blaðið - 07.09.2006, Blaðsíða 26
42 FIMMTUDAGUR 7. SEPTEMBER 2006
bladiA
konur Pekking og hæfni Á www.kvennaslodir.is er kvennagagnabanki sem inniheldur % upplýsingar um kvensérfræðinga á ýmsum sviðum. Markmiö kvennaslóða er að gera þekkingu og hæfni kvenna sýnilega
konur@bladid.net í; og aðgengilega. ’ M
Glæsilegt
kápuúrval
Sjáið sýnishorn á laxdal.is
r'jfl BlifíXIUM) I f j
•“ / I '/>//, jfl’ )
Laugavegi 63 • s: 551 4422
Umhverfis-
vænn bikar
Sífellt fleiri konur kjósa að nota
álfabikarinn frekar en dömubindi
eða tappa, bæði vegna hreinlætis,
þæginda og umhverfisverndar.
Álfabikarinn er lítill, margnota tíða-
bikar sem er gerður úr náttúrlegu
gúmmíi. Upprunalega kom álfabik-
arinn fram á sjónarsviðið í Ohio
í Bandaríkjunum þar sem konur
hófu að nota frumstæða útgáfu
hans um 1930. Skömmu síðar
hófst einnota byltingin og tappar
og dömubindi urðu aðgengileg
flestum konum. Álfabikarinn var
ekki dreginn aftur fram í dags-
Ijósið fyrr en snemma á sjöunda
áratugnum; hann var viðurkenndur
af bandaríska heilbrigðiseftirlitinu
árið 1987 og fékk verðlaun árið
1990 sem merkt framlag á sviði
umhverfismála.
Álfabikarinn getur tekið allt að 30
ml af tíðablóði og það má tæma
bikarinn á allt að 12 klukkustunda
fresti. Álfabikarinn er gerður úr
náttúrlegu gúmmíi og því kemst
líkaminn síður í snertingu við
hættuleg efni, trefjar eða viðbætt
efni sem finnast stundum í ýmsum
tegundum dömubinda og tappa.
Álfabikarinn má meðal annars fá
í versluninni Móðurást og á www.
femin.is.
Álfabikarinn
Hvað er Álfabikar?
■ Margnota gúmmíbikar sem tekur við tíðablóði og kemur
í stað dömubinda og tappa.
1 Hann er gerður úr 100% núttúrulegu gúmmíi,
1 Nú einnig úr sílikoni
1 Endingartími Álfabikarsins er 10 úr og ó honum er
þriggja mónaða skilafrestur ef konur af einhverjum óstæðum
geta ekki notað hann.
J HamrDborg7 S: 564 1451 www.modurast.is
Elín Hirst fréttastjóri
Er prívat persóna
Haft mikið fyrir þessari
stöðu Elín Hirst frétta-
stjóri: „Mér fannst ég þurfí
að hafa mikið fyrirþví að
komast íþessa stöðu en
ég hef ekki fundið fyrir því
að kyn mitt hafi skipt máli.
Mynd/Anna Pálma
Elín Hirst, fréttastjóri Sjón-
varpsins, er ein af þessum
konum sem aðrar taka sér
til fyrirmyndar enda mynd-
arleg og dugleg kona í góðri stöðu.
Ein af þeim sem virðist alltaf hafa
allt á hreinu. Sjálf segist hún hafa
mjög mikið að gera en starf hennar
sé samt sem áður mjög skemmtilegt.
„Ég hef dálítið frjálsar hendur því ég
á tvo uppkomna syni, annar er að
byrja í laganámi og hinn er að ljúka
menntaskóla. Ég veit ekki hvort ég
myndi treysta mér til að fara í gegn-
um svona pakka ef ég væri með ung
börn.“
Kyn mitt hefur ekki skipt máli
Elín Hirst segir að það hafi ekki
endilega verið auðvelt að komast í þá
stöðu í fjölmiðlum sem hún er í núna.
„Mér fannst ég þurfa að hafa mikið fyr-
ir því að komast í þessa stöðu en ég
hef ekki fundið fyrir því að kyn mitt
hafi skipt máli. Ég hef aldrei fundið
fyrir því að það sé tekið minna mark
á mér eða mínum störfum af því að ég
er kona. Ég hef heldur ekki fundið fyr-
ir því að það hafi hjálpað mér að vera
kona. En ég upplifi það heldur ekki
þannig að það hafi dregið úr mögu-
leikum mínum í lífinu. Enda skiptir
kyn mig engu máli þegar ég horfi á
mitt samstarfsfólk, einungis hvað ein-
staklingurinn getur og hvað hann er
tilbúinn að leggja af mörkum.“
Áreiðanleg fréttastofa
Elín hefur verið fréttastjóri í fjögur
ár og segist vera nokkuð ánægð með
gengi fréttastofunnar undir hennar
stjórn. „Ég tók við afar góðu búi og
góðu starfsliði en maður þarf allt-
af að passa að sækja fram og fylgja
þróuninni. Mér finnst okkur hafa
tekist mjög vel að ganga í takt og
við horfum til dæmis á áreiðanleika-
mælingar sem fara fram í íslenskum
fjölmiðlum árlega á vegum Gallup.
Fréttastofa Sjónvarpsins fær alltaf
hæstu einkunnina þar og við teljum
það vera mjög dýrmætt. Þau gæði
sem það endurspeglar er eitthvað
sem við viljum passa upp á að fari
ekki forgörðum heldur styrkist. Hinn
mælikvarðinn er áhorfið sjálft, hvað
séu margir að horfa en ekki hvað
þeim finnst. Við höfum sett markið
við 40% og höfum getað haldið okkur
um eða yfir 40% í áhorfi sem ég held
að sé mjög gott, sérstaklega miðað
við nágrannaþjóðir okkar.“
Strangar gæðakröfur
Elín talar um að starfið sé mjög
skemmtilegt þó það geti verið eilítið
stressandi. „Fréttastjóri Sjónvarpsins
er eiginlega á vakt allan ársins hring.
Það er mjög mikið áreiti heima en ég
hef hvatt samstarfsfólk mitt að hafa
samband ef það er með einhverjar
frekari spurningar. Ég hef því svolít-
ið kallað þetta yfir mig en mér finnst
skipta miklu máli að samstarfsmenn
okkar geti alltaf skotið máli sínu
til mín af því að við setjum okkur
mjög strangar gæðakröfur. Það þýðir
náttúrlega oft símtöl um helgar og á
kvöldin.11 Samt sem áður segist Elín
ekki vera á vakt allan sólarhringinn
en hún geti alltaf átt von á því að eitt-
hyað komi upp á. „En það þjakar mig
ekki neitt. Þaosem skiptir mig mestu
er fyrst og fremst fjölskyldan, heils-
an og að hafa góðar stoðir í kringum
mig. Ég er mjög prívat-persóna, fer lít-
ið út að skemmta mér eða á viðburði.
Ég forðast það eiginlega eins og heit-
an eldinn því mér finnst það taka svo
mikla orku ffá mér. Ég nota tímann
sem ég er ekki í vinnu til að hlaða
batteríin i mínu eigin umhverfi þar
sem ég hef töglin og hagldirnar. Þetta
heldur orkunni gangandi þannig að
ég geti framkvæmt það sem af mér er
ætlast.“
svanhvit@bladid.net
Útsölulok
Útsöluvörur kr. 1.000 - 2.000 - 3.000
r 0e//y'a/Yia/t, < ú/A/a/t//e/Y,
Háaleitisbraut 68, sími 553 3305.
onncu