blaðið - 07.09.2006, Page 20
36 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006
blaöiö
Lana Turner var ein af
kynbombum hvíta
tjaldsins. Einkalíf henn-
ar vakti yfirleitt meiri
athygli en leikur hennar,
enda átti hún sjö eigin-
menn, fjölda ástmanna og flæktist
í morðmál.
Lana fæddist árið 1921. Foreldr-
ar hennar skildu snemma og faðir
hennar var myrtur þegar Lana var
níu ára gömul. Ári seinna flutti
Lana til Los Angeles ásamt móður
sinni. Þegar hún var sextán ára göm-
ul var hún uppgötvuð af ritstjóra
Hollywood Reporter þar sem hún
var að kaupa kók í sjoppu. Hún
var umsvifalaust sett á kvikmynda-
samning og vakti mikla athygli fyr-
ir líkamsfegurð í fyrstu mynd sinni
They Won’t Forget árið 1937. Hún
naut þess að vera stjarna og lifði
hinu ljúfa lífi. Á skömmum tíma
öðlaðist hún nafnbótina „drottning
næturklúbbanna".
Lana naut mikilla vinsælda sem
kvikmyndastjarna á fimmta og
sjötta áratugnum. Hún þótti ekki
mikil leikkona en kom gagnrýnend-
um á óvart með góðum leik í hinni
klassísku kvikmynd The Postman
Always Rings Twice þar sem hún lék
á móti John Garfield. Seinna sýndi
hún jafngóðan leik í kvikmynd
Vincents Minellis, The Bad and
the Beautiful og Peyton Place þar
sem hún var tilnefnd til Óskarsverð-
launa fyrir leik sinn.
Viðburðaríkt einkalíf
Einkalíf Lönu var fjörugt og hún
eignaðist sjö eiginmenn og meðal
fjölmargra elskhuga hennar voru
Clark Gable og Howard Hughes. í
sjálfsævisögu sinni sagði hún að
stóra ástin í lífi sínu hefði verið leik-
arinn Tyrone Power en hann yfirgaf
hana til að giftast ungri leikkonu,
Lindu Christian.
Fyrsti eiginmaður hennar var
hljómsveitarstjórinn og klarínettu-
leikarinn Artie Shaw sem þótti einn
greindasti og víðlesnasti maðurinn
í Hollywood. „Lana var heimsk,“
sagði Ártie Shaw, „en ég kunni vel
við hana því það var ekkert illt til
í henni.“ Hjónaband þeirra stóð í
fjóra mánuði. Lana sagði seinna að
hjónabandinu hefði lokið þremur
dögum eftir hjónavígsluna en hún
hefði verið svo upptekin við kvik-
myndaupptökur að hún hefði ekki
haft tíma til að ræða sambúðarslit
við eiginmann sinn. Lana og Shaw
sáust þó oft saman eftir skilnað
þeirra og um tíma var talið að þau
myndu gifta sig á ný. „Það hvarflaði
að mér að giftast henni aftur,“ sagði
Shaw, „en svo fór ég að hugsa um
Bílaciukahlutir
í úrvoli
úmSTUnDRHUSIÐ
Tómstundahúslð,
Nethyl 2, síml 5870600,
www.tomstundahusld.ls
Minningarkort
Minningar- og styrktarsjóðs
hjartaskjúklinga
HjartaHeill
sími 552 5744
Gíró- og kreditkortþjónusta