blaðið - 23.12.2006, Síða 21
blaöið
FIMMTUDAGUR 21. DESEMBER 2006
21
Gríðarleg færni í
lýsingum
Gallalaus
Sendiherrann
Eftir Braga Ólafsson
Bækur ★★★★★
Skyldulesning
fyrir bókmennta-
unnendur
Breski rithöfundurinn og
fræðimaðurinn David Logde
gaf eitt sinn út skáldsögu undir
nafninu Lítill heimur sem kom
út íslenskri þýðingu fyrir nokkr-
um árum. í þeirri bók má segja
að Logde hafi afhelgað hugtakið
bókmenntafræðiþing með eftir-
minnanlegum hætti.
Bragi Olafsson tekur ljóða-
ráðstefnur fyrir í sinni nýjustu
skáldsögu, Sendiherrann, sem
fjallar öðrum þræði um ljóðskáld-
ið Sturlu Jónsson og örlagaríka
ferð hans til Litháen. Á meðan
Jón stendur sem fulltrúi íslenskr-
ar ljóðagerðarlistar á erlendri
grundu tekur heimurinn smám
saman að molna undan fótum
hans. Ásakanir um ritstuld skjóta
upp kollinum og ferð á litháenskt
veitingahús á eftir að hafa örlaga-
ríkar afleiðingar.
Að venju er texti Braga ljóð-
rænn og hann sannar í enn eitt
skiptið færni sína í því að lýsa
smáatriðum, samtölum og hver-
dagslegum hugrenningum á
óborganlegan hátt.
Undirliggjandi kaldhæðni text-
ans í garð rómantískrar en jafn-
framt klaufalegrar heimsmyndar
Jóns magnast eftir því sem á líð-
ur söguna. Yfridrifin alvarleiki
skáldaþingsins verður innantóm-
ur þegar í ljós kemur að þingið
virðist snúast um fátt annað en
að finna næstu krá.
Inn í söguna fléttar svo Bragi
tilvísunum í heimsbókmenntirn-
ar og sterkasta minnið verður
án efa frakkinn sem vísar í sam-
nefnda smásögu rússneska rit-
höfundarins Nikolai Gogols. Um
manninn sem taldi virðingu sam-
félagsins velta á ytra útliti og var
tilbúinn að fórna nánast öllu til
að ná því markmiði.
Sendiherrann er tvímælalaust
besta skáldsaga Braga hingað til
og verður að teljast skyldulesning
fyrir alla bókmenntaunnendur.
hoskuldur@bladid.net
Laugard. Sunnud. Mánud. Þriðjud. Miðvikud. Fimmtud. Föstud. Laugard. Sunnud. Mánud. Þriðjud.
23. Des 24.Des 25.Des 26.Des 27.Des 28.Des 29.Des 30.Des 31.Des l.Jan 2.Jan
Árbæjarlaug 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað lokað 06:30-22:30 06:30-22:30 06:30-22:30 08:00-20:30 08:00-12:30 lokað 06:30-22:30
Breiðholtslaug 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað lokað 06:30-22:00 06:30-22:00 06:30-22:00 08:00-20:00 08:00-12:30 lokað 06:30-22:00
Grafarvogslaug 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað lokað 06.30-22.30 06.30-22.30 06.30-22.30 08:00-20:30 08:00-12:30 lokað 06.30-22.30
Kjalarneslaug 11:00-15:00 10:00-12:30 lokað lokað 17.00-22.00 17.00-21.00 17.00-21.00 11.00-15.00 10:00-12:30 lokað 17.00-21.00
Laugardalslaug 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað 12:00-18:00 06.30-22.30 06.30-22.30 06.30-22.30 08.00-20.00 08:00-12:30 12:00-18:00 06.30-22.30
Sundhöllin 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað lokað 06.30-21.30 06.30-21.30 06.30-21.30 08.00-19.00 08:00-12:30 lokað 06.30-21.30
Vesturbæjarlaug 8:00-18:00 08:00-12:30 lokað lokað 06.30-22.00 06.30-22.00 06.30-22.00 08.00-20.00 08:00-12:30 lokað 06.30-22.00
Laugarnar í Reykjavík
ím
★★★★r „Fyndin og fróðleg
bók sem kennir mannasiði."
Brynhildur Björnsdóttir,
Fréttablaðiö 22. des. 2006
„Ef þessi bók breytir ekki lífi þínu,
mun hún svo sannarlega bæta það
og hjálpa þér að losna við gremju,
eigingirni og önnur mein."
Páll Óskar, tónlistarmaður ]
tíMaMHMŒEaaaaasaassEæœ!:srssmæmBSSRíísax x astsassaiasEsaæt-sSíSEaar
V /
„Þýðing Kristians Guttesen er afburðagóð ...
alveg mögnuð saga.
Steinunn Inga Óttarsdóttir, Mbl. I4.des. 2006
„Snilldarlega vel skrifuð saga ... rígheldur frá
upphafi til enda. Það er fengur að svona þýðingum."
Súsanna Svavarsdóttir, _________________
Fréttablaðið 19.des. 2006
„Hér er á ferðinni merkileg skáldsaga sem fengur
er að á íslensku. Roberts tekur til umfjöllunar
ýmis málefni sem hvíla þungt á samtímanum ..."
Björn Þór Vilhjálmsson, Morgunblaðið21.des. 2006
■■■■■■■