blaðið - 21.10.2006, Side 18
18 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006
blaöiö
fr \
FRAMSOKNARFLOKKURINN
Framsóknarflokkurinn í Suðvesturkjördæmi auglýsir eftir framboðum
Hér með er auglýst eftir framboðum vegna vals á framboðslista
Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 2007.
Valið verður í 6 efstu sæti listans á tvöföldu kjördæmisþingi sem fram fer
þann 4. nóvember næstkomandi. Kosið verður um hvert sæti fýrir sig.
Framboðum skal skila í tölvupósti til formanns kjörnefndar,
haukur.ingibergsson@simnet.is, fýrir kl. 10:00 laugardaginn 28. október
2006. Frambjóðendur skulu gefa kost á sér í ákveðin sæti, eitt eða fleiri,
þegar þeir tilkynna um framboð sitt.
Kjörnefnd Framsóknarflokksins í Suðvesturkjördami.
V .... J
Fagleg ræsting
fyrirtækja
er bæði betri og ódýrari
Ertu tilbúin
fyrir veturinn?
Olpur og
útigallar í
miklu
úrvali
POLARN O. PYRET
Kringlunni - sími 5681822
www.polarnopyret.se
Hreinc
Auðbrekku 8, 200 Kópavogi, simi 554 6088, hreint@hreint.is, www.hreint.is
Illugi Jökulsson skrlíar um hlerunarmál
Dugar ekki að
„starta litlu stríði"
Mínir góðu vinir
í Sjálfstæðis-
flokknum virðast
því miður ætla að
fara þá leið í hlerun-
armálum sem bæði ég og aðrir
höfum þó varað þá við. Þeir ætla
sem sé að þumbast gegn því að
málið verði sett í allsherjar rann-
sókn á vegum Alþingis, segja það
hreinasta óþarfa, gera litið úr
málinu eftir mætti og flækja sig
þeim mun betur í kóngulóarvefi
fortíðarinnar. I stað þess að taka
þátt í að hefja þá allsherjar hrein-
gerningu sem hér á enn eftir að
fara fram eftir kaldastríðið. Og
líka á eftirhreytum þess sem
virðast hafa verið töluverðar, ef
marka má fullyrðingar um hler-
anir löngu eftir fall kommúnism-
ans fyrir austan.
Meira að segja sú „smjörklipu-
aðferð“ að „starta litlu stríði“
eins og Bandaríkjaforseti gerði
í kvikmyndinni Wag the Dog
þegar hann fór i ímyndað stríð
við Albaníu, hún mun ekki duga
Sjálfstæðisflokknum að þessu
sinni. Ég á að sjálfsögðu við hval-
veiðarnar sem virðist hafa verið
ákveðið að byrja á nær undirbún-
ingslaust. Og greinilega væri ætl-
ast til að við fylltumst eldmóði
og færum að veifa íslenskum
fánum.
En hvalveiðar eru einfaldlega
ekki nógu sannfærandi mál-
staður fyrir þjóðina að sameinast
um, svo hún gleymi öllu öðru.
Má okkur ekki vera hjartanlega
sama um prívathagsmuni Krist-
jáns Loftssonar? Aldrei hefur sá
maður gert neitt fyrir mig. Hví
skyldi ég þá vera viljugur til að
leggja æru íslands að veði bara
fyrir hann?
Nei, eftir því sem hlerunar-
málin verða flóknari og umfangs-
meiri og einkennilegri, þeim
mun nauðsynlegra verður að
upphefja almennilega rannsókn
á því frá upphafi til enda.
Snýst ekki um að senda
einhvern í fangelsi
Eins og Árni Páll Árnason og
fleiri hafa bent á, þá er áreiðan-
lega ekki rétta leiðin að hefja
sakamálarannsókn, þótt ég efist
ekki um að fyrir Boga Nilssyni
ríkissaksóknara vaki gott eitt.
En þetta mál snýst bara ekki
um hvort dæma eigi einhvern í
fangelsi, heldur snýst það miklu
frekar um að upplýsa ástand og
andrúmsloft í samfélaginu, bæði
fyrr og nú, og ekki síður að end-
urvekja traust og trúnað - sem
eru, eins og Pétur Gunnarsson
blaðamaður bendir á á bloggsíðu
sinni, „ekki bara einhver lög-
fræðileg hugtök". Og hreinlegast
hlýtur bara að vera að úkljá þessi
mál almennilega og í eitt skipti
fyrir öll.
Ég er nefnilega smeykur um að
málið verði bara enn óþægilegra
fyrir Sjálfstæðisflokkinn eftir
því sem lengra líður og hann
muni þurfa að ganga til kosn-
inga með stóra byrði á bakinu
ef svona heldur áfram. Því hvet
ég enn og aftur nýja valdamenn
í flokknum til að taka ráðin af
kaldastríðsmönnum og ganga í
að upplýsa málin.
Gallinn er náttúrlega sá að hér
er nánast engin hefð fyrir því að
Alþingi rannsaki mál sjálfstætt.
Og talsmenn framkvæmdavalds-
ins sjá alltaf alla meinbugi á því
að Alþingi efli sjálfstæði sitt. Við
gætum í þessu efni tekið okkur
Bandaríkjamenn til fyrirmyndar
þar sem drjúgur hluti af starfi
þingmanna felst í setu í rann-
sóknarnefndum sem oftar en
ekki hreinsa ærlega til í banda-
rísku samfélagi. Við þurfum á
slíku að halda, og æskilegt væri
ef rannsóknarnefndir þingsins
yrðu jafn sjálfsagt mál og í
Bandaríkjunum.
Fleiri mál þarf að upplýsa
Það þarf reyndar að upplýsa
wrnmm
Ég á að sjálfsögðu viö hval-
veióarnar sem viróist hafa
verið ákveöið að byrja á nœr
undirbúningslaust. Og greirii-
lega vceri œtlast til að við
fylltumst eldmóði og fœrum
aö veifa islenskum fánum.
Ágúst Ólafur Ágústsson ,,/Weð
þessu frumvarpi um rannsóknarnefndir
Alþingis sýnist mér hann enn vera á
réttrí leið. “
fleiri mikilvæg mál sem líka eru
ekki bara „einhver lögfræðileg
viðfangsefni“. Nefna má stuðn-
ing ríkisstjórnarinnar við Iraks-
stríðið, upphaf Baugsmálsins,
framgöngu stjórnvalda gagnvart
Falun Gong, ferli ákvarðana
við Kárahnjúkavirkjun, og ótal
margt fleira.
Reyndar liggur víst frumvarp
um rannsóknarnefndir nú þegar
fyrir Alþingi, flutt af Ágústi 01-
afi Ágústssyni. Svo maður hrósi
nú einhvern tíma einhverjum, þá
hefur sá ungi þingmaður flutt
furðu mörg góð mál á þinginu
(svo sem um afnám fyrningar
í málum barnaníðinga, um
heimilisofbeldi, verndun heimild-
armanna fjölmiðla o.fl.) og með
þessu frumvarpi um rannsókn-
arnefndir Alþingis sýnist mér
hann enn vera á réttri leið.
Að sönnu eru því miður litlar
líkur á að núverandi stjórnar-
flokkar sýni héðan af lit á að efla
rannsóknarhlutverkþingsins, en
það stendur þá upp á stjórnarand-
stöðuna að sameinast um þetta
frumvarp Ágústs og heita því
hátíðlega að gera það að lögum,
komist þeir í ríkisstjórn. Ég hygg
að fáar einstakar ráðstafanir
yrðu áhrifaríkari til að bæta
og opna íslenskt stjórnkerfi og
samfélag.
Kristján Loftsson „Hvískyldi ég vera
fyrirhann?"
til að leggja æru Islands að veði bara