blaðið - 21.10.2006, Page 30
3 0 LAUGARDAGUR 21.OKTÓBER2006
blaðið
Innbrot í dómsmála-
g -g T'h n ÁRIÐ 1946 BRUTUST TVEIR MENN INN
cl Ltl 1 %z V LIIJ í DÓMSMÁLARÁÐUNEYTIÐ SEM ÞÁ
J VAR TIL HÚSA (STJÓRNARRÁÐINU
C
.o
Q) t3
D
OT3
-C <D
co oz
Tveir félagar sem hafa fallið undir skil-
greininguna „góðkunningjar lögreglunnar'
voru á kenderíi vorið 1946. Komið var laust
fram yfir miðnætti og þeir voru á gangi
í miðbæ Reykjavíkur. Þeir gengu í átt að
Hverfisgötu og þegar þeir gengu fram hjá
stjórnarráðshúsinu tók annar þeirra, Hauk-
ur Jakobsson, upp á því að fara að húsinu.
Hinn, Magnús Guðmundsson, elti. Þar sem
þeir stóðu við bakdyr hússins sló Haukur í
eina rúðuna með olnboga svo rúðan brotn-
aði. Hann náði að teygja sig að smekklásn-
um og opna hurðina. Þeir félagar höfðu ekki
rætt um að brjótast inn.
Ólæstur peningaskápur
Haukur fór inn í stjórnarráðshúsið og gekk
rólega upp á aðra hæð. Magnús fylgdi á eftir.
Þeir komu að dyrunum að skrifstofu dóms-
málaráðuneytisins. Haukur hikaði ekki;
hafði uppi sömu aðferð og við bakdyrnar og
komst inn á skrifstofuna. Þegar þeir voru
komnir inn sáu þeir hvar stór peningaskápur
stóð opinn. Starfsfólkinu hafði láðst að læsa
honum þegar það fór heim til vinnu.
Þeir litu í skápinn og sáu þar meðal annars
læstan peningakassa. Þeir vissu eðlilega ekki
hvað var í kassanum en Haukur taldi að þar
væru peningar og það svo skipti þúsundum
króna.
Peningunum skipt
Eftir að hafa tekið kassann úr skápnum
flýttu þeir sér sem mest þeir máttu og stopp-
uðu ekki fyrr en þeir voru komnir í bragga
við Sundlaugaveg. Þar svaf félagi þeirra Stein-
grímur Hannesson sem vaknaði þegar Hauk-
ur og Magnús komu inn í braggann. Þeir tóku
að spenna upp kassann. Steingrímur hjálpaði
þeim við það. I kassanum voru nærri fimm
þúsund krónur í peningum og auk þess ávís-
anir og fleiri pappírar sem þeir tóku ekki úr
kassanum. Kassann settu þeir svo í poka og
fóru með hann og hentu í sjóinn.
Þeir skiptu næst peningunum á milli sin
en ekki jafnt. Steingrímur fékk minnst.
Með nóga peninga tóku þeir til við að
drekka. Þegar þeir loks voru handteknir áttu
þeir samtals rúmar 500 krónur, öðru höfðu
þeir eytt í drykkjuslark. Steingrímur benti
lögreglu á hvar þeir höfðu kastað peninga-
kassanum og fannst hann ásamt því sem eftir
var af innihaldi hans.
Dómurinn
Dómsmálaráðuneytið gerði kröfu um að
þremenningarnir endurgreiddu 4.406 krón-
ur og var tekið tillit til þess í dómnum.
Allir höfðu þeir félagarnir áður komist
i kast við lögin. Haukur hafði ýmist verið
kærður eða dæmdur fimmtíu og tvisvar
á þrettán árum, oftast sökum ölvunar á
almannafæri. Magnús hafði verið kærður
eða dæmdur þrjátíu sinnum á fjórtán árum
og Steingrímur tuttugu og fimm sinnum á
sex árum.
I aukarétti Reykjavíkur voru Haukur og
Magnús dæmdir í tveggja ára fangelsi og
Steingrímur í átján mánaða fangelsi. Hæsti-
réttur staðfesti dóminn að því undanskildu
að refsing Hauks var þyngd úr tveggja ára
fangelsi i tveggja og hálfs árs fangelsi.
Haukur fór inn í stjórnarráðshúsið og gekk rólega upp á
aðra hæö. Magnús fylgdi á eftir. Þegar þeir voru komn-
ir upp á aöra hæð komu þeir að dyrunum að skrifstofu
dómsmálaráóuneytisins.
p&utiax K1ÍOÉJ 3í kmmin!
Alvöru DSLR vél - hlaöinn búnaöi. Vélin er meö nýrri Pentax
hristivörn (SR), sem hristiver flöguna, þannig aö ekki þarf að
kauga hristivörnina í hverri linsu.
Auk SR kerfisins sem færir flöguna eldsnöggt til að vinna
móti hreyfingu, þá er vélin meö hárnákvæman og
leiftursnöggan, sjálvirkan 11 punkta SAFOX V7//fókus og
sjálfvirka Ijósnæmisstillingu (16 hluta Ijósmæling). Vélin er
meö marga auðnotanlega tökuhætti, 2,5 tommu (210.000 díla)
skjá, bjartan Pentax spegil glugga með 0,85X stækkun ofl. ofl.
K100D er fyrir bæöi venjulega, sem og reynslu meiri
Ijósmyndara.
Einstakt verö
Pentax K100D meö Pentax DA 18-55mm linsu, á kr. 74.900!
Pentax K100D meö Pentax DA 18-55mm og
Pentax DA 50-200mm linsum á kr. 97.500!
Nánari upplýsingar á www.ljosmyndavorur.is
Skipholti 31, sími 568-0450 Ijosmyndavorur.is