blaðið - 21.10.2006, Qupperneq 41
blaðið
LAUGARDAGUR 21. OKTÓBER 2006 41
Án lyfseðils:
Góðlátlegt læknagrín
„Þar er að finna gamansögur sem
hafa það sammerkt að vera tengdar
heilbrigðiskerfinu og sérstaklega
því sem kemur út úr samskiptum
lækna og þeirra sem til þeirra leita,“
segir Bjarni Jónasson, heimilis-
læknir í Garðabæ og höfundur bók-
arinnar Án lyfseðils. „Það er ekki
sjaldan sem það er mjög skondið og
skemmtilegt hvernig þau samskipti
spilast út.“
í bókinni er að finna valdar sögur
sem birtust í Broshorni Læknablaðs-
ins frá byrjun árs 2000 til loka árs
2005. Bjarni segir af nægu að taka
innan læknageirans þegar hann
leitaði að efni í pistla sína. „Það
er reyndar óþrjótandi. Sumar sög-
urnar eru sannar, sumar næstum
því sannar og aðrar þýddar og stað-
færðar. Rauði þráðurinn er að þetta
er mjög góðlátlegt. Þetta er uppbyggi-
legur húmor og ekki er verið að gera
grín að eða særa neinn. Verið er að
hlæja með en ekki að fólki.“
Allur ágóði af sölu bókarinnar
mun renna óskiptur til styrktar
Minningarsjóði hjónanna Helgu Jón-
asdóttur og Bjarna Snæbjörnssonar,
læknis í Hafnarfirði, sem hefur það
að markmiði að hlúa að hafnfirskri
æsku. „Þegar til kom að þetta yrði
birt var það nú eitt af því sem vakti
fyrir mér að fleiri fengju að njóta,‘
segir Bjarni.
Brot úr bókinni
Án lyfseðils:
Gamall maður kom til læknis
og sagði áhyggjufullur:
„Heyrðu Tómas læknir, þú
verður að lækka kyngetuna hjá
mér.“
Tómas var alls óviðbúinn þess-
ari ósk mannsins en vildi vera
viss um að hann hefði heyrt rétt.
„Hvað segirðu, viltu að ég lækki
kyngetuna þina?“
„Já, nákvæmlega,“ sagði sá
gamli, „hún er öll í hausnum
á mér og ég verð að ná henni
niður.“
Eg er með góðar fréttir," sagði
læknirinn við sjúklinginn,
„en ég er einnig með slæmar
fréttir."
„Leyfðu mér fyrir alla muni
að heyra góðu fréttirnar fyrst,“
sagði sjúklingurinn.
„Það verður sérstakur sjúk-
dómur nefndur eftir þér.“
Sjúklingurinn var orðinn lang-
þrey ttur á þjónustu spítalans
og kvartaði við lækninn. „Ég
hata þennan stað,“ sagði mað-
urinn. „Það er alltaf farið með
mann eins og hund.“ '
„Það er ekki rétt“ sagði lækn-
irinn. „Svona, veltu þér nú á
bakið.“
HREYFI GREINING
® Fagleg heilsurækt
® Frábær aöstaða
® Frábær lífsstílsnámskeiö
® Frábær staðsetning
Arangur, ánægja
og línurnar í lag
Viltu laga línurnar?
Hreyfigreining Höfabakka býður frábæra aðstöðu til líkamsræktar og
sjúkraþjálfunar. Öll þjálfun er unnin af fagfólki. (átaksnámskeiðum er innifallinn
aðgangur að opnum tímum og tækjasal, tími með þjálfara í tækjasal, fitumælingar
og þrekpróf, regluleg vigtun, matardagbók og hreyfingardagbók.
Líkamsrækt
Frábær aðstaða fyrir þá sem vilja æfa á eigin vegum á þægilegum stað.
Hvað segir fólkið sem notar þjónustuna:
Ný námskeið hefjast
I formi til framtíðar
Bókanir eru hafnar í þessi vinsælu aðhalds-
og lífsstílsnámskeið fyrir konur.
Bæði fyrir byrjendur og framhaldsnámskeið.
Bumban burt
Ný námskeið að hefjast, bókanir standa yfir.
Móðir og barn
Golffimi - Ný námskeið hefjast í janúar.
Dans
Jóga flæði
Skynsamlegasta ákvörðun
sem ég tók á árinu var að
byrja á átaksnámskeiði hjá
Hreyfigreiningu. Mæli heils-
hugar með þessu frábæra
námskeiði fyrir þá sem hafa
átt erfitt með að koma sér
afstaö í likamsrækt og temja
sér nýjan lifsstil.
Leiðbeinendur eru frábært
fagfólk.
Áslaug Guðmundardóttir
Frábært námskeið, hjá
frábæru fólki, á frábærum
stað. I formi til framtiðar er
námskeið sem ég get hik-
laust mælt með. Þetta nám-
skeið er hnitmiðað þar sem
eingöngu fagfólk sér um
þjálfun og fræðslu þannig
að árangurinn skilarsér.
Sú þekking og sá árangur
sem fékkst á námskeiðinu á
örugglega eftir að nýtast mér
í framtíöinni.
Steinunn Ósk Konráðsdóttir
Þegar ég ákvað að fara í átak
og hreyfa mig reglulega varð
Hreyfigreining fyrir valinu.
Nokkur atriöi skiptu máli
þegar ég varað velja. Ég vildi
ekki æfa i stórri stöð þar sem
er mjög margt fólk og mikill
hávaði. Ég vildi lika fara á
lokað námskeið þar sem
sami hópurinn æfir alltaf
saman undir leiðsögn
menntaðra kennara.
Ég er mjög ánægð með
árangurinn og mun
örugglega halda áfram að
æfa i Hreyfigreiningu.
Skoðið stundaskrá á
www.hreyfigreining.is
Anna Berglind Þorsteinsdóttir
HREYFI GREINING
Höfðabakka 9
H Ð A B A K K A
Simi: 511-1575 www.hreyfigreining.is