blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 41

blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 41
blaðiö FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 41 4V Jessica hjarta John Fjöllistakonan Jessica Símpson er búinn að ná sér eftir skilnaðinn við Nick Lachey og er farin að svipast um eftir nýjum fórnarlömbum. Sagan segir að hún og tón- listarmaðurinn John Mayer séu að rugla saman reytum en þau hafa verið góð- ir vinir í nokkurn tíma. Simpson er um þessar mundir að kynna sitt nýjasta sköp- unarverk, plötuna A Pu- blic Affair, en hefur þó ekki gengið heil til skógar þar sem hún er illa þjáð af barkakýlisbólgu. Simpson mun þó ekki vera í bráðri lífshættu. Róbert að leggja hljóðnemann á hilluna? Robbie Willfams, hinn háæruverðugi drottinn poppsins, hefur látið í veðri vaka að hann muni segja skilið við tónlistargeirann áður en árið 2008 gengur í garð. „Ég mun líta í hvern krók og kima á næstu átján mánuð- um og finna með sjálfum mér hvort vilji gera þetta að lifibrauði mínu öllu lengur. Ég sé ekki fyrir mér að ég muni syngja mikið lengur," sagði Williams við Daily Star. „Þetta er spurning um hvað ég vil og hvar ég vil vera. Get ég lifað án þess að vita af því að útvarpsstöðvar velji lög mín til spilunar? Eða er ég háður frægð- inni?“ spurði andans maður- inn Robbie, en hefur engin svör fengið enn. Georae og Barkin að híttas l Þær sögur ganga nú fjöllunum hærra að Ge- orge Clooney, sá sjóðheitl og grái piparhundur, og Éllen Bark- In, meðleikkona hans í Ocean’s Thirteen, séu að slá sér upp saman. Barkin er 52 ára og skildi við annan eiginmann sinn, Ron Þerelman, í febrúar. „Hún er vitstola af þrá. Það væri hægt að skera þá kyn- ferðislegu spennu sem ríkir á milli þeirra með hníf. Hann er gerólíkur fyrrverandi eiginmanni hennar, sem hún elskar þó enn,“ sagði innan- búðarmaður, sem starfar með þeim að kvikmyndinni, við Daily Mirror. Annar innanbúðar- maður sagði þau hins vegar aðeins vera góða vini og að Clooney hefði verið Barkin öxl til að gráta á. Hasselhoff vill heila Strandvörðurinn og tónlistarmaðurinn David Hasselhoff segist vilja hætta að hugsa um Pamelu Bach, konu slna til 16 ára, sem hann er nýlega skilinn við, og finna sér nýja kærustu. Hún þarf þó að vera ákveðnum kostum gædd. „Ég er að fara til Englands I september og mfg langar að finna mér fallega kærustu. En það má ekki vera einhver helmsk Ijóska, hún verður að vera afburðagreind," sagði Hoffarinn. Britney að eignast stelpu Heimsbyggðin stendur a önd inni í bið eftir upplýsingum um af hvaða kyni annað barn Britney Spears sé. Hópur snillinga vest- anhafs telur sig nú hafa fundið svarið. Breiðný hefur verslað grimmt að undanförnu og keypt mikið af barnavörum, sem margar hverjar eru bleikar og jafnvel með blúndumynstri. Þykir það til merkis um að stúlka sé á leiðinni. Meintur vinur fyrrum poppd- ívunnar segir að hún i hafi keypt barna- ' vörur fyrir rúmar tvær milljónir króna. |' Þar á meðal er 100 » þúsund króna barna- Ijósakróna sem er vitaskuld eitthvað sem öll lítil börn dreymir um að eiga. Nakin Moss Ofurfyrirsætan ‘íate Mo situr nakin fyrir í nýjasta tölublaði tískutímarits- ins POP. Moss, sem á í ástarsambandi við eiturlyfjaskunkinn Pete Doherty, birtist í í nokkrum myndaþáttum í blaðinu og m.a. í hlut- verki engils. Annar mynda- þáttur sýnir Moss, sem er 32 ára, berbrjósta með sjóræningjahatt og í stuttum nærbuxum. Móðir Dohertys greindi frá því á dögunum að sonur sinn og Kate væru yfir sig ástfangin og blés á allar sögur þess efnis að samband þeirra væri tilbúningur. „Þau eru innilega ástfangin og ég vildi að fólk gæti bara látið þau í friði,“ sagði mútta. ' •» * *

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.