blaðið - 01.09.2006, Page 41
blaðiö
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 41
4V
Jessica hjarta
John Fjöllistakonan Jessica
Símpson er búinn að ná sér eftir
skilnaðinn við Nick Lachey
og er farin að svipast um eftir
nýjum fórnarlömbum. Sagan
segir að hún og tón-
listarmaðurinn John
Mayer séu að rugla
saman reytum en
þau hafa verið góð-
ir vinir í nokkurn
tíma. Simpson
er um þessar
mundir að
kynna sitt
nýjasta sköp-
unarverk,
plötuna A Pu-
blic Affair, en
hefur þó ekki
gengið heil til
skógar þar sem
hún er illa þjáð af
barkakýlisbólgu.
Simpson mun þó
ekki vera í bráðri
lífshættu.
Róbert að leggja
hljóðnemann á
hilluna? Robbie
Willfams, hinn háæruverðugi
drottinn poppsins, hefur látið í veðri
vaka að hann muni segja skilið við
tónlistargeirann áður en árið 2008
gengur í garð. „Ég mun líta í hvern
krók og kima á næstu átján mánuð-
um og finna með sjálfum mér hvort
vilji gera þetta að
lifibrauði mínu öllu
lengur. Ég sé ekki
fyrir mér að ég muni
syngja mikið lengur,"
sagði Williams við
Daily Star. „Þetta er
spurning um hvað
ég vil og hvar ég
vil vera. Get ég
lifað án þess að
vita af því að
útvarpsstöðvar
velji lög mín til
spilunar? Eða er
ég háður frægð-
inni?“ spurði
andans maður-
inn Robbie, en
hefur engin svör
fengið enn.
Georae og Barkin
að híttas l Þær sögur
ganga nú fjöllunum hærra að Ge-
orge Clooney, sá sjóðheitl og
grái piparhundur, og Éllen Bark-
In, meðleikkona hans í Ocean’s
Thirteen, séu að slá sér upp saman.
Barkin er 52 ára og skildi við annan
eiginmann sinn, Ron Þerelman, í
febrúar. „Hún er vitstola af þrá.
Það væri hægt að skera þá kyn-
ferðislegu spennu sem ríkir á milli
þeirra með hníf. Hann er gerólíkur
fyrrverandi eiginmanni hennar, sem
hún elskar þó enn,“ sagði innan-
búðarmaður, sem starfar með þeim
að kvikmyndinni, við Daily Mirror.
Annar innanbúðar- maður sagði
þau hins vegar
aðeins vera
góða vini og
að Clooney
hefði verið
Barkin öxl
til að
gráta á.
Hasselhoff vill heila
Strandvörðurinn og tónlistarmaðurinn David Hasselhoff segist vilja hætta að hugsa um
Pamelu Bach, konu slna til 16 ára, sem hann er nýlega skilinn við, og finna sér nýja
kærustu. Hún þarf þó að vera ákveðnum kostum gædd. „Ég er að fara til Englands I
september og mfg langar að finna mér fallega kærustu. En það má ekki vera einhver
helmsk Ijóska, hún verður að vera afburðagreind," sagði Hoffarinn.
Britney að
eignast stelpu
Heimsbyggðin stendur a önd
inni í bið eftir upplýsingum
um af hvaða kyni annað
barn Britney Spears
sé. Hópur snillinga vest-
anhafs telur sig nú hafa
fundið svarið. Breiðný
hefur verslað grimmt að
undanförnu og keypt mikið
af barnavörum, sem margar
hverjar eru bleikar og jafnvel
með blúndumynstri. Þykir
það til merkis um að stúlka
sé á leiðinni.
Meintur vinur fyrrum poppd-
ívunnar segir að hún
i hafi keypt barna-
' vörur fyrir rúmar
tvær milljónir króna.
|' Þar á meðal er 100
» þúsund króna barna-
Ijósakróna sem er
vitaskuld eitthvað sem
öll lítil börn dreymir um
að eiga.
Nakin Moss
Ofurfyrirsætan ‘íate Mo
situr nakin fyrir í nýjasta
tölublaði tískutímarits-
ins POP. Moss, sem
á í ástarsambandi
við eiturlyfjaskunkinn
Pete Doherty, birtist í í
nokkrum myndaþáttum
í blaðinu og m.a. í hlut-
verki engils. Annar mynda-
þáttur sýnir Moss, sem
er 32 ára, berbrjósta með
sjóræningjahatt og í stuttum
nærbuxum. Móðir Dohertys
greindi frá því á dögunum
að sonur sinn og
Kate væru yfir
sig ástfangin og
blés á allar sögur
þess efnis að
samband þeirra
væri tilbúningur.
„Þau eru innilega
ástfangin og ég
vildi að fólk gæti
bara látið þau í
friði,“ sagði mútta.
'
•»
*
*