blaðið - 07.09.2006, Side 21
blaðió
FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006 37
þessi hundrað skópör sem hún átti
og ég vissi að ég myndi ekki þola
hjónaband með henni í annað sinn.“
Ekki að eilífu
Næsti eiginmaður hennarvar veit-
ingahússeigandi, Stephen Crane, og
með honum átti hún dótturina Cher-
yl. Síðan giftist hún Bob Topping,
vellauðugum viðskiptajöfri. Þegar
hún sótti um skilnað frá honum
eftir tæplega fimm ára hjónaband
gaf hún sem ástæðu sjúklega af-
brýðisemi hans og sagði hann hafa
barið sig og tvisvar hótað að skjóta
hana. Þegar þau giftust hafði Lana
sagt við blaðamenn: „Þetta er að
eilífu.“ Eftir skilnaðinn stóð í einu
dagblaði: „Ný skilgreining á eilifð -
fjögur ár, sjö mánuðir, átján dagar,
nítján klukkustundir og tuttugu og
sex mínútur."
Sá fjórði í röð eiginmanna henn-
ar var Lex Barker sem ávann sér
nokkra frægð í kvikmyndum fyrir
að leika Tarzan. Þegar leikkonan
giftist honum lögðu nokkrir vinir
bennar hver um sig hundrað dollara
í pott í veðmáli um það hversu lengi
hjónabandið myndi standa. Þegar
hún komst að því að Barker hafði ít-
rekað nauðgað ungri dóttur hennar
gekk hún inn í svefnherbergi þeirra
þar sem hann lá uppi i rúmi, beindi
að honum byssu og sagði honum að
hypja sig burt. Hann var fljótur að
taka til fótanna.
Morð í Hollywood
Mesta ógæfa Lönu í lifinu var ást-
arsamband hennar við glæpamann-
inn Johnny Stompanato. Hann var
sjúklega afbrýðisamur, ofbeldisfull-
ur og stjórnsamur. Eitt sinn reyndi
hann að kyrkja Lönu og hótaði að
skera hana í andlitið með rakvélar-
blaði. Öðru sinni stormaði hann á
tökustað þar sem hún var að leika
í atriði á móti Sean Connery. Stomp-
anato sakaði Connery um að eiga í
ástarsambandi við Lönu og beindi
byssu að honum. Connery afvopn-
aði hann, lúskraði á honum og henti
honum á dyr.
Dag nokkurn kom Stompanato að
heimili Lönu og hótaði að skera and-
lit hennar og lama hana. Hann sagð-
ist ætla að gera það sama við móður
hennar og dóttur. Cheryl, fjórtán
ára gömul dóttir Lönu, hlustaði á
hótanir hans. Hún varð skelfingu
lostin, hljóp inn í eldhús, greip hníf
og hljóp til herbergis móður sinn-
ar þar sem Stompanato var enn að
hóta henni. „Þú þarft ekki að þola
þetta, mamma,“ sagði Cheryl um
leið og hún stakk hnífnum í kvið
Stompanato sem féll í gólfið. Hann
lést skömmu síðar af sárum sínum.
Þegar lögreglan kom á vettvang
grátbað Lana um að fá að taka á sig
sökina og vildi hlífa dóttur sinni við
erfiðum réttarhöldum. Eftir sögu-
leg réttarhöld var Cheryl sýknuð,
talin hafa framið morðið í tilfinn-
ingalegu uppnámi. Lana bar vitni í
dramatískum réttarhöldum og ein-
hverjir sögðu að þar hefði hún sýnt
bestan leik á ferli sínum. Hið virta
bandaríska skáld Frank O’Hara orti
ljóðið „Lana Turner Has Collapsed"
eftir að hafa séð forsíðumynd af
henni við réttarhöldin.
Cheryl, dóttir Lönu, var send í
skóla fyrir vandræðastúlkur og síð-
an á heilsuhæli þar sem hún var á
róandi lyfjum mestallan timann.
Seinna kom hún móður sinni i upp-
nám með þvi að lýsa því yfir opin-
berlega að hún væri lesbía. Lana tók
hana þó i sátt og sagði á efri árum
að sambýliskona Cheryl væri önnur
dóttir sin. Cheryl skrifaði bókina
Detour um æsku sína, móður sína
og morðið. Bókin kom út árið 1988
og vakti nokkra athygli.
Hrifin af strákunum
Eftir réttarhöldin umtöluðu var
leit Lönu Turner að ást ekki lokið og
hún fann eiginmann númer fimm,
f xr/iuirr U/cnf: LANA WEDS!
síðan kom númer sex og loks núm-
er sjö. Ekkert hjónabandanna varð
langlíft. Þegar Lana var eitt sinn
spurð um hin fjölmörgu ástarsam-
bönd sin sagði hún: „Ég var hrifin af
strákunum og strákarnir voru hrifn-
ir af mér.“
Vinir Lönu sögðu að helsti galli
hennar væri sá að hún horfði á lifið
eins og það væri kvikmynd þar sem
atburðarásin ætti stöðugt að halda
athyglinni og vera full af ævintýr-
um.
Síðustu árin dró hún sig út úr
sviðsljósinu og lést úr krabbameini
árið 1995, 74 ára gömul. Eignir henn-
ar skiptust á milli ráðskonu hennar
og dótturinnar Cheryl.
Vegna aukinna umsvifa í blaðadreifingu óskar
Morgunblaðið eftir að ráða fólk á öllum aldri í blaðburð
víða á höfuðborgarsvæðinu sem fyrst.
Blaðberi hjá Morgunblaðinu fær að meðaltali 30.915 kr. á mánuði fyrir
klukkustundar langan hressandi göngutúr.* Til viðbótar kemur
þungaálag og greiðslur fyrir aldreifingar tvisvar í viku.
Vinsamlegast hafið samband í síma 5691440 eða
sendið tölvupóst á netfangið bladberi@mbl.is.
*Miðað við að 65 eintökum af Morgunblaðinu sé dreift í 30 skipti.