blaðið - 07.09.2006, Qupperneq 17
blaöið
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 33
Réttindi og skyldur launþega
Mig setur hljóða, stéttabarátta á
íslandi hefur tekið stakkaskiptum
til hins verra.
Því komst ég að er ég hringdi í
Eflingu stéttafélag til að leita upp-
lýsinga um bréf sem skrifað var
til fyrirtækis sem tengist mér, þar
sem krafist var launa til handa
fyrrum starfsmanni fyrirtækisins
vegna veikinda hans eftir að hann
segir upp af öðrum ástæðum en
veikindum.
Málsatvik voru þau að starfs-
maðurinn sagði upp starfi sínu fyr-
irvarlaust og að eigin sögn vegna
flutninga til útlanda. Umræddur
starfsmaður gat ekki unnið út
uppsagnarfrestinn vegna anna
við að pakka búslóð sinni vegna
fararinnar. Laun voru gerð upp
við hann samkvæmt kjarasamn-
ingum Eflingar. Svo ber við að
starfsmaðurinn sendir fyrirtæk-
inu bréf mánuði eftir að hann
hættir ásamt læknisvottorði þar
sem hann fer fram á að fá greidd
veikindalaun í 3 mánuði vegnaveik-
inda en læknisvottorðið er gefið út
eftir að hann hættir störfum. Fyrir-
tækið hefur samband við Eflingu
segir frá aðstæðum og er boðist til
að senda umrætt læknisvottorð
ásamt uppgjöri sem er hafnað, en
fyrirtækið fær góðar og skýrar leið-
beiningar um hvernig svara eigi
þessu bréfi frá starfsmanni stétta-
félagsins. Var það meginmálið
að umræddur starfsmaður hafði
ekki sagt upp vegna veikinda né
beðið um flutning í starfi vegna
veikinda og ætti því ekki rétt á
launum í veikindum sem hann
var að glíma við eftir uppsögn
sína. Samkvæmt þessum leiðbein-
ingum er starfsmanninum svarað.
Svo ber við að það kemur bréf frá
Eflingu stéttafélagi þar sem kraf-
ist er að starfsmanni þessum séu
greidd laun í veikindum saman-
ber 8. kafla í kjarasamningum Efl-
ingar og Samtaka atvinnulífsins)
ef ekki, þá verði gripið til frekari
innheimtuaðgerða!
Ósvífin svör
Er þetta var borið undir mig hélt ég
að um einhvern misskilning væri að
ræða og hringdi í formann félagsins
og spurði hvort ekki hafi verið þarna
eitthvað sem ekki samræmdist samn-
ingum og/eða að Efling stéttafélag
sem áður hafi gefið leiðbeiningar til
handa fyrirtækinu um hver réttur
starfsmannsins sé eða hvort eitthvað
hafi komið fram sem ekki sé skýrt frá
því ekki sé farið fram á að fyrirtækið
skýri mál sitt og atvik málsins á móti
þeim kröfum sem stéttafélagið gerir
fyrir hönd skjólstæðings sinn. Þau
svör sem ég fékk eru nú varla prent-
hæf, og stóð ég agndofa yfir þeim
svörum sem þarna voru sett fram af
formanni Eflingar stéttafélags. Sneri
hann máli mínu upp í að ég væri að
ásaka starfsfólk félagsins um að fara
offari í starfi og að ég skyldi ekki
halda að þrátt fyrir gamlan kunn-
ingsskap minn við hann myndi hann
fella málið niður.
Sú var ekki krafan, heldur hélt ég
í sakleysi mínu að þarna hefðu verið
settar fram kröfur sem ekki voru
í samræmi við fyrri viðskipti fyrir-
tækisins við Eflingu og hægt væri
að leysa málið. Nei, alls ekki og hef
ég það á tilfinningunni að það væri
vegna tengsla minna við félagið (sem
felast í því að faðir minn, sem lést
árið 1997, var formaður Dagsbrúnar
verkalýðsfélags í mörg ár og vann
þar frá árinu 1952). Að vísu bauð for-
maður Eflingar upp á koma á fundi
með fyrrum starfsmanni fyrirtækis-
ins, Eflingu og forstjóra fyrirtækis-
ins sem ég hafnaði (umræddur starfs-
maður býr erlendis).
En sem fyrr segir var ég agndofa
yfir þessum svörum, lét smá tíma
líða til að jafna mig og ná dofanum
úr mér en hringdi þá í lögmann og
segi honum frá þessu símtali.Þá
Heggur sá er hlífa skyldi
Sólveig Guflmundsdóttir
upplýsir hann mig elskulega um
að viðtekin venja sé að senda svona
bréf þar sem eru settar fram kröfur
félagsmanna eins og þeir skýra félag-
inu frá þeim og er þá eingöngu tekið
tillit til frásagnar launþegans. Sendir
þá stéttafélagið Efling bréf til við-
komandi fyrirtækis með kröfum án
þess að félagsmaðurinn þurfi að sýna
fram á að þannig liggi í málinu (sem
kannski er ekki hægt).
Þá spyr ég: Er hag launþega þjónað
vel með þessum hætti? Verður það
ekki til þess að fyrirtæki geti ekki
treyst svörum starfsmanna stétta-
félags er þeir leita til þeirra vegna
krafna sem launþegar gera og sam-
ræmast ekki kjarasamningum? Ég
tel að starfsmenn stéttafélaga geti
gert mistök eins og starfsmenn og
eigendur fyrirtækja, en að stærsta
verkalýðsfélag landsins hafi ekki
í formannsstóli mann, sem getur
svarað kurteislega um að þetta sé við-
tekin venja, m.a. vegna þess að tími
sem launþegi hefur til að gera launa-
kröfur til fyrirtækis sé mjög stuttur.
En að bera fram órökstuddar full-
yrðingar við spyrjanda er mér alveg
óskiljanlegt.
Þótt liðinn sé sá tími, að maður
þekkti mann og gat leitað til hans
sakir kunningsskapar með spurn-
ingar og upplýsingar til að geta gert
rétt - í þessu tilfelli ég - er óskiljan-
legt af formanni Eflingar að líta svo
á að tilefnislausu að verið sé að fara
fram á að eitthvað sé fellt niður af rétt-
mætum kröfum launþega.
Margur heldur sig mig
Ég tel mig vita nokkuð um það
að misbrestur er á því að öll fyrir-
tæki standi sig í því að greiða rétt
laun sem og laun vegna veikinda
og er það miður að svo sé. En ég tel
að það hljóti að vera allra hagur að
stéttafélög og fyrirtæki vinni saman
að hagsmunum sínum og eðlilegra
væri að fyrirspurn til fyrirtækis um
hvernig staðið hafi verið að uppsögn
starfsmanna og hvort fyrirtækið hafi
hafnað áður sendum kröfum launa-
manns um laun, t.d. í veikindum og
þá séu fyrirtækinu sett tímatakmörk
með að svara því. Berist ekki svar frá
fyrirtækinu innan þess tíma þá sé
eðlilegt að tala um harðari aðgerðir.
Auðvitað getur óvart farið af stað
krafa sem einn starfsmaður hefur
þegar svarað, en annar ekki vitað um
en þá er venja í samskiptum manna
á milli að sá misskilningur sé leið-
réttur eða skýrt sé ffá að fleiri fletir
hafi komið upp í málinu.
En að formaður Eflingar stéttafé-
lags ásaki mann um óheiðarleika
þegar farið er fram með fyrirspurn
til að geta gert vel, er í mínum huga
sorglegt. Það er ekki þannig að öll
fyrirtæki fari illa með sína launþega
þótt að það sé því miður til, en það er
ekki gefið.
Réttur launþega á að vera skýr og
kynntur þeim. Ef launþegi telur sig
hafa verið hlunnfarinn í launum er
það réttur hans að leita aðstoðar stétta-
félags sem hann er í á hverjum tíma
en kröfur hans hlýtur að þurfa að rök-
styðja með greinum í kjarasamningi
hans og að upplýsingar starfsmanns
stéttafélagsins séu réttar til að allir
gangi sáttir frá borði ef upp kemur
misskilningur eða rangtúlkanir og
ef leiðréttinga er þörf.
Þetta getur ekki breyst í tímanna
rás hvað sem formaður Eflingar
stéttafélags heldur fram.
Höfundur erfulltrúi í Reykjavík.