blaðið - 01.09.2006, Page 34
34
FÖSTUDAGUR 1. SEPTEMBER 2006 blaöið
veiði
veidi@bladid.net
Veiöiráð
Rannsakaöu umhverfi fisksins áöur en þú velur fluguna. Hvers konar æti er i umhverfinu?
Þá er gott aö kíkja undir steina og athuga hvers konar skordýr þu finnur. Einnig er ráðlegt
að athuga hvers konar skordýr fljóta á vatninu og velja síðan flugu svipaða að iögun og lit.
Ásgeir Guðmundsson og synir með ólæknandi veiðidellu
Veiða víða um heim
Veiðisagan
Maríulaxinn í
afmælisgjöf
Gyða Sigríður Einarsdóttir fór
í laxveiði í Laxá í Dölum á 35 ára
afmælisdegi sínum og setti í mar-
íulaxinn sinn á flugu. Þrír laxar
veiddust í túrnum, fjögurra til
fimm punda fiskar, og tóku þeir
Svartan Frances og Tvo á kamr-
inum. Skálaði hún í kampavíni
á bakkanum í tilefni dagsins.
„Ég hef alist upp við veiði frá
unga aldri og hef mjög gaman
af stangaveiðinni. Þegar ég var
þrítug fór ég líka í Laxá í Dölum
og veiddi fyrsta laxinn minn á
maðk sem var sjö pund,“ sagði
Gyða sem var með unnusta sín-
um Ásgeiri Guðmundssyni flug-
stjóra, grínara og veiðimanni
fimm árum síðar í sömu ánni og
gerði enn betur með flugustöng-
inni.
Sumir veiða til að lifa á meðan aðrir
lifa til að veiða. Ásgeir Guðmundsson
flugstjóri, veiðimaður og grínari, er
án efa i seinni flokknum en veiðar eru
lífhansogyndi.
Þegar Ásgeir ferðast um allan heim
í starfi sínu fyrir Cargolux notar hann
tímann vel og veiðir ýmist fugla eða
dýr. Geiri tekur gjarnan syni sína þrjá
með í veiðiferðir og í vor fóru þeir feðg-
ar, Geiri, Ásgeir Atli og Emil Már, til
S-Illinois á villikalkúnaveiðar. Emil,
sem er átján ára, felldi vænan kalkún
með haglabyssu ásamt föður sínum
en Emil fór til Afríku fyrir tveimur
árum, þá aðeins sextán ára gamall, og
felldi þar stór veiðidýr svo sem oryx
og springbuck. Sonurinn forfallinn
með stöngina f sumar fór Geiri með
næstelsta son sinn, Ásgeir Atla sem er
ellefu ára, í laxveiði norður í Djúpá í
Köldukinn þar sem Ásgeir Atli veiddi
maríulaxinn sinn á maðk, fimm
punda fallega hrygnu. Þeir veiddu
fimm laxa í túrnum í þessari litlu og
þægilegu „dekurá” eins og Geiri kall-
ar ána.
„Við veiddum á snældur og gárutúp-
ur. Þarna hafa veiðst tólf til fimmtán
punda laxar en áin þolir ekki mikla
veiði. Strákurinn er alveg forfallinn
í stangaveiðinni og það er ekki aftur
snúið með hann,” segir Geiri stoltur
þegar hann rifjar upp veiðitúrinn í
Djúpá í Köldukinn.
Á hreindýraveiðum Ásgeir Guðmundsson og Ásgeir Atli með hreinkú á
Þrælahálsi í 20 stiga hita.
Á hreindýraveiðum Nýverið fór
Ásgeir Atli í mikið veiðiferðalag með
pabba sínum um landið og óku þeir
3.500 kilómetra vítt og breitt og fóru
meðal annars á hreindýraveiðar fyrir
austan í 20 stiga hita og sól á svæði 2
við Þrælaháls. Þar felldi Geiri stóra
hreinkú sem vó 46 kíló flegin.
„Við flugum líka á litlu rellunni okk-
ar, TF-GUN, yfir veiðisvæðin með
útlendinga í útsýnisflugi á sama tíma
og þeir voru mjög hrifnir af landinu
okkar. Sjálfur hef ég veitt viða um
heiminn bæði fugla og dýr og reyni
líka að veiða hér heima þegar ég á frí.”
Það má því með sanni segja að líf Ás-
geirs snúist mikið um veiði og hann
tekur syni sína oft með á veiðar enda
áhugasamir með eindæmum. Geiri lif-
ir til að veiða.
Róbert Schmidt
Ánægður með villikalkúninn
Emil Már með tvo væna villikalkúna
í S-lllinois.
Með maríulaxinn ÁsgeirAtli með
maríulaxinn sinn, ellefu ára gamall, í
Djúpá ÍKöldukinn.
'emington
Skotveiðivörur
fást í næstu sportvöruverslun.
Innflutningur og dreifing: Veiðiland ehf.