blaðið - 21.10.2006, Blaðsíða 23
blaðið
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006 23
Opinn fyrirlestur
Á mánudag kl 17 heldur Katrín Pétursdóttir vöruhönnuður opinn fyrirlestur í LHI Skipholti,
stofu 113. Síðast liðinn áratug hefur Katrín þróað myndmál, en í því birtist áhugi hennar á
fígúrum, teiknimyndum, náttúrunni, formfræði og fantasíu. Verkefnið lýsir fjölbreytileika
sjónlista. Það fjallar um tengslin og mörkin milli hönnunar, íþrótta, tísku og lista
Sion sivmsæll
i
Sjón hefur getið sér gott orð vlða um lönd fyrir bækur sínar og virð
ist ekkert lát vera þar á en í vikunni var samið við breskt forlag um
útgáfurétt á Skugga-Baldri. Argóarflísin hefur einnig nýlega verið
seld til Noregs og Finnlands þannig að sigurgangan heldur áfram.
Á fóninn
Allir þekkja
þessa
töfrandi
tóna. Tíma-
mótaverk
sem klikkar
aldrei. Miles
Davis sendi
frá sér plöt-
una, Kind of
Blue árið 1959 og hún hefur svo
sannarlega elst vel.
Ljúfsár andblær
Kanadíski
píanóleikar-
inn Angela
Hewitt er ný-
flogin héðan
af landi
brott en hún
hélt tvenna
tónleika í
Salnum í Kópavogi I vikunni við
mikinn fögnuð. Hún þykir hafa
einstakt lag á hljómborðsverkum
Bach og hefur hún nú nýlega lokið
við að hljóðrita þau öll. Goldberg-
tilbrigðin eru tilvalin til hlustunar á
haustdögum.
Töfrandi barokk
Ást fyrir alla
Allir þekkja
John Coltr-
ane að góðu
einu. Platan
A Love Supr-
eme kom
út 1964 en
getur svo
sannarlega
enn fengið hárin til að rísa á harð-
svíruðustu sálum. Yndisleg plata
sem tónar vel við fallandi lauf og
rauðvínsglas.
Endalok
Aðdáendur sovéskra kvikmynda
ættu að gera sér ferð í MlR salinn,
Hverfisgötu 105, á morgun en þá
verður sýnt meistarastykki Vse-
volds Púdovkín, Endalok Sankti
Pétursborgar, frá árinu 1927.
I byltingunni gerðist Púdovkín einn
af stofnendum starfshóps Lévs
Kúleshovs við kvikmyndaskóla
Sankti Pétursborgar
ríkisins og lék í nokkrum mynda
hans um miðjan þriðja áratug ald-
arinnar. Árið 1925 leikstýrði hann
sinni fyrstu kvikmynd og á næstu
árum gerði hann sínar þekktustu
myndir. Höfundareinkenni Púdvkín
þykja koma einstaklega vel fram í
Endalokum Sankti Pétursborgar en
í myndinni segir af sveitapilti sem
heldurtil Pétursborg í leit að vinnu.
Pilturinn lendir í hringiðu sögunnar
og fylgist með áhlaupi bolshevika
á Vetrarhöllina. Nafn Púdovkín er
oft nefnt um leið og nafn Eisen-
steins en báðir lögðu þeir mikið af
mörkum til gullaldar þriðja áratugar-
ins í kvikmyndum. Sýningin hefst kl
15 og er aðgangur ókeypis.
Ljúffengt Gordon Bleu tilbúiö á 10 mínútum
Listamannaspjall
i Listasafni ASI
Á morgun kl 15.00 er boðið upp á
listamannaspjall í Listasafni ASÍ
en þar mun Pétur örn Friðriksson
fjalla um sýningu sína Halkíon. Á
sýningunni eru ný og eldri verk;
farartæki, fyrirbæramódel og
landhermar. Elstu verkin eru
15 ára, og þau sem eru ný eru
byggð á eldri verkum og sýn-
ingum. Þessi endurvinnsla kemur
til vegna eðli frásagnarinnar og
ferðalagsins.
Þetta er níunda einkasýning
Péturs sem byggð er á sama
grunni og hafa tengd verk verið
á nokkrum samsýningum. Pétur
örn útskrifaðist úr Myndlista- og
handíðaskóla Islands 1990 og
AKI, Akademie voor Kunst en
Industrie 1994. Hann hefurtekið
þátt í um það bil 100 sýningum
af ýmsum gerðum. Undanfarin
ár hefur hann verið helmingur
Markmiðs sem sýnt hefur ellefu
sinnum.
EINFALT OG GOTT- NÝTTU TÍMANN VEL