blaðið - 02.12.2006, Blaðsíða 48
48 LAUGARDAGUR 2. DESEMBER 2006
blaðiö
Hildur Vala Einars-
dóttir vann hug og
hjarta þjóðarinnar
>egar hún tók
)átt í Idol stjörnu-
leit á Stöð 2 fyrir
tveimur árum.
Þrátt fyrir að vera með gullfallega
söngrödd vann hún ekki síst keppn-
ina fyrir að vera einstaklega heill-
andi og vingjarnleg stúlka. Tveimur
árum síðar er Hildur Vala ekki eins
og hver önnur idolstjarna heldur
heilsteyptur tónlistarmaður sem er
nýorðin móðir og ljómar sem aldrei
fyrr. „Mér líður ótrúlega vel og þetta
eru skemmtilegir tímar en sonur
minn er rúmlega fjögurra vikna gam-
all. Þegar ég hitti fólk á götum úti þá
snúast samræðurnar bara um börn
og barnauppeldi. Ég er því orðin full-
gildur meðlimur," segir Hildur Vala
og ítrekar að þetta sé einfaldlega dá-
samlegt. „Það er huggulegt að vera
heima og fara í göngutúra. Svo líða
dagarnir áður en maður veit af. Mað-
urinn minn ræður sínum vinnutíma
og við erum bara heima að hugsa um
barnið og þvo þvott.“
Myndi ekki fara í Idol í dag
Hildur Vala segir að þótt það séu
einungis tvö ár síðan hún tók þátt
í Idol þá líði henni sem það séu tíu
ár. „Það er rosalega ólíkt mér að hafa
farið í svona keppni. Ég hafði aldrei
séð Idol, hvorki íslenska né ameríska.
Það er ótrúlega skrýtið að hugsa til
þess að ég hafi í raun farið í keppnina
og unnið hana. Mamma skráði mig
í Idol en henni fannst að ég ætti að
láta í mér heyra því mér fyndist svo
gaman að syngja. Ég get stundum
orðið leið á þessum idolstjörnutitli
án þess að ég sé að velta því mikið
fyrir mér. Ég væri náttúrlega ekki þar
sem ég er í dag ef ekki væri fyrir Idol
en ég held ég myndi ekki fara í svona
keppni í dag. Þetta er vitanlega bara
sjónvarpsþáttur og þótt ég hafi unnið
keppnina þá þýðir það ekkert endi-
lega að ég verði að vera poppstjarna.
Ég held ég verði aldrei poppstjarna.
Ég er meira fyrir órafmagnaða tón-
list en ekki rosalega poppaða. Ég hef
þroskast og þróast sem söngkona og
sem tónlistarunnandi. Ég veit ekki al-
veg á hvaða hátt en vonandi á góðan
hátt. Ég er búin að gera margt og ég
veit hvað ég vil.“
Húmorísk plata
Hildur Vala gaf nýverið út aðra
breiðskífu sína sem ber nafnið
Lalala.„Á plötunni eru ný og frum-
samin lög eftir nokkra mæta menn.
Ég fékk prufur sem fólk í kringum
mig lét mér í té og ég valdi það sem
mér fannst skemmtilegt. Mér fannst
dálítið skrýtið að finna til lög og setja
saman á disk því mér fannst eins og
ég ætti að gera þetta allt sjálf. Það var
ótrúlega skemmtilegt að velja úr lög-
unum og gera þau að mínum. Þótt
lögin á plötunni höfði til mín þá geri
ég kannski eitthvað allt annað næst.
Ég gerði náttúrlega plötuna þegar ég
var ólétt og ég vildi ekki neitt væmið,
enga væmna texta og enga dramatík.
Mér fannst þetta frekar húmorísk
plata og ég lagði mikið upp úr því að
hafa flotta texta og skemmtileg lög,“
segir Hildur Vala en hún tók upp
plötuna á dönsku sveitabýli. „Við
vorum dálítið einangruð þar því það
var langt í næsta bæ. Svo var danskur
kokkur þarna sem eldaði ofan í okkar
en hann eldaði reyndar mikið af bei-
koni og pylsum sem er ekki alveg
minn uppáhaldsmatur. Þetta var
samt ótrúlega huggulegt. Það var ekk-
ert hægt að fara og lítið hægt að gera
annað en að vera í upptökuverinu."
Get ekki horft á Idol
Hildur Vala segist alltaf hafa verið
syngjandi þegar hún var barn. „Ég
var mjög söngelskur krakki. Ég hef
lítið lært að syngja og ég veit ekki
hvort ég hafi áhuga á því. Eg hef eigin-
lega ekki sérlega mikinn áhuga á því
um þessar mundir en hver veit hvað
verður síðar. Núna myndi ég frekar
vilja læra á hljóðfæri,“ segir Hildur
Vala sem dútlar á gítar og lærði á
píanó sem krakki. „Ég vissi ekki
hvernig maður átti að vera í Idol til að
vinna. Það er alltaf verið að tala um
einhverja staðlaða idol-týpu en maður
þarf ekkert endilega að vera eins og
Kelly Clarkson. Ég bjóst aldrei við að
vinna þessa keppni en þegar maður
byrjar verður maður kappsamur og
fyllist eldmóði. Mér fannst líka eins
og ég ætti að vera góð að syngja. Mér
finnst það eiginlega dálítið absúrd að
hugsa til þess að ég hafi unnið keppn-
ina. Ég held ég eigi aldrei eftir að
geta horft á upptöku af keppninni en
mömmu finnst voða gaman að horfa
á hana. Samt sem áður var þetta
frábær tími og lærdómsríkur. Ég
var að vinna hjá heimaþjónustunni
áður en Idol hófst og svo var ég skráð
í bókmenntafræði í Háskóla Islands
sem ég gat ekki klárað þá. Ég byrjaði
aftur í bókmenntafræði fyrir ári og
ætla að halda eitthvað áfram eftir
áramót, bara eins og ég nenni. Það
er gaman að þurfa að lesa og mæta.
Mér finnst bókmenntafræði mjög
skemmtileg, ég hef ótrúlega gaman
af bókmenntum og ég held að þetta
væri það eina sem hentaði mér.“
Skapandi ferli
Hildur Vala segist lítið hugsa til
framtíðar heldur tekur hún bara eitt
skref í einu. „Það er líka enginn sem
segir að það sé nauðsynlegt að gera
eina plötu á ári. Fyrri platan mín var
mjög auðveld, ég valdi lög sem ég
þekkti og söng þau inn. í Lalala þurfti
ég að laga mig að lögunum og finna
leiðir til að láta þau hljóma vel og
hugsa um umgjörðina. Það var miklu
veidikortid.is
VVylUI r\VJ I LIU.IO
29vatnasvæði
fyrír aðeins 5000 krónur!
Handbók meö ítarlegum upplýsingum, kortum o.fl. fylgir!
Fæst á ESSO, í veiðivöruverslunum og á www.veidikortid.is
Hildur Vala er nýbökuð móðir
og lífið gæti ekki verið betra
Verð aldrei
frekar skapandi ferli heldur en hitt
sem var lítið mál og tók engan tíma.
Ef ég geri aðra plötu þá langar mig að
semja lögin sjálf en svo er spurning
hvort ég geri það. Ég hef samið lög
og mér finnst það skemmtilega kreíj-
andi. Það er ekki beint erfitt en það
er spurning hvort lögin mín séu góð.
Hins vegar er skemmtilegt að takast
á við það og ég hef verið að dútla við
væmna ástartexta frá því ég eignaðist
gítar þegar ég var unglingur."
Pössum vel saman
Eins og flestir vita er Hildur Vala í
sambandi við Jón Ólafsson tónlistar-
mann en það var töluverð umfjöllun
um þau er sambandið hófst. Umfjöll-
unin snerist ekki síst um aldursmun-