blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 28

blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 28
28 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 blaðið Vona að ég m. f i 1; 4 M trí Björn Thoroddsen gítar- leikari stendur í ströngu þessa dagana. Á dög- unum fékk hann boð um að leika í Lincoln Center í New York en það er oftar en ekki nefnt Mekka jasstónlistarinnar. Þetta er því mikil viðurkenning fyrir Björn sem hefur helgað sig jassinum frá árinu 1982. „Það verður ekkert mikið flottara fyrir jassleikara, þetta er tvímæla- laust mín stærsta viðurkenning segir Björn Thoroddsen stoltur. Tónleikarnir fara fram 2. október en daginn áður mun sjálfur Wyn- ton Marsalles stíga á stokk í Lincoln Center, en hann er eitthvert stærsta nafnið í jassheiminum. „Svo er það bara Björn Thoroddsen,“ segir Björn og hlær. Hafði þetta í sigtinu Björn er að vonum fullur tilhlökk- unar en með honum i för verða fé- lagar hans úr tríóinu Cold Front. Það eru bandaríski bassaleikarinn Steve Cirby og Richard Gillis sem er tromp- etleikari frá Kanada. En hvemigkom það til að þið voruð fengnir til að spila þarna? „Það er ekki hægt að sækja um að spila þarna, heldur er valið. Ég hef verið að spila aðeins í Bandaríkjum og Kanada og náð að kynna mig eitt- hvað. Þetta boð kom svo í gegnum al- ræðisskrifstofuna í Bandaríkjunum,“ segir Björn. Hann segist ekki hafa stefnt markvisst að því að spila þarna einhvern daginn en viðurkennir þó að hafa haft þetta „í sigtinu." Áleiðtil Frakklands Björn hefur verið á ferð og flugi undanfarin misseri og spilað víða um heim. Ýmist með Cold Front eða þá Guitar Islancio en síðarnefnda tríóið skipa með Birni þeir Gunnar Þórðarson og Jón Rafnsson. „Við höfum farið víða, ekki síst fyrir tilstilli Óttars Felix Hauks- sonar umboðsmanns okkar. Hann heldur utan um þetta allt saman fyrir okkur,“ segir Björn. „Nú erum við i Guitar Islancio á leið til Frakk- lands að spila. Ætlum að ferðast um landið og spila á nokkrum stöðum,“ segir Björn en Gunnar Þórðarson verður fjarri góðu gamni í þeirri ferð. I hans stað kemur ekki síðri gít- Birni Thoroddsen hefur verið boðið að spila í Lincoln Center í New York arleikari - Guðmundur Pétursson. Guitar Islancio hefur einnig getið sér gott orð í Japan. Nóg framundan Björn mun sem fyrr segir halda tónleikana í Lincoln Center þann 2. október næstkomandi. Ekki eru fleiri tónleikar bókaðir í stóra eplinu en Björn stefndi þó að því í byrjun. „Steve Cirby, bassaleikari Cold Front, hefur búið í New York og ég bað hann um að bóka okkur á ein- hverja aðra staði í borginni til þess að nýta ferðina. Ég fékk þau skila- boð til baka að þegar maður væri að spila I Lincoln Center þá færi maður ekki beint að spila á einhverri búllu á eftir,“ segir Björn og hlær. Hann hefur I nógu að snúast þessa dagana og fjölmörg verkefni erlendis sem bíða hans. En þar sem Lincoln Center er toppurinn, er þá ekki eina vitið að hœtta bara eftir tónleikana og leggja gítarnum? „Nei, alls ekki,“ segir Björn hlæj- andi. „Þá myndi ég telja að maður væri kominn með veganesti til að komast lengra áfram. Maður verður gjaldgengari fyrir ýmsar hátíðir og annað sem er í gangi.“ Þá er betra að slá engin feilgrip á stóru stundinni... „Ég vona að ég hitti á rétta gripið.“ Sólmundur Hólm Engin heimþrá en leiðinlegt flug Mikil spilamennska á fjarlægum slóðum kallar á mikinn tíma að heiman. Fœrðu aldrei heimþrá? „Ég er ekki það lengi í burtu í senn. Lengstu túrarnir eru um tvær vikur. Hinsvegar verð ég hundleiður á því að sitja í flugvélum. Hef þurft að fara í tíu eða tólf tíma flug sem getur verið ansi þreytandi. En það er gaman að spila á stöðunum sem maður flýgur til þannig að maður er sáttur að lokum,“ segir Björn. Ég hef aldrei unnið neitt Það kvittar hver sem er undir þá fullyrðingu að Björn Thoroddsen sé stórkostlegur gítarleikari. Hann varð það þó ekki á einni nóttu. „Ætli ég sé ekki búinn að spila á gítar í einhver þrjátíu ár,“ segir Björn sem er að upp- skera árangur erfiðisins núna. Og þú gerir ekkert annað? „Þetta hefur verið mín vinna frá því ég man eftir mér. Ég hef aldrei unnið neitt,“ segir Björn og hlær. „Það var nú fyrst aldrei viðurkennd vinna að vera tónlistarmaður.“ Á þessum þrjá- tlu árum hefur hann mestan part einbeitt sér að jasstónlist og sér ekki fram á að breyting verði þar á. „Þetta er eins og smá trúarbrögð." Trúlofaður jasstónlist Björn hefur helgað sig jasstónlist í tæpan aldar-fjórðung. ^Einstakar búð- og bárvörur unnar úr* ólífuolíu beint frá cgrikklandi Olivia ^>ví þú átt það besta skilið U Olivia eVrörurnar fást í verslunum SFiagkaupa, ^Fjarðarkaup 5Hafnarfirði, gamkaup um land allt og 5Heilsubúðinni ‘Reylyarvtkurvegi Blússur og pils, peysur og síðbuxur - ný sending VEPÍdlsfíjUl við Laugalæk • sími 553 3755

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.