blaðið - 23.12.2006, Page 8
8 LAUGARDAGUR 23. DESEMBER 2006
blaðiö
& hurðir
Gluggar, huröir, og svalahurðir
úr viöurkenndu PVC-U hágæöa
Kjamagluggar hafa einstakt
einangrunargildi og eru til í
mörgum gerðum.
Islensk framieiösla og
áratuga reynsla
Sparaðu tíma • leitaðu tilboöa
netfang: gluggar@vortex.ls
Q
Kjarnagluggar
Skemmuvegi 46 • 200 Kópavogi
sími 564 4714 • Fax 564 4713
www.kjarnagluggar.is
Steikt
eda
ósteikt
Ekta norðlenskt Imifabrciuð
frá Kristjánsbakarí
- með rétta jólabragðið!
SEKSY kvenmannsúr með Swarovski kristöilum og skífu úr ekta
grænni perlumóðurskel. Einfalt að minnka eða stækka að vild.
Utsölustaöir:
Jens Kringlunni • Gilbert úrsmiöur Laugavegi 62 • Helgi Sigurðsson úrsmiöur
Skólavöröustíg 3 • Georg Hannah úrsmiður KeflaVík • Guðmundur B. Hannah
úrsmiður Akranesi ■ Úra- og skartgripaverslun Karls R. Guðmundssonar Selfossi
Leonard Kringlunni
Enn miklar tafir
Mikil þoka olli miklum töfum á flugi á Heathrow-flugvelli í
Lundúnum þriðja daginn í röð I gær. Flugfélagið British Airways
hefur hætt við hundruð fyrirhugaðra flugferða og hafa margir
þurft að hætta við jólaferðalög sín. Þokan hefur helst bitnað á
innanlandsflugi og stuttum millilandaflugum.
Stephen Wright ákærður fyrir vændiskonumorðin:
Á háum hælum
með hárkollu
■ Stephens sleppt ■ Þögull áhugamaður um golf
Eftir Atla ísleifsson
atlii@bladid.net
Breska lögreglan hefur ákært
Stephen Wright, 48 ára vörubíl-
stjóra, fyrir morðin á fimm vændis-
konum sem fundust í nágrenni Ips-
wich í upphafi mánaðarins. Wright
var handtekinn á þriðjudaginn.
Talsmaður lögreglu segir að eftir
yfirheyrslur hafi Tom Stephens,
öðrum manni sem var einnig í haldi
lögreglu, verið sleppt gegn trygg-
ingu en Wright hafi verið ákærður
fyrir morð á öllum konunum fimm.
Hann beindi því sérstaklega til fjöl-
miðla að vanda fréttaflutning af
málinu og að Wright ætti fullan rétt
á sanngjörnum réttarhöldum.
Lík kvennanna fundust allar
án klæða umhverfis Ipswich á tíu
daga tímabili í upphafi mánaðar-
ins. Rannsókn hefur leitt í ljós að
ein konan hafi verið kyrkt og önnur
látist af völdum þrýstings á hálsi.
Dauðsorsök hinna þriggja liggur
enn ekki endanlega fyrir. Wright er
þekktur í rauðu hverfi borgarinnar
fyrir að vera tíður viðskiptavinur
vændiskvenna. Hann býr í eins her-
bergis íbúð í rauða hverfinu og á
bláan Ford Mondeo bíl sem lögregla
hafði tengt við morðin.
Vændiskonur í Ipswich sem lög-
regla hefur rætt við halda því fram
að Wright hafi verið klæðskipt-
ingur. „Hann var undalegur og
hræddi okkur. Hann klæddist oft
latex-pilsum, háhæluðum skóm og
hárkollu. Flestar stelpurnar fóru
aldrei inn í bíl til hans,“ segir Tina,
fyrrum vændiskona í samtali við Ev-
ening Standard. Önnur vændiskona
segir að hann hafi haft sérstaka
unun af hörðu kynlífi og hópkynlífi.
,Hann borgaði tugi þúsunda fyrir
kynlíf með tveimur vændiskonum
samtímis."
Wright er sagður vera mikill
áhugamaður um golfíþróttina og tók
reglulega þátt í áhugamannamótum
í Ipswich. Starfsmenn golfklúbbsins
lýsa honum sem þöglum manni sem
blandaði ekki geði við marga,
Morðin minna um margt á
óupplýst morð „Kobba kviðristu"
árið 1888 þar sem hann myrti að
minnsta kosti fimm vændiskonur
í Lundúnum á þriggja mánaða tíma-
bili. Peter Sutcliffe hermdi eftir
morðunum í Jórvíkurskíri þegar
hann drap þrettán vændiskonur og
réðst á sjö til viðbótar á árinum 1975
til 1980.
Lögregla í Norwich kannar nú
hvort að Wright tengist þremur
óupplýstum morðum á vændis-
konum frá árunum 1992 og 2002
auk mannhvarfs árið 2000. Þær
voru allar fastagestir á Ferry Boat-
Steve Wright Var handtekinn á heim-
ili sínu á þriðjudaginn.
barnum sem hann rak í Norwich
árið 1988. Lögreglurannsóknin á
morðunum í Ipswich er einhver sú
viðamesta í sögu Bretlands, en um
fimm hundruð lögreglumenn tóku
þátt í henni.
IPSWICH
tbúafjöldi: 140.000
Sýsla: Suffolk 140 km norðaustur
af Lundúnum
Frægir frá Suffolk: Benjamin Britten (tón-
skáld), Bernie Ecclestone (alráöur I Formúlu
1), Ralph Fiennes (leikari), Bob Hoskins
(leikari), Thomas Paine (heimspekingur).
Jón Ólafsson undirbýr nýja málsókn:
Ber ekki illan hug til Hannesar
„Tæknilega hefur þetta mál mis-
tekist því dómstólar úti sáu að hann
hefur brotið af sér,“ segir Jón Ólafs-
son, athafnamaður.
Yfirréttur í London ógilti í byrjun
mánaðarins fyrri dóm I skaðabóta-
máli Jóns á hendur Hannesi Hólm-
steini Gissurarsyni á þeim forsendum
að stefna í málinu hefði ekki verið
réttilega birt. 1 kjölfarið var Jóni gert
að greiða Hannesi fjórar milljónir
króna í málskostnað. Undirréttur
hafði áður gert Hannesi að greiða
lóni 12 milliónir króna í skaðabætur.
„Að sögn Jóns mun hann hefja
nýtt mál frá grunni þar sem ljóst
er að hér sé um tæknileg mistök
að ræða og almennt hafi sekt Hann-
esar í málinu verið viðurkennd af
enskum dómstólum. „Auðvitað
mun ég halda áfram og hefja nýtt
mál. Um það er ekki spurning."
Jón segist ekki bera illan hug til
Hannesar og að enn þá sé hann
tilbúinn til að semja um málið.
„Ég bauð Hannesi að biðjast afsök-
unar á orðum sínum í bréfi til mín
oersónuleea en ekki ooinherleea.
Hann hafnaði því á sínum tíma. Ég
er ekkert að leitast eftir einhverjum
peningum enda er mér ágætlega
vel við Hannes. Hann verður bara
að sýna að hann hafi áhuga á að ná
sátt í málinu."