „Blaðið
er dagblað fyrir alla aldurshópa, Við
höfum ávallt reynt að höfða til sem
flestra og lagt mikla áherslu á að fólk
á öllum aldri finni eitthvað við sitt
hæfi.“
GPS Kort
R. Sigmundsson ehf., í samstarfi við verkfræði-
stofuna Hnit og Samsýn, kynnir nýja útgáfu af
GPS Korti, útgáfu 3.0.
Leiðsögukerfi
GPS Kort er leiðsöguhæft kort af íslandi með
götukorti af bæjarfélögum, húsnúmeraskrám,
þjóðvegum og hálendisslóðum. GPS Kort
reiknar stystu eða fljótustu leið á milli staða,
hvort sem er í Garmin tæki eða PC tölvu.
4tGflRMIN. HHNIT?
Upplýsingar
f kortinu eru 40.000 örnefni, rúmlega 4.000
þjónustuaðilar og skálaskrá. Með GPS Korti
getur þú leitað að þjónustuaðilum eða ömefnum
og látið Garmin GPS tækið eða tölvuna vísar þér
leiðina á staðinn.
GPS Kort fæst hjá R. Sigmundssyni að
Ánanaustum 1 og hjá umboðsmönnum um
allt land.
föSAMSÝN
R. SIGMUNDSSON
ÁNANAUSTUM 1 | 101 REYKJAVÍK | SÍMI 520 0000 | www.garmin.ls
UmboA«m«fWi I Akureyri: Haftœkni Blönduós: Krákur • Egilsstaðlr. Bflanaust Qrundarfjöröur: Marefnd Isafjöröun Bensín3tööln • Reyöarfjöröur: Veiötflugan
Setfoss: Hársnyrtistofa Letfs • Vestmannaeyjar Geisli • Reykjavfk: Arctic Trucks, Bílanaust, Elko, Everest, Gisll Jónsson, Hlaö, Intersport, Stormur,
Toyota aukahlutir, Útllff, Vesturröst, Yamaha • Frlhöfnln
Repúblikanar
svara gagnrýni
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandaríkjanna, sakaði á dög-
unum þá sem gagnrýna Iraksstríðið
og hið svokallaða „hnattræna stríð
gegn hryðjuverkaógninni” um að
hafa ekki dregið neinn lærdóm af
sögunni og líkti þeim við þá stjórn-
málamenn sem vildu friðmælast
við stjórn nasista í Þýskalandi á
fjórða áratug síðustu aldar. Varnar-
málaráðherrann var að svara gagn-
rýnendum utanríkisstefnu Banda-
ríkjanna og þeim demókrötum sem
vilja að stjórnvöld dragi herlið sitt
til baka frá írak.
Ræða Rumsfelds endurspeglar
fleiri ræður sem háttsettir embætt-
ismenn innan Bush-stjórnarinnar
hafa haldið að undanförnu. Bæði
Dick Cheney varaforseti og Cond-
oleezza Rice utanríkisráðherra hafa
endurómað inntak ræðu Rumsfelds
að undanförnu og þykir málflutn-
ingurinn gefa til kynna i hverju gagn-
sókn repúblikana fyrir þingkosning-
arnar í nóvember muni felast. Mjög
hefurhallað á Repúblikanaflokkinn
og George Bush forseta í skoðana-
könnunum að undanförnu og eru
óvinsældirnar ekki síst raktar til
ástandsins í írak.
Ljóst er að repúblikanar ætla að
leggja mikla áherslu á hryðjuverka-
ógnina og á þá kenningu að hún sé
hliðstæða við fasisma á tuttugustu
öldinni til þess að snúa vörn í sókn.