blaðið - 07.09.2006, Page 1
Prívat persóna
„Það sem skiptir mig mestu er fyrst
og fremst fjölskyldan, heilsan og að
hafa góðar stoðir í kringum mig. Ég
er mjög prívat persóna, fer lítið út að
skemmta mér eða
á viðburöi,"
segir Elín
Hirst.
200. tölublað 2. árgangur
fímmtudagur
7. september 2006
■ FOLK
„Við leitum fyrst og fremst eftir
i því sem á erindi við samtímann,"
k segir Ása Briem
ÍV: ISÍÐA34
■ HEILSA
,Kraftganga er góð hreyfing
fyrir byrjendur,4' segir Árný
Helgadóttir
SÍÐA38
Ellilífeyrisþegar bera skarðan hlut frá borði:
Borga 60 prósent
af fjármagnstekjum
■ Lífeyrir lækkaður vegna sparnaðar ■ Forstjóri Tryggingastofnunar segir farið að lögum
Eftir Hðskuld Kðra Schram hoskuldur@bladid.net
Fjármagnstekjur eftirlaunaþega*af uppsöfnuðum
sparnaði skerða ellilífeyri ásamt því að tekin er af
honum hefðbundinn fjármagnstekjuskattur.
Ellilífeyrisþegi segir þetta hrópandi óréttlæti og
jafngilda því að ríkið taki um 60 prósent skatt af
fjármagnstekjum eldri borga á meðan aðrir borgi
aðeins 10 prósent. Formaður Félags eldri borgara í
Reykjavík segir kerfið koma í veg fyrir að fólk leggi
pening í sparnað. Forstjóri Tryggingastofnunar rík-
isins segir allar tekjur koma til skerðingar á lífeyri.
„Venjulegt fólk borgar aðeins 10 prósent af sínum
fjármagnstekjum en þegar kemur að ellilífeyris-
þegum hækkar skatturinn upp í 60 prósent,“ segir
Kolbrún Olgeirsdóttir ellilífeyrisþegi. „Þetta er
hrópandi óréttlæti og ég trúi því ekki að þetta sé
löglegt.“
Margrét Margeirsdóttir, formaður Félags eldri
borgara í Reykjavík, segir félaginu berast margar
fyrirspurnir vegna þessa. „Við heyrum heilmikið
af þessu og þetta skerðir mikið þær bætur sem fólk
er að fá.“
Að sögn Margrétar virðist kerfið vinna gegn þvi
að fólk leggi pening í sparnað á lífsleiðinni. Ríkið
hirði einfaldlega obbann af þeim sparnaði. „Ríkið
er eiginlega stærsti lífeyrisþeginn. Það tekur svo
mikið af sparnaði fólks."
Karl Steinar Guðnason, forstjóri Tryggingastofn-
unar ríkisins, segir lögin einfaldlega kveða á um
hlutirnir séu gerðir með þessum hætti. „Það koma
allar tekjur til skerðingar á bótum. Ef menn eru
ósáttir við lögin þá þarf að tala við þá sem setja
lögin.“
Sjá einnlg síðu 4
Evrópusambandiö
og íranir fresta fundi
Viðræðum á milli klerkastjórnarinnar
í (ran og fulltrúa Evrópusambandsins
(ESB) um kjarnorkudeilu Irana sem
áttu að fara fram í Vín í Austurríki í gær
var frestað.
Javier Solana, utanríkismálastjóri
ESB, hafði boðið Irönum til fundarins
til þess að veita þeim lokatækifæri til
þess að koma í veg fyrir að alþjóðasam-
félagið grípi til þvingunaraðgerða vegna
þess að klerkastjórnin neitar að láta af
auðgun úrans.
Ali Ashgar Soltanieh, erindreki Irana
hjá Alþjóöakjarnorkumálastofnuninni
(IAEA), sagði að báðir aðilar hefðu sam-
þykkt að fresta fundinum og að hann
gæti farið fram á morgun, föstudag.
FRÉTTIR » síða 6
œs
Stiklur á menntavegi Þessar hafnfirsku telpur skemmtu sér við það í blíðunni í gær að stikla á steinum í Tjörninni eftir skóla og byrðarnar á bakinu virtust ekki trufla þær við þá iðju.
Og eitthvert góðgæti i posa virðist standa fuglinum til boða á þessu síðsumri sem aldrei ætlar að slota.
LIFIÐ
» siða 44
Mögnuö afrafmögnuð
Patti Smith skemmti tónleika-
gestum vel á tónleikum
í Háskólabíói og lét að
því liggja að tónleikar
hennar yrðu árviss við-
burður á fslandi.
VEÐUR
Rigning
Skúrir vestanlands aö morgni
og rigning suðaustantil þegar
líður á daginn. Suðvestan 5 til
10 á suðvesturhorninu. Hiti 8
til 15 stig.
NAMSKEIÐ
Sérblað um
námskeiö fylgir
Blaðinu í dag
» síður 17-32
Nakinn á hótelherbergi
Tuttugu og þriggja ára gamall maður
var dæmdur í sextán mánaða fangelsi
í Burnley á Englandi í gær fyrir kynferð-
islega árás á stúlku undir lögaldri og
að hafa lokkað hana ti! sín í gegnum
Netið. Stúlkan var fjórtán ára gömul og
bjó í Burnley. Maðurinn er nafngreindur
í breskum fjölmiðlum og heitir Guðni
Snæbjörnsson.
Guðni kynntist stúlkunni í gegnum
Netið og var í sífelldum samskiptum
við hana á MSN-spjallrásinni og með
smáskilaboðum í síma. Hann hitti stúlk-
una þrisvar.
5.000 veikir hvern dag
Sé miðað við tölur Hagstofu Islands
eru tæplega 165 þúsund landsmenn
á vinnumarkaðinum og sé miðað við
tölur Vinnueftirlitsins má gera ráö fyrir
því að tæplega 5.000 séu veikir á degi
hverjum.
Kristinn Tómasson, yfirlæknir hjá Vinnu-
eftirliti ríkisins, segir algengast að fólk
sé frá í tvo til fjóra daga. „Meðaltals-
tölur hækka þegar langtímaveikindi
eru skoðuð, fara upp í fjögur prósent,”
segir Kristinn en bendir á að tölurnar
séu ekki fullkomnar. „Það vantar sam-
ræmda skráningu á þessu sviði. Einnig
er erfitt að gera samanburð við Norður-
lönd því þar eru veikindagreiðslur með
öðrum hætti en hér. Síðan er líka erfitt
að fá tölur frá einkafyrirtækjum því
þetta eru viðkvæmar samkeppnisupp-
lýsingar.” Kristinn segir ákveðinn hóp
starfsfólks ekki vera í aðstöðu til að
veikjast og því líklegt að meðaltalstölur
myndu hækka ef sá hópur hefði tæki-
færi til að taka sér frí.