blaðið - 02.12.2006, Qupperneq 6
VÍSINDAHEIMURINN
VÍSINDAHEJMURf
John farndon
Stene Parker
Fyrstu íjórar bækurnar í tíu bóka flokki um helstu svið
náttúruvísinda. Bækurnar eru einkum sniðnar að þörfum
10-14 ára barna og eru gífurlegur þekkingarbrunnur
sem allir geta haft gagn og gaman að. Glæsilegt
myndefni og lífleg framsetning. Frábærar bækur handa
fróðleiksþyrstum krökkum. Seinni bækurnar sex í
flokknum koma út á næsta ári.
Spiderwick-sögurnar
Hörkuspennandi ævintýrabækur
Allar komnar út!
Æsispennandi og gullfallegar
ævintýrabækur handa krökkum
á aldrinum 8-14 ára í snilldarþýðingu
Böðvars Guðmundssonar.
Fyrstu tvær bækurnar komu út í fyrra en nú eru þær
allar komnar út.
Kvikmyndin verður frumsýnd seint á næsta ári.
Fólkið í blokkinni
Eftir Ólaf Hauk Símonarson er
einhver allra skemmtilegasta
barnabók sem komð hefur út á
síðari árum. Sögurnar af fólkinu í
blokkinni eru sprenghlægilegar en
þó um leið svo raunsannar að allir
sem einhverntíma hafa búið í blokk
hrópa: Einmitt svona er þetta!
SKRUDDA Eyjarslóð
9 -101 R. - skrudda@akrudda.is
6 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006
blaöiö
INNLENT
LÝÐHEILSUSTOFNUN
Reykingar minnka
18,8 prósent landsmanna á aldrinum 15 til 89 ára reykja daglega. Þetta
er niðurstaöa könnunar Capacent Gallup sem Lýðheilsustöð lét gera.
Aðeins fleiri karlar reykja eða um 21 prósent á meðan reykingakonur eru
17 prósent. Árið 1991 reyktu um 30 prósent þjóðarinnar. Því er Ijóst að
reykingar eru á hægri en stöðugri niðurleið samkvæmt Lýðheilsustöð.
Nýr þjóðarpúls Gallups um fylgi stjórnmálaflokka:
Stjórnarflokkarnir
tapa meirihluta
■ Frjálslyndir eru hástökkvararnir ■ Sjálfstæðisflokkur tapar mestu
■ Áfall fyrir Samfylkingu og Framsókn
Eftir Trausta Hafsteinsson
trausti@bladid.net
„Frjálslyndir hafa sennilega verið
að laða til sín fylgi þeirra sem eru
ósáttir við innflytjendur. Það hefur
ekkert annað gerst hjá flokknum
sem gæti útskýrt aukið fylgi þeirra,“
segi Gunnar Helgi Kristinsson, pró-
fessor í stjórnmálafræði við Háskóla
Islands.
I nýjasta þjóðarpúlsi Gallups um
fylgi stjórnmálaflokkanna bætir
Frjálslyndi flokkurinn við sig sjö
prósentustigum frá síðasta þjóðar-
púlsi. Sjálfstæðisflokkurinn tapar
aftur á móti sex prósentum á lands-
vísu og í fyrsta sinn frá því í vor hafa
stjórnarflokkarnir misst meirihluta
fylgis. Vinstri grænir tapa einu pró-
sentustigi. Aðspurður telur Gunnar
Helgi það líklegt að Frjálslyndir
muni ríghalda í málefni innflytj-
enda fram á vor.
„Ég myndi halda það geta verið
freistingu fyrir flokk, sem gæti
átt það á hættu að þurrkast út, að
viðhalda umræðunni um innflytj-
endur fram á vorið enda flokkurinn
augljóslega í vandræðum," segir
Gunnar Helgi.
Hægri sundrung
Gunnar Helgi telur fylgistap Sjálf-
stæðisflokksins líklega tengjast
aukningu Frjálslyndra. Skýringin
þarf þó ekki að vera svo augljós að
hans mati. „Sennilega er straumur-
inn þarna á milli. Frjálslyndir eru
hægra megin við miðju og gæti nú
verið aðlaðandi fyrir einhverja kjós-
endur Sjálfstæðisflokksins,“ segir
Gunnar Helgi. „Flokkurinn mælist
nú yfir kjörfylgi við síðustu kosn-
ingar en hann hefur líka iðulega
mælst hærri í könnunum. Að mínu
mati ætti flokkurinn að standa tals-
vert betur á þessum árstíma til að
ná sinni eðlilegu kosningu í vor.“
Ekki góðar fréttir
Samfylkinginn mælist með fjórð-
ungsfylgi á landsvísu og stendur í
stað frá síðustu mælingu. Gunnar
Helgi telur það ekki góðar fréttir
Meirihlutinn fallinn Samkvæmt nýjasta þjóð
arpúlsi Gallups tapa stjórnarflokkarnir meiri-
hluta. Hástökkvarinn er Frjálslyndi flokkurinn
og Sjálfstæöisflokkurinn tapar mestu fylgi.
fyrir flokkinn. „Samfylkingin hefur
ekki verið að ná vopnum sínum í pól-
itík. Frá því í sumar hefur hún verið
með stöðugt fylgi, sem er áhyggju-
efni fyrir stóran flokk í stjórnarand-
stöðu. Þetta eru slæmar fréttir fyrir
kosningar í vor,“ segir Gunnar Helgi.
„Þessi útkoma væri meiriháttar áfall
fyrir Samfylkinguna í komandi
kosningum.“
Tvöfalt fylgi
Gunnar Helgi segir stöðu Vinstri
grænna vera vænlega enda hafi
fylgi þeirra mjakast upp á við yfir
lengri tíma. Hann bendir á að langt
sé til kosninga og því of snemmt að
mynda nýja stjórn. „Þessi útkoma
núna gefur til kynna tvöföldun á
Ekki náttúrulög-
mál að Sjálfstæð-
isflokkursé
ávallt í stjóm
Gunnar Helgi Kristinsson
prófessor I
stjórnmálafræði
kjörfylgi frá síðustu kosningum.
Þetta yrði alveg meiriháttar sigur
fyrir flokkinn,“ segir Gunnar Helgi.
„Sjálfstæðisflokkurinn hefur verið
lengi í stjórn og út af fyrir sig er það
ekkert náttúrulögmál að hann sé
það ávallt. Veikleiki stjórnarinnar
liggur fyrst og fremst í því að Fram-
sóknarflokkurinn er í bullandi
vandræðum." f
g|] Frjálslyndir Framsóknarflokkurinn
■ Samfylkingin ■ Sjálfstæðisflokkurinn
Vinstri hreyfingin grænt framboð
19%
25%
Fylgi flokkanna á landsvísu.
Tölurerunámundaöar.
Formaðurinn í hættu
Aðspurður segir Gunnar Helgi
Framsóknarflokkinn í bullandi
vandræðum og að hann sé kominn
langt niður fyrir það sem hann á
að sér að vera. „Framsókn á það á
hættu að verða algjör smáflokkur.
Staðan er mjög svört og hún hefur
verið þannig í nokkurn tima. I
hugum fólks gæti hann farið að fest-
ast sem smáflokkur," segir Gunnar
Helgi. „Miðað við fylgi í Reykjavík
þá þarf flokkurinn að berjast veru-
lega fyrir því að ná þingmanni inn.
Það er þvi ljóst að bæði flokkurinn
og formaðurinn eiga á brattann að
sækja.“
Ráðherrar vissu alltaf um hleranir:
Heimildir
Enginn vafi leikur á þvi að heim-
ildir til hlerana hafi verið að fullu
nýttar samkvæmt Guðna Th. Jó-
hannessyni, sagnfræðingi og höf-
undi bókarinnar Óvinir rikisins.
Hann segir fjölmörg dæmi renna
stoðum undir þá fullyrðingu.
„Árið 1949 er kveðinn upp úr-
skurður um hleranir og aftur
seinna um að hlerunum skuli
haldið áfram. Það segir sig sjálft
að hleranir hafi átt sér stað, ann-
ars hefði ekki verið hægt að halda
þeim áfram.“
Björn Bjarnason dómsmálaráð-
herra ritaði á heimasíðu sinni að
heimildir til hlerana jafngildi ekki
því að þær hafi verið nýttar.
voru að fullu nýttar
Guðni segirþað ólíklegt að menn
hafi gengið svo langt að óska eftir
heimildum án þess að ætla sér að
nýta þær. Þá segir Guðni það al-
veg ljóst að dómsmálaráðherrar á
hverjum tíma hafi alltaf haft vitn-
eskju um þær hleranir sem voru í
gangi. „Þegar dómsmálaráðuneyt-
inu berst ósk frá lögreglunni um
hlerunarheimild þá er ráðherra
hafður með í ráðum. Þetta er ekk-
ert sem minniháttar embættis-
menn sinna.“
Guðni Th. Jóhannesson sagn-
fræðingur Fjölmörg dæmi um að
heimildir hafi veriö nýttar