blaðið - 21.10.2006, Side 20
20 LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006
blaðið
fólk
folk@bladid.net
HVAÐ FINNST ÞÉR?
Var myndin betri
en bókin?
„Ég er ekki dómbaer á það."
Arnaldur Indriðason,
rithöfundur
Mýrin, kvikmynd byggð á samnefndri skáldsögu
Arnaldar Indriðasonar, var frumsýnd í vikunni.
■ FriAtirinn minn
Finnur friðinn á æskuslóðum
HEYRST HEFUR...
Tónlistarblaðamaðurinn
góðkunni, David Fricke
var i miklu stuði á tónleikum
Mugison á Airwaves á fimmtu-
dagskvöld.
David er
heimsþekktur
fyrir störf sín
fyrir tímaritið
Rolling Stone
og þekktur á
Islandi fyrir
dálæti sitt á
hljómsveitinni
Jakobínurínu.
Oft mátti sjá hann taka andköf
yfir snilld Mugi og fengu félagar
hans oft að heyra góð orð um
snillinginnn frá Isafirði. Mugi-
son talaði um á tónleikunum
að ef einhver ríkur útgáfujöfur
væri á svæðinu mætti hann tala
við sig, ljóst er að sá draumur
ætti ekki að vera fjarlægur ef
David Fricke var eins ánægður
og hann virtist, en eins og fram
hefur komið var Jakobínarina
ekki lengi að landa samningi
við Rough Trade-útgáfuna
brésku eftir að falleg ummæli
eftir Fricke birtust um þá á
síðum Rolling Stone.
A /T argir velta vöngum þessa
IVidagana yfir því hver verði
ráðinn í eftirsótta stöðu rektors
Háskólans í Reykjavík og mikill
spenningur er í háskólasamfé-
laginu. En eins og kunnugt er
hefur Guðfinna Bjarnadóttir
rektor Háskólans í Reykjavík
tekið sér launalaust leyfi á
meðan að hún keppir í prófkjöri
Sjálfstæðis-
flokksins í
Reykjavík.
Ráðningar-
ferlið mun
ekki hefjast
fyrr en
prófkjöri er
lokið. Heyrst
hefur innan
háskólasamfé-
lagsins sem utan að jafnvel komi
til greina að ráða í embættið
erlendis frá en það væri nýlunda.
„Ég sæki hann annars vegar í nátt-
úruna og hins vegar í samskiptum
við manneskjur,“ segir Hildur Eir
Bolladóttir, prestur, aðspurð hvert
hún sæki til að finna friðinn. „Guð
býr í manneskjum og í náttúrunni
og þess vegna löðumst við að hvoru
tveggja.”
Hildur Eir segist alltaf hafa haft
þörf fyrir að vera innan um annað
fólk og þörf fyrir að komast reglu-
lega út í náttúruna. „Ég sæki mikið í
Laufás við Eyjafjörð. Þar er ég fædd
og uppalin og að mínu mati er það
fallegasti staður í veröldinni. Ég fer
einnig oft í Mývatnssveit, Vatnaskóg
og Þingvelli þar sem er að finna feg-
urð, kyrrð og heilagleika. Það besta
sem ég veit er að fara á þessa staði
með þeim sem mér þykir vænt um
og næ þannig að sameina þetta
tvennt.“
Að sögn Hildar Eirar verður fólk
meira einmana í hraða þéttbýlisins
og með aukinni þéttbýlismyndun.
,,Þess vegna höfum við sífellt meiri
þörf fyrir samskiptum við annað
fólk. Við höfum alltof mikil sam-
skipti í gegnum tölvur og í gegnum
síma. Við þurfum að hittast meira
og vera í snertingu og návígi við fólk.
Við megum ekki leyfa samskipt-
unum að þróast yfir í einvörðungu
tölvur og síma.“
Hildur Eir segist einnig leita og
finna friðinn í helgihaldi kirkjunnar.
„Enginn er yfir annan hafinn í samfé-
lagi kirkjunnar og allir koma þangað
á sömu forsendum. í dag byggist sam-
félagið svo mikið upp á völdum og
valdapíramída og það felst friður og
afslöppun í því að vita að við erum
öll saman á sömu forsendum.“
Landsmót æskulýðsfélaga þjóð-
kirkjunnar fer fram í Vatnaskógi um
helgina og er Hildur Eir einn móts-
stjóra. „Þar koma saman fjórtan
og fimmtán ára unglingar hvaðan-
æva af landinu. Mótið er haldið á
ári hverju þar sem við eyðum helgi
saman. Um þrjú hundruð unglingar
safnast þar saman og eiga innihalds-
rík samskipti án nokkurra vímu-
gjafa. Nokkrir einstaklingar koma
og munu miðla af sinni lífsreynslu,
svo sem Freyja Haraldsdóttir, en á
dagskránni eru ýmiss konar fræðsla,
leikir og skemmtun."
Hildur Eir segir að á mótinu
verði rætt við unglingana um al-
vöru lífsgildi. „Spjallað verður við
unglingana um að lifa við stríð
og við frið og að lifa fullfrískur og
fatlaður. Þá verður rætt við þá um
samkynhneigð, að vera innflytjandi
á íslandi og að frelsast úr fjötrum
fíknar. Metþátttaka er og verður
nóg að gera á mótinu. Þetta sýnir
það að boðskapur Jesú Krists á alltaf
erindi á öllum tímurn."
atlii@bladid.net
Hvað bar hæst
í vikunni?
Guðrún Helgadóttir,
rithöfundur
tli það séu ekki þessar
tilgangslausu hvalveiðar
og hlægilegu hlerunarmál. Svo
vakti það óneitanlega athygli
mína það sem fram kom í
vikunni á ráðstefnu hér í bæ
hvað strákar lesa lítið núorðið.
Ég er ekki í nokkrum vafa
um að íþróttafélögin eiga þar
einhverja sök, þó að ágætt sé
að börnin stundi íþróttir.£g
hef slegið því fram hvort að
ekki væri hægt að gera sátt við
íþróttafélögin og koma til móts
við bóklestur barna með því að
ein íþróttastjarna minntist á
það stöku sinnum að hún læsi
bók öðru hverju.
Páll Óskar Hjálmtýsson,
tónlistarmaður
Eg varð mjög hlessa þegar ég
las blöðin í vikunni að búið
væri að gefa grænt ljós á hval-
veiðar án nokkurs undanfara.
Þetta var svolítil blaut tuska
framan í mann, enda mætti
skoða slík mál frá fleiri hliðum
áður en græna ljósið er gefið.
Hjá sjálfum mér báru áheyrn-
arprufur X-Faktor í Reykjavík
hæst. Við vorum sérstaklega
ánægð með viðtökurnar og
hve margir góðir söngvarar
komu. Það er náttúrulega búið
að kemba landið þrjú ár í röð
af yngri krökkum, en í þennan
þátt mætti eldra fólk sem sýndi
það og sannaði að það er heill
hellingur af óuppgötvuðu hæfi-
leikafólki á landinu.
Ólafur Helgi Kjartansson,
sýslumaður á Selfossi
Að við skyldum hefja hval-
veiðar með svo snöggum
hætti og raun bar vitni vakti
mesta athygli mína þessa
vikuna. Ég er þeirrar skoðunar
að menn eigi að fá að nýta þær
auðlindir sem þeir hafa með
skynsamlegum hætti. Það er
náttúrulega augljóst mál að
ekki eru allir sammála okkur
og þessa stundina velti ég því
fyrir mér hverjar afleiðing-
arnar verða af þessum veiðum.
SU DOKU talnaþraut
Lausn síðustu gátu:
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum
frá 1-9 lárétt og lóðrétt í reitina, þannig
að hvertala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða
lóðrétt. Sömu tölu má aukin heldur
aðeins nota einu sinni innan hvers níu
reita fylkis. Unnt er að leysa þrautina út
frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
Gáta dagsins:
1 4 6 3 5
5 2 9 3
8 3 7 4
9 3 7
6 8 3 4
4 8 6
9 2
9 5 4 8
2 7 6
4 2 7 8 6 9 5 3 1
8 3 5 1 7 4 9 2 6
9 6 1 2 5 3 7 4 8
5 7 9 3 8 2 1 6 4
6 1 2 7 4 S 3 8 9
3 4 8 6 9 1 2 5 7
7 5 3 4 1 8 6 9 2
1 9 4 5 2 6 8 7 3
2 8 6 9 3 7 4 1 5
eftir Jim Unger
Hann Sæmundur hér er sko
besti kennarinn okkar.