blaðið - 01.09.2006, Síða 16
4
16 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
FRÉTTIR
blaðið
Eftirlit:
70 bílar boð-
aðir í skoðun
Lögreglan hefur staðið í
ströngu undanfarna daga við
að boða bíla í skoðun en um
sjötíu hafa fengið tilkynningu
þess efnis. Lögreglan segist vera
hætt að taka þessi mál vettlinga-
tökum og klippti númerin af
tveimur bílum í fyrradag.
Þjófnaður:
Stálu tíu
gaskútum
Á undanförnum dögum
hefur ío gaskútum verið stolið
úr gasgrillum og fellihýsum í
Reykjavík. Lögreglu grunar að
sömu mennirnir hafi verið að
verki og eru þeir í haldi lögregl-
unnar. Ástæðan fyrir því að
mennirnir stela kútunum mun
vera skilagjald sem þeir fá á
bensínstöðvum, það er um tvö
þúsund krónur á kút.
MANSTU?
1. Hvaö heitir höfuöborg Sýrlands?
2. Hvert er millinafn forsætisráðherra íslands?
3. Hver var gítarleikari hljómsveitarinnar Ununar?
4. Hvað merkir 03?
5. Hvaða ár var heimsmeistaraeinvígið í skák háð hér á landi?
Svör:
zm 'S 'UOZ0 ‘V U0PI3 Jog £ 'JELuhh z 'sn>(seujBa 'i
Útblástur gróðurhúsalofttegunda frá íslenska járnblendifélaginu:
Járnblendið losar
420 þúsund tonn
■ Umhverfisvakt óháðra aðila ■ Umhverfið drabbast niður
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
„Losun gróðurhúsalofttegunda er
um 420 þúsund tonn eins og fram-
leiðslugetan er núna,“ segir Sigrún
Pálsdóttir, framkvæmdastjóri um-
hverfissviðs fslenska járnblendifé-
lagsins. „Samkvæmt starfsleyfi má
fyrirtækið losa 665 þúsund tonn á
ári. Sú tala miðast við hámarksfram-
leiðslu, en tii þess að ná henni þyrfti
að bæta fjórða ofninum við og auka
við framleiðslugetu tveggja eldri
ofnanna."
Sigrún segir að f slenska járnblendi-
félagið reyni eftir fremsta megni að
hafa reksturinn sem stöðugastan og
hagkvæmastan. „Það er allra hagur.
Þannig er hægt að nýta hráefnið
betur sem þýðir betri orkunotkun
og minnkun á losun gróðurhúsaloft-
tegunda á hvert framleitt tonn. Fjár-
ÍSLENSKA
JÁRNBLENDIFÉLAGIÐ:
Útblástur: 420.000 tonn (2005)
Starfsfólk: 110
Framleiðslugeta: 120.000 tonn á ári
hagsleg og umhverfisleg sjónarmið
fara því saman að þessu leyti.“
f umhverfisstefnu fslenska járn-
blendifélagsins segir að fyrirtækið
vilji reka verksmiðju sína þannig að
hún valdi sem minnstri röskun í nátt-
úrunni. Sigrún segir að fyrirtækið
hafi átt í samstarf við Sorpu um end-
urvinnslu á úrgangstimbri, sem ella
hefði verið urðað. „Þetta er mikilsvert
framlag okkar til umhverfisins og við
erum stolt af því. Timbrinu er safnað
saman á höfuðborgarsvæðinu, kurlað
hjá Sorpu og síðan flutt til okkar á
Grundartanga. Við notum kurlið sem
hráefni og kemur það í stað innfluttra
Verksmiðju-
svæðið fariö
að láta á sjá
Haraldur Bene-
diktsson, formaður
Bœndasamtakanna
Fjárhagsleg
og umhverfis-
leg sjónarmið
fara saman
Sigrún Pálsdóttir,
f ramkvœmdastjóri um-
hverfissviðs ísienska
járnblendifólagsins
kola,“ segir Sigrún og bætir við að fyr-
irtækið noti allt að 20 þúsund tonnum
af timburkurli á ári og spari þar með
innflutning á rúmlega sex þúsund
tonnum af kolum.
Að sögn Sigrúnar eru ákveðin fræði-
leg mörk í framleiðsluferlinu sem
gera það að verkum að takmörk eru
fyrir því hve mikið er hægt að draga
úr losun gróðurhúsalofttegunda.
„Ákveðið magn af kolefni og orku þarf
til að efnahvörfin geti átt sér stað. Kol-
efni þarf til þess að framleiða grunn-
málma og málmblendi, þar með talið
járn, ál og kisiljárn. f ferlunum binst
kolefni súrefni og fer út í andrúms-
loftið sem koldíoxíð. Með því að nota
endurunnin hráefni á þann hátt sem
Járnblendifélagið gerir er hægt að
draga úr þessari losun.“