blaðið - 01.09.2006, Page 22
22 FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Púðurskot frá Samtökum ferðaþjónustunnar
Samtök ferðaþjónustunnar
kveinka sér undan háu matvæla-
verði og bera því við, að þar sé m.a.
að finna skýringuna á þeim óheyri-
lega verðmun á milli veitinga- og
gististaða á Islandi og í löndum Evr-
ópusambandsins, sem fram kom í
könnun Eurostat, hagstofu Evrópu-
sambandsins, fyrir nokkru.
Framkvæmdastjóri samtakanna,
Erna Hauksdóttir, hefur ítrekað
skotið á bændur og framleiðslu-
vörur þeirra. Hún virðist líta á það
sem allsherjarlausn á vandanum að
afnema tolla á innfluttum landbún-
aðarafurðum. Púðurskot þykja mér
það nú vera.
fsland er í flokki með Danmörku,
Noregi og Sviss sem dýrustu lönd
Hlutfallslegt verð á mat og
hótel- og veitingaþjónustu
m.v. ESB-ríki
Danmörk 130 149
(sland 147 191
Noregur 147 148
Sviss 149 122
* EUROSTAT 2004: ESB-15 =100
(eldri ESB-ríki)
** EUROSTAT 2006: ESB-25 =100
Verðlag íslenskra
veitinga- og
gististaða er
29% hærra en í
Noregi og 57%
hærra en í Sviss!
Jóhannes Sigfússon
Skoðun
Evrópu. í öllum þessum löndum er
velmegun ríkjandi, laun almennt há
og kaupmáttur mikill. Að því sögðu
er vert að skoða meðfylgjandi töflu.
í henni er að finna tölfræði
Eurostat.hagstofuEvrópusambands-
ins. Annars vegar er samanburður
á matvælaverði frá árinu 2004 og
hins vegar samanburður á verðlagn-
ingu hótela og veitingahúsa frá því
fyrr á þessu ári.
í fyrrgreindum löndum er mat-
vælaverð langt yfir meðaltali
ESB-landanna. Engu að síður er
verðlagning á þjónustu hótela og
veitingahúsa hjá Svisslendingum
hlutfallslega lægri en á matvælum,
einkum hjá hinum síðarnefndu.
Hjá Norðmönnum er þetta áþekkt,
en hjá Dönum er þessi þjónusta hlut-
fallslega ívíð hærri en matvælin.
Þegar hlutur fslands er skoðaður
birtist okkur aftur á móti gerbreytt
landslag. Verðlag islenskra veitinga-
og gististaða er 29% hærra en í Nor-
egi og 57% hærra en í Sviss! Þurfa
Samtök ferðaþjónustunnar ekki að
skoða þetta eitthvað betur? Þessi
mikli munur verður varla útskýrður
með háu matvælaverði einu saman.
Framkvæmdastjóri Samtaka
ferðaþjónustunnar ýjaði að því í
umfjöílun Morgunblaðsins um
fyrrgreindan samanburð, að hátt
verðlag hér á landi væri slæmt
fyrir landkynningu. En bíðum nú
við! Er ekki einhver þversögn í
þessu? Fjölgar ekki ferðamönnum
til landsins jafnt og þétt? Erum við
ekki jafnframt að lesa fréttir um
betri hótelnýtingu en nokkru sinni
þrátt fyrir að verðlagning þeirrar
þjónustu sé í sérflokki í Evrópu?
Samtökum ferðaþjónustunnar ætti
að vera orðið löngu ljóst að erlendir
ferðamenn sækja ekki ísland heim
sökum verðlags. Heimsóknir þeirra
má miklu fremur rekja til sérkenna
landsins; náttúru, friðsældar, hrein-
leika lofts og vatns og eflaust í ein-
hverjum tilvikum íslenska matarins.
Hagstæðara verðlag í landinu myndi
gleðja alla, einnig erlenda ferðamenn.
Ofurverðlagning veitingahúsa og
gistihúsa verður hins vegar ekki út-
skýrð með því einu að benda á mat-
vælaverð. Það eru ódýr rökog haldlítil.
Höfundur er sauðfjárbóndi að
Gunnarsstöðum I, Svalbarðshreppi,
formaður Landssamtaka sauðfjárbænda og
formaður Fjallalambs á Kópaskeri.
Verð frá pr. mann miðað við fjögurra manna
fjölskyldu og bíl. Siglt til Færeyja og til baka.
Gist í fjögurra manna klefa (út).
Gildir fyrir tímabilið: 21.10.06 -15.12.06
13.1.07 -17.3.07
iJTmTmTS!
21.850
Verð frá pr. mann m.v. fjögurra manna fjölskyldu
og bíl. Siglt tii Danmerkur og til baka.
Gist í fjögurra manna klefa (út).
Gildir fyrir tímabilið: 21.10.06 -15.12.06
13.1.07-17.3.07
21.850
Verð frá pr. mann m.v. fjögurra manna
fjölskyldu og bíl. Siglt til Noregs og til baka.
Gist í fjögurra manna klefa (út).
Gildir fyrir tímabilið: 21.10.06 -15.12.06
13.1.07 -17.3.07
m&i' '"Hir'tfrMMÍ
ff
Fjardargötu S ■ 710 Seyðisfirði ■ Sími: 4721111
austfar@smyril-line.ís ■ www.smyril-line.is
BMYRIL LINE ÍSLAND
AiyqQno
SJangarhyl 7,- 1J0 Rgykjavík • Siijji: 570 860d
Faxj 552 9450 -*www. smyriNinef is
ihiisi/Vdihf