blaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 32

blaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 32
32 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006 blaöiö Dymbslvak Matthias Johannessen flytur erindi um skáldskap Hannesar Sigfús sonar mánudaginn 4. desember klukkan 12:10 í stofu 101 í Odda. Tilefnið er útkoma bókar hans Hrunadans og heimaslóð. Erindið er haldið á vegum Hugvísindastofnunar og er öllum opið. Nú er tíminn til að fara að sanka að sér klassískum jóla- kvikmyndum og horfa á í faðmi fjölskyldunnar. Bandariska kvikmyndin Kraftaverk á 34. stræti frá 1947 er ómissandi og fangar hinn sanna anda jólanna. mennm Menningarhelgin Það er öllum hollt að endurnýja kynnin við Roman Pol- anski, enda kvikmyndirnar sem hann gerði á árum áður margar hverjar meist- arastykki. Mia Farrow er ógleymanleg í hlutverki hinnar barnslegu Rosemary Woodhouse í Rosemary's Baby (1968). Tilvalin og tryllingsleg afþreying á aðvent- Lárviðarskáldið Ted Hughes skrifaði ótal perlur á ferlinum en hann iést árið 1998, sama ár og hann sendi frá sér Ijóðabókina Birthday Letters þar sem hann gerir upp samband sitt við ástina í Iffi sínu, Sylviu Plath, sem ekki var síðra skáld. Ljúfsár lesning um lífiö sjálft. Sýningu á verkum listakonunnar Þór- dísar Aðalstei nsdóttur lýkur á Kjarvals- stöðum um helgina Hún hefur starfað í New York und- anfarin misseri og getið sér gott orð fyrir list sína. Það er því um að gera að berja verkin augum áður en þau hverfa úr sýn- ingu. ARFTAKI HARRY POTTER? GaldrabókSalómonser horfin og öll veröldin íhættuefhúnkemst í rangar hendur! i Hrein skemmtun, stanslaust fjör' TheTimes amazon.com Veröld Bloöid/Frikkí um helgina g hef lengi átt þann draum að gefa út jóla- plötu, enda hef ég alltaf verið mikil jóla- stelpa. Það voru marg- ar ástæður fyrir því að ég réðst í þetta verkefni einmitt núna og margt sem varð til þess að það gekk upp. Ég er mjög glöð yfir að hafa fengið tækifæri til að gera þessa plötu, bæði vegna þess að mig hefur alltaf langað til þess og svo kristallar platan svo marga þætti í mér, mína söngmenntun, rætur og áhugamál. Platan er ákaflega mild og hugljúf og mér þykir vænt um þau viðbrögð sem ég hef fengið við henni,“ segir Björg Þórhallsdóttir sópransöng- kona sem heldur útgáfutónleika í dag í Langholtskirkju og á morg- un í Akureyrarkirkju. Björg er dramatískur sópran og hefur undanfarin ár stundað fram- haldsnám hjá einum virtasta söng- kennara í heimi, Dr Iris Dell’Acqua, sem sérhæfir sig í stórum röddum og þjálfar einnig reglulega stór- stjörnur á borð við René Flemming og Cecilia Bartoli. Hún hefur und- anfarið búið og starfað í London en er alltaf með annan fótinn heima á íslandi. „Ég hef aðallega starfað við tónleikaflutning og óratóríu- og kirkjumúsík y tra og líkar ágætlega við borgina þó það sé alltaf gott að koma heim. Ferðalögin fylgja óhjá- kvæmilega starfi söngvarans en maður reynir að eiga sem eðlileg- ast líf inni á milli og gerir sitt besta til að skapa sér þannig aðstæður að það sé mögulegt." Á plötu Bjargar sem ber titilinn Himnarnir opnast - jólaperlur er að finna fjórtán falleg jólalög sem hún valdi sjálf. Hún segist hafa lagt áherslu á að að syngja sem mest á íslensku og er helmingurinn nýir, íslenskir textar sem sérstaklega voru samdir fyrir plötuna, m.a nýtt jólaljóð eftir Sigurbjörn Einarsson biskup. „Mér þykir alltaf vænt um að syngja á íslensku og sérstaklega jólatónlist því jólin eru manni svo kær og standa hjartanu svo nærri." Margir helstu listamenn landsins koma að útgáfunni. Barnabiblía er góður kostur til að kynnast boðskap Biblíunnar og fylgja sögunni þar sem Guð talar við allar kynslóðir, þær sem lifðu söguna og þær sem komu á eftir. Hún kemur sér vel í biblíulestri fullorðinna, fermingarbarna og allra barna og þeirra sem vilja lesa fyrir þau um hina dýrmætu kristnu trú. Sr. Auður Eir Vilhjálmsdóttir.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

blaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.