blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 38

blaðið - 01.09.2006, Blaðsíða 38
38 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 blaöiA tónlist tonlist@bladid.net Utgafur a næstunni: 25. september ■ Boy Kill Boy - Civílian 3. október ■ Evanenscence -The Open Door 30. október -■ Tenacious D - Pick Of Destiny Rokk og ról er viöbjóöslegasta, Ijótasta, vonlausasta og siðlausasta tjáning sem ég hef nokkurn tíma verið svo óheppinn að heyra.“ Frank Sinatra, sönqvari. Tommy Lee, trommari Supernova Óþokki og Eftir Atla Fannar Bjarkason atli@bladid.net Af meðlimum hljómsveitarinnar Supernova er Tommy Lee að flestra mati sá viðkunnanlegasti. Tommy er vinalegur, stundum svolítið klúr en oftar en ekki fyndinn og skemmti- legur. Hann er töff í augum hörð- ustu rokkaranna en virðist hafa sigrað hjörtu íslenskra húsmæðra sem missa ekki af þætti um rokk- arana sem gera allt til að vinna hylli Supernova. En hver er þessi Tommy Lee? Gróf hegðun Tommy Lee var rétt skriðinn yf- ir gelgjuna þegar honum og félög- um hans í hljómsveitinni Mötley Criie bauðst plötusamningur. Þá höfðuþeirþegar tekið upp oggefið út plötuna Too Fast For Love sem síðar var endurútgefin undir merkj- um Elektra-útgáfunnar. Mötley Crúe varð ein vinsælasta þungarokkhljóm- sveit allra tíma og seldi yfir fjörutíu milljón plötur um allan heim. Þá var hegðun sveitarinnar sú allra grófasta, en ef þú hefur heyrt svæsna rokksögu þar sem áfengi, stelpur og dóp kemur við sögu eru góðar likur á því að sag- an sé um Mötley Crúe. Upprunalegir meðlimir sveitarinn- ar, þeir Mick Mars, Vince Neil, Nikki Sixx og Tommy Lee sjálfur, voru þekktir fyrir að fara alla leið í hinu villta rokkstjörnulíferni. Þeir sugu mesta kókaínið, stunduðu kynlíf með þekktustu klámstjörnunum og rústuðu flestum hótelherbergjum. Árið 2001 kom út saga Mötley Crúe, Dirt. Engu er haldið leyndu í bókinni og gjörsamlega allt látið flakka. Ein blóðugasta sagan í bókinni er af Tommy Lee þar sem hann segir sjálfur frá því þegar þáverandi kær- asta hans móðgar móður hans, sem kallaði hana óvart nafni annarrar vin- konu: „Ég fleygði henni út úr bílnum og teygði hönd mína aftur, kreppti hnefann og kýldi hana beint í and- litið,“ segir Tommy í bókinni. „Hún greip um andlitið og féll í jörðina. Ég stökk aftur inn í bílinn og skellti hurð- inni. Þegar við keyrðum í burtu leit ég aftur og sá hana á hnjánum á gang- stétt hrækjandi tönnum í alblóðugan lófa sinn.“ Giftur kvikmyndastjörnum Tommy Lee skar sig fljótt úr í Mötley Crúe vegna þess hversu vin- sæll hann var meðal kvenfólksins. Hann var giftur leikkonunni Heat- her Locklear í sjö ár, frá 1986 til 1993, Lokadagar Útsölunnar Z-brautir og gluggatjöld Faxafeni 14 • 108 Reykjavík • S.525 8200 Ijúfmenni en hún sótti um skilnað eftir að upp komst um framhjáhald hans með ónefndri klámstjörnu. Tommy lét skilnaðinn við Locklear ekki á sig fá og giftist kynbombunni Pamelu Ánderson eftir aðeins þriggja daga ástarsamband árið 1995. Þau eiga tvo syni, Brandon Thomas og Dylan Jagger. Hjónabandið entist þó ekki lengi og í nóvember 1996 höfðu þau skilið. Seinna sama ár ákváðu þau að gifta sig aftur. Hjónabandið entist aðeins lengur í þetta skiptið, til ársins 1998, þegar Tommy missti stjórn á skapi sínu og gekk í skrokk á eiginkonu sinni. Hún sótti um skiln- að og Tommy var dæmdur til sex mánaða fangelsisvistar fyrir heimil- isofbeldi. Síðar kom í ljós að Pamela hafði smitast af lifrarbólgu C eftir að hafa notað sömu húðflúrsnál og Tommy, sem þjáist af sjúkdómnum. ímyndin endurbætt I seinni tíð hefur Tommy Lee ein- hvern veginn tekist að bæta ímynd sína. I fyrra hófu göngu sína raun- veruleikaþættir um háskólagöngu hans sem SkjárEinn sýnir um þessar mundir. I fyrsta þættinum sjást nem- endur háskólans standa á fætur og klappa fyrir kappanum þegar hann lætur sjá sig á skólalóðinni. Nem- Tommy og Pam Þegar allt lék ílyndi endurnir eru augljóslega fljótir að gleyma eða fyrirgefa hegðun hans á árum áður því móttökurnar voru svo góðar að æðstu þjóðhöfðingjar hefðu ekki þurft að skammast srn. Flestir eiga skilið annað tækifæri og að eigin sögn hefur Tommy losað sig við eiturlyfjafíknina sem var stór þáttur í ofbeldisfullri fortíð hans. Hann hefur fengið sinn skammt af tækifærum í gegnum tíðina og virðist í dag vera búinn að snúa end- anlega við blaðinu. I síðasta þætti af Rock Star: Supernova kallaði Tommy sjálfan sig konung mistakanna og bætti við: „Málið með mistök er að við gerum þau, lærum af þeim og gerum þau vonandi ekki aftur.“ Orð að sönnu. Við vonum að Tommy Lee hafi loksins lært af mistökunum. hluta en upptökum á hljómborðum og söng er ólokið. Platan er vænt- anleg í október. Blúsdrottningin Lay Low leggur þessa dagana lokahönd á sína fyrstu plötu. Stefnt er á útgáfu í september en það er COD music sem gefur út. Nokkrir hljóðfæraleikarar eru Lay Low til halds og trausts á plötunni, þar á meðal Sigurbjörn úr hljóm sveitinni Royal Fortune, sem spilar á banjó, og Björn Sigmundur og Magnús Öder úr sunnlensku sveitinni Benny Crespo’s Gang. Björn leikur á trommur en Magnús tekur upp og útsetur plötuna ásamt Lay Low. Af Benny Crespo's Gang er það að frétta að fyrsta plata fjórmenning- ^anna er einnig á síðustu \metrunum. ■ m Ekki er langt síðan , B sveitin hélt út fyrir ytkkffSniB borgina og kláraði plötuna að stórum Löngu er kominn tími á plötu frá hljómsveit- inni Mínus. Sveitin kom síðast fram it á Menningarnótt við mikinn fögnuð aðdáenda en sér- staka athygli vakti kamelljónið Krummi sem enn og aftur virtist hafa breytt um stíl. Nýju lögin sem þar hljómuðu hljómuðu svipuð lög- unum á plötunni Halldór Laxness, en sveitin hefur verið iðin við laga- smíðar undanfarna mánuði. Vinsældir hljómsveitarinnar Jeff Who? ætla engan endi að taka. Sveitin er þessa stundina í Danmörku og treður upp í I Kaupmannahöfn í kvöld. \Tilefnið ku vera sérstakt | upphitunarkvöldi fyrir lceland Airwaves-hátíð- ina sem haldin verður i október. '

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.