blaðið - 01.09.2006, Qupperneq 20
blaöió
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjórar:
Ritstjórnarfulltrúi:
Ár og dagurehf.
SigurðurG.Guðjónsson
Sigurjón M. Egilsson
Brynjólfur Þór Guðmundsson og
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Janus Sigurjónsson
Breytt Blað
Mikil tíðindi eru í útgáfu Blaðsins í dag. Upplag þess hefur verið aukið
og er því nú dreift í rétt um eitthundrað þúsund eintökum. Framvegis
mun Blaðið berast lesendum að morgni og því er treyst að lesendum muni
fjölga verulega. Breytingar eru gerðar á útliti Blaðsins og efnistök verða
skýrari. Þar með er lokið við að gera þær breytingar sem var talað um
þegar breytingar urðu á ritstjórn Blaðsins fyrir tæpum tveimur mánuðum.
Þrátt fyrir tímamót mun Blaðið eigi að síður halda áfram að breytast og
þroskast.
Blaðið hefur nokkra sérstöðu frá hinum dagblöðunum tveimur. Blaðið
mun ekki ætla sér að keppa beint við hin dagblöðin tvö, heldur verða skýr
valkostur. Sérstaða þess er nokkur. Blaðið verður áfram alþýðlegt, veitir
upplýsingar og gætir að hag neytenda. Blaðið verður hófsamt og ákveðið,
sanngjarnt og kjarkað og leitast verður við að í hverju tölublaði verði við-
bót við allt það efni sem aðrir fjölmiðlar birta.
f nútímasamfélagi er það þannig að velflestir hafa aðgang að ljósvaka-
fréttum að degi til og á kvöldin og aðgangur íslendinga að tölvum er meiri
en almennt gerist. Þess vegna er aðgangur flestra að almennum fréttum
nokkur og stundum mikill. Blaðinu er ekki ætlað að endursegja fréttir
sem aðrir fjölmiðlar hafa birt. Það hefur þegar skapað sér sérstöðu og
áfram verður haldið á þeirri braut.
Mikil og sterk viðbrögð hafa verið við þeim breytingum sem þegar hafa
verið gerðar og er það von okkar sem störfum við Blaðið að þær brey tingar
sem nú líta dagsins ljós mælist einnig vel fyrir. Það er þörf fyrir fjölmiðil
sem eykur litróf frétta, sem nálgast fréttir með öðrum hætti en allir hinir,
sem er í senn alþýðlegur og skemmtilegur fjölmiðill.
En fjölmiðill er ekki bara fréttir. Áfram verður lögð alúð við annars-
konar efni. í dag fylgir Orðlaus Blaðinu og verður svo áfram á hverjum
föstudegi. Fastir efnisflokkar verða alla daga, svo sem menning, íþróttir
og fleira. Ekki verður dregið úr vægi þessara þátta þrátt fyrir að frétta-
hlutinn hafi verið aukinn. Með annarri uppröðun efnis og fastari efnis-
tökum mun fjölbreytni aukast og meira verður lagt í vinnslu alls efnis.
Takmarkið er augljóst. Blaðið á að hafa sérstöðu, Blaðið á að vera skemmti-
legt, fræðandi og ábyrgt.
Það er fleira sem breytist en aukið upplag, morgundreifing, útlit og
efnistök. í fyrstu verður mánudagsútgáfu Blaðsins hætt. Þar sem sömu
blaðberar dreifa Blaðinu og Morgunblaðinu er ekki unnt að bæta á þeirra
vinnu á mánudögum, en þá kemur fasteignablað Morgunblaðsins út og
því er vinna blaðbera mikil á mánudögum.
Það er von okkar sem störfum við útgáfu Blaðsins að breytingar á dreif-
ingu og efnistökum sem og útlitinu verði til þess að styrkja enn frekar
ágætt samband Blaðsins og lesenda.
Sigurjón M. Egilsson
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar. Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsimi: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Simbréf á auglýsingadeild: 510 3711
Netföng: bladid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins Dreifing: Islandspóstur
20 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
bla6iö
* MM VlAWM SJör-nÍ VEt&uti ty Tfí >ES£*r
Lt-YJW^STU §fJÍ4. Vb9 'E’RUM r gN&U gmq^j zTtír )ooo áRr
l£Tiuv, SUbCK '
OQ nvGmmatsi
Prófessor Þorvaldur
og keltneski tígurinn
I Fréttablaðinu í gær birtist
grein eftir Þorvald Gylfason pró-
fessor um stöðu nágranna okkar
og frænda á írlandi. Hann vekur
meðal annars máls á örum efna-
hagslegum framförum þar í landi
á undanförnum árum enda hlýtur
það að vekja athygli hvernig írum
tókst á undraskömmum tíma að
verða ein ríkasta þjóð Evrópu og
heimsins alls eftir að hafa verið
meðal þeirra fátækustu í hinum
vestræna heimi allt fram á áttunda
áratug síðustu aldar.
Opnað fyrir Qárfestingar og viðskipti
Þorvaldur getur þess réttilega að til
þess að skapa skilyrði fyrir þessum
framförum hafi írar þurft að kasta
af sér þeim hlekkjum hugarfarsins,
sem langvarandi nýlendustjórn Breta
hafi lagt á þá og nefnir að með aðild
landsins að Evrópusambandinu 1973
hafi hjólin verulega farið að snúast og
svigrúm skapast til umskipta heima
fyrir. Stjórnvöld hafi hætt að einblína
á landbúnað og farið að búa i haginn
fyrir iðnað, verslun og þjónustu. Loks
getur hann þess að ríkisstjórnir lands-
ins hafi breitt út faðminn á móti er-
lendum fyrirtækjum sem laðast hafi
að landinu meðal annars vegna þess
að írar tali ensku.
Skattalækkanir á atvinnulífið
Allt eru þetta réttar athugasemdir,
svo langt sem þær ná, en til að skilja
árangur Ira er nauðsynlegt að huga
nánar að nokkrum þáttum. Þannig
má nefna, að Evrópusambandsað-
ildin var írum vissulega mikilvæg
- til skamms tíma vegna þess að þeir
fengu sem fátæk þjóð ríflega styrki
úr sjóðum sambandsins en til lengri
tíma vegna þess að þar með urðu þeir
hluti af innri markaði sambandsins
Birgir Ármannson
og hindrunum í viðskiptum var rutt
úr vegi. Aðild að ESB hefði hins vegar
ekki skilað þessum mikla efnahags-
legaárangri nema vegnaþess að stjórn-
völd gripu til ýmissa annarra ráðstaf-
ana til að bæta skilyrði atvinnulífsins
í landinu. í því sambandi er óhætt
að fullyrða að stórfelldar skattalækk-
anir, einkum á fyrirtæki en einnig á
einstaklinga, hafi riðið baggamuninn.
Það var nefnilega einkum með afar
hagstæðu skattaumhverfi sem írsk
stjórnvöld breiddu út faðminn á móti
erlendum fyrirtækjum þótt notkun
hinnar ensku tungu hafi heldur ekki
spillt fyrir. írar sáu nefnilega að til að
styrkja stöðu sína í alþjóðlegri sam-
keppni var mikilvægt að bjóða betur
í skattamálum heldur en gekk og gerð-
ist í nágrannalöndunum og árangur
þeirra var meiri en jafnvel bjartsýn-
ustu menn þorðu að vona.
ísland - frland
Það var á sömu forsendum og hjá
írum að ríkisstjórnir Davíðs Odds-
sonar fóru út í miklar skattalækkanir
á atvinnulífið í landinu. Það var ekki
út af neinni sérstakri góðsemi í garð
fyrirtækjanna eða eigenda þeirra
heldur til þess að efla atvinnulífið
og tryggja þar með grundvöll góðra
lífskjara og velferðar í landinu. Þetta
hefur tekist bæði á Islandi og írlandi.
Bæði löndin bjóða i dag upp á hag-
stætt skattaumhverfi fyrir fyrirtæki,
sem á ríkan þátt í því að atvinnulíf
stendur í blóma og kaupmáttur og
Iífskjör eru með þvi besta sem gerist
í heiminum. Segja má að írar standi
framar að því leyti að almennt tekju-
skattshlutfall fyrirtækja þar er nú
12,5% meðan það er 18% hér og hlýtur
það að þrýsta á frekari lækkun hér á
landi á næstu árum. Reynslan sýnir
að það er hægt að gera án þess að
tekjur ríkisins minnki - reynsla bæði
Ira og íslendinga leiðir í ljós að með
lægri skattprósentu er hægt að örva at-
vinnulífið, auka tekjumyndun í þjóð-
félaginu, stækka þar með skattstofna
og ná inn meiri tekjum til að standa
straum af sameiginlegum útgjöldum,
hvort sem er til menntamála, heilbrigð -
ismála eða annarra velferðarmála.
Það hlýtur að vera umhugsunarefni
fyrir þá stjórnmálamenn og flokka
sem alltaf hafa staðið gegn skatta-
lækkunum en krefjast á sama tíma
stöðugt aukinna opinberra útgjalda.
Höfundur er þingmaður
Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík.
Steingrímur J. Sigfússon, formaður
Vinstrihreyfingarinnar - græns framboðs,
skrifar Páli Magnússyni útvarpsstjóra
• j opið bréf í gær og gerir athuga-
semdir við vinnubrögðin í Kast-
Ijósi, sem hafði boðið honum til
viðræðu ásamt Vaigerði Sverr-
1 isdóttur utanríkisráðherra
en það boð var svo dregið til baka skömmu
síðar. Telur Steingrímur einsýnt að ráðherrann
hafi neitað að koma nema hún yrði ein í kast-
Ijósinu og finnst honum það að vonum fúlt.
íg verö aS segja útvarpsstjóri góður að ég veit
ekki hvortþessi uppákoma, sem ég hefærna
ástæðu til að ætla að sé ekki etnsdæmi, er verri
og meira niðurlægjandi fyrir ráðherrann eða
Ríkisútvarpið. Ráðherra sem ekkiþorir að
mæta stjórnmálaandstæðingum í rökræðum
gefur auðvitað með því sjálfum sérog/eða
málstað sínum falleinkunn. Hitt er líka ofboðs-
legt að verða vitni að því að Ríkisútvarpið
skuli þjóna valdinu með þessum hætti og láta
það eftir ráðherranum að ryðja andstæðingi i
stjórnmálum og talsmanni ólíkra sjónarmiða
útúrumræðuþætti.
SlEINGRfMUR J. SlGFÚSSON, 31.VIII.2006
r
Iaðdraganda forsetakosninga í Bandaríkj-
unum 1988 höfðu ráðgjafar Mike Dukakis
áhyggjuraf þvi, að kjósendum fyndist hann
of uppburðarlítill, sem ekki var úr lausu lofti
gripið. Skipulögðu þeir því myndatöku af fram-
bjóðandanum um borð í skriðdreka í von um
að hann þætti meira karlmenni á eftir. Sú ráða-
gerð mistókst fullkomlega, því engum þótti
Dukakis maðurað
meiri í of stórum
öryggishjálmi
með Mikka mús-
eyrum. Hann
skíttapaði svo
kosningunum. En síðan birtir Morgunblaðið
í fyrradag forsíðumynd af Georg Lárussyni,
hinum skelegga forstjóra Landhelgisgæsl-
unnar.semernán-
ast einsog sniðin
eftirforskriftDuk-
akis.Goggi erþvi
tæpast á leiðinni
íframboð.
andres.magnusson@bladid.net