blaðið - 21.10.2006, Page 44
4 4 LAUGARDAGUR 21.OKTÓBER2006
blaðið
/T
helgin
helqin@bla
lgin@bladid.net
Rússneskt diskó
Rússneskt diskókvöld verður á Café Cultura í kvöld.
DJ Sergey spilar endurútgáfur af sovéskri og nútima
rússneskri tónlist. Rússneskar veitingar í boði.
Menningardagur i kirkjum í Kjalarnesprófastsdæmi
Frá rokki til sálmasöngs
Það ætti engum að leiðast
í kirkju á morgun, að
minnsta kosti ekki í Kjal-
arnesprófastsdæmi því
að þar verður efnt til fjöl-
breyttrar menningardagskrár í ein-
um 19 kirkjum og einu íþróttahúsi.
Bubbi Morthens, Rúnar Júliusson,
Ellen Kristjánsdóttir, Andri Snær
Magnason og Diddú eru í hópi fjöl-
margra listamanna sem taka þátt í
dagskránni.
Kristín Þórunn Tómasdóttir hér-
aðsprestur í Kjalarnesprófastsdæmi
segir að þessi dagur hafi verið hald-
inn síðastliðinn þrjú ár á Suðurnesj-
um að frumkvæði Ferðamálaráðs
Suðurnesja og kirknanna á svæð-
inu.
Hægt að fara á milli staða
„Þar hefur verið boðið upp á hring-
ferð og er dagskráin miðuð við að
fólk geti byrjað í einni kirkju um
morguninn og fikrað sig síðan á
milli staða. Dagskráin hefur alltaf
tekið mið af sögulegu og menningar-
legu samhengi hvers staðar fyrir sig.
Bubbi á trúarlegum nótum Bubbi Morthens sýnirá sérnýja hlið þegarhann flytur frumsamda sáima í Reynivalla-
kirkju á morgun kl. 15:30.
undirsvæði og hugmyndin er sú að
innan hvers svæðis geti maður farið
á milli og notið þess þannig. Síðan
verður ein lokasamvera fyrir allt
svæðið kl. 20 um kvöldið í Keflavík,"
segir Kristín.
Bubbi syngursálma
Dagskrá hvers svæðis fyrir sig má
nálgast á vefsíðunni kjalarpr.is en
meðal annars mun Rúnar Júlíusson
rokka í Ytri-Njarðvíkurkirkju, Þór-
unn Valdimarsdóttir les úr nýrri
bók sinni um Matthías Jochumsson
í Brautarholtskirkju, Diddú syngur
lög við ljóð Nóbelskáldsins í Mos-
fellskirkju og Bubbi Morthens flyt-
ur frumsamda sálma í Reynivalla-
kirkju.
„Ég veit ekki hvort hann hyggist
gefa þá út en það verður gaman að
sjá hvort það verði grundvöllur fyr-
ir því. Bubbi var mikið í Kjósinni
sem barn og það er hans tenging við
Reynivelli,“ segir Kristín en marg-
ir listamannanna sem fram koma
tengjast stöðunum á einhvern hátt
auk þess sem tónlistarmenn úr hér-
aði svo sem kórar og organistar taka
virkan þátt í dagskránni.
Diddú og Laxness Diddú syngur
lög við texta Nóbelskáldsins í Mos-
fellskirkju kl. 11:15.
Á Hvalsnesi þar sem Hallgrímur
Pétursson þjónaði kom til dæmis Meg-
as í fyrra og flutti sína tónlist við Pass-
íusálma Hallgríms og það var náttúr-
lega troðfullt þar,“ segir Kristín.
Að sögn Kristínar hefur dagskrá-
in á Suðurnesjum alltaf verið vel
sótt og í ár hafi verið ákveðið að
reyna þetta í öllum kirkjum pró-
fastsdæmisins sem nær frá Kjós út
á Suðurnes.
„Við skiptum svæðinu upp í þrjú
EINU
SINNI
ENN
EINLEIKUR EDDU BJÖRGVINSDÓTTUR ÞRIÐJA LEIKÁRIÐ I RÖÐ.
130 SÝNINGAR OG YFIR 20 ÞÚSUND GESTIR.
AÐEINS FJÓRAR SÝNINGAR 26/10, 2/11, 9/11, 16/11
BORGARLEIKHÚSIÐ
Asta R.
áfram
sæti
Kosningamiðstöð
Bankastræti 11
Sími 534 9498
arj@althingi.is
www.althingi.is/arj
Prófkjör
11. nóvember
Kosningamiöstöð Ástu R. Jóhannesdóttur
Bankastræti 11 verður opnuð í dag kl. 13.
Skoppa og Skrítla skemmta börnunum.
Ljóðalestur. Karlakór Reykjavíkur syngur.
Veitingar - allir velkomnir!
Hellar á Þingvöllum Fólki gefst
tækifæri til að kynna sér undraheim
hella á Þingvöllum á morgun.
Hellaskoðun
á Þingvöllum
Ferðafélag íslands og Þjóðgarður-
inn á Þingvöllum standa fyrir skoð-
unarferð um hella í þjóðgarðinum
á morgun sunnudag. Þátttaka er
ókeypis og er mæting kl. 11 við Þjón-
ustumiðstöðina.
„Það eru 40-50 hellar á svæðinu
og ég vel helli sem hentar hópnum,"
segir Björn Hróarsson fararstjóri.
„Ef ég er með lítinn og harðsnúinn
hóp vel ég einhvern skemmtilegan
og spennandi helli og við verðum
neðanjarðar í um fjóra tíma. Ef ég
er með mjög stóran hóp og fólk af
öllum gerðum og stærðum þá vel ég
einhvern auðveldari og þá verðum
við kannski neðanjarðar í einn til
tvo tíma,“ segir Björn.
Þátttakendur verða að taka með
sér ljós sem dugar fjórar klukku-
stundir auk þess sem gott er að hafa
með ljós og rafhlöður til vara. Björn
mælir einnig með því að fólk taki
með sér hjálm þó að það sé ekki skil-
yrði.
„Síðan er mjög gott að vera í góð-
um galla utan yfir sig, til dæmis bíla-
viðgerðagalla, málningargalla eða
einhverju sem má skitna og rifna,“
segir Björn og bætir við að fólk eigi
ekki að mæta í fína og dýra Gore-
Tex gallanum sínum.
Börn eru sérlega velkomin enda
segir Björn að þau eigi oft auðveld-
ara með hellaferðir en fullorðnir.
UM HELGINA
Fjölskylduhátíð í
Smáralind
Efnt verður til
fjölskylduhátíðar
í Vetrargarðinum
í Smáralind
í dag kl. 13 í
tilefni af Kanad-
ískri menningar-
hátíð í Kópavogi.
Ronja Ræningja-
dóttir, Björgvin Franz og fleiri
koma fram.
Serbnesk menning
Stutt- og heimildarmyndir frá
Balkanskaganum verða sýndar
í Grófarhúsi í dag kl. 14 en sýn-
ingin er liður í Serbneskum menn-
ingardögum sem nú standa yfir.
Á morgun kl. 14 verða sýndar á
sama stað teiknimyndir eftir Ra-
sto Ciric sem er einn þekktasti
leikstjóri Serba.
Mótorhjólakeppni
Vélhjólaíþróttaklúbburinn
stendur fyrir æfingakeppni á
Langasandi á Akranesi í dag.
Dagskráin hefst með prjón-
keppni kl. 11 en strandaksturs-
keppnin hefst kl. 12. Stæði verða
fyrir þá sem vilja fylgjast með
keppninni.