blaðið - 03.03.2007, Side 4
4 LAUGARDAGUR 3. MARS 2007
blaðiö
INNLENT
HRAÐAKSTUR
Náðist þrátt fyrir radarvara
Maður á þrítugsaldri átti erfitt með að leyna vonbrigðum
sinum þegar lögreglan stöðvaði hann á Kringlumýrarbraut á
117 kílómetra hraða. Hann hafði keypt radarvara til að forð-
ast lögrelguna, en maðurinn hefur ítrekað verið tekinn fyrir of
hraðan akstur. Reiðinni beindi hann að seljanda varans.
E3I
Sjö milljarða tap
365 hf. tapaði um sjö milljörðum á síðasta ári
samkvæmt ársuppgjöri sem birt var í gær. Afkoma
fyrirtækisins versnaði mikið milli ára en árið 2005
nam hagnaður þess 718 milljónum króna. Forstjóri
365, segir niðurstöðuna vera óásættanlega.
KENNARAKJARADEILAN
Hittast aftur á þriðjudaginn
Formaður Félags grunnskólakennara, segir að kennararfundi
aftur með Launanefnd sveitarfélaga og ríkissáttasemjara á
þriðjudaginn, en fundi deilenda hjá sáttasemjara lauk síðdegis
í gær. Kennarar og launanefndin túlka endurskoðunarákvæði í
kjarasamningi grunnskólakennara frá árinu 2004 á ólíkan hátt.
Tómstundaúrræði fyrir fötluð ungmenni:
Ekki fyrir of fatlaða
Tómstundaúrræði fyrir fötluð
ungmenni á framhaldsskólaaldri
eru einn af dagskrárliðum fundar
Samtaka sveitarfélaga á höfuð-
borgarsvæðinu á mánudag. Slíkt
úrræði hefur ekki verið í boði
fyrir ungmennin frá því í
vor.
Gunnar Einarsson, for-
maður Samtaka sveitarfé-
lagaáhöfuðborgarsvæðinu
og bæjarstjóri Garðabæjar,
segir að mörg sveitarfé-
lög séu með ýmis úrræði
í tómstundamálum og
henti sum þeirra fötl-
uðum einstaklingum
sem ekki glíma við mikla
fötlun. Fyrir hina er ekk-
ert í boði.
Á fundinum á mánu-
dag verður farið yfir
stöðu mála og athugað hvað
hægt er að gera. „Það þarf að
skoða þetta út frá þeim skyldum
og verkaskiptingu sem er á milli
ríkis og sveitarfélga og ná ein-
hverri niðurstöðu,“ segir Gunnar.
„Það er alltaf vont ef
málin eru það óljós
milli þessara aðila að
kúnninn, sem í þessu
tilfelli eru fatlaðir ein-
staklingar, líði fyrir
það. En hingað til hafa
þessi tvö kerfi ekki
getað komið sér saman
um einhverja útfærslu.“
Gefst ekki kostur
á vistun eftir skóia
***- SS33S
_____fsgpí l Mikið fatlaðir án allra úr-
Hjg||l £Í=P i ræða Sveitarfélögln á höfuö-
| borgarsvæðinu ætla aö funda
um vandann á mánudag.
Eldsvoði í Breiðholti:
Björguðu tveimur út
Eldur kviknaði í fjölbýlishúsi
við Fannarfell í Breiðholti í gær-
morgun og var allt slökkvilið á
höfuðborgarsvæðinu kallað út.
Reykkafarar fundu konu og karl
á þrítugsaldri í íbúðinni og björg-
uðu þeim þaðan út. Fólkið var
flutt á slysadeild en reyndist ekki
vera með mikla reykeitrun.
íbúðin er á annarri hæð í hús-
inu og barst töluverður reykur
fram á stigaganginn og voru
íbúar í húsinu byrjaðir að koma
sér út þegar slökkvilið kom á stað-
inn. Mikill reykur var í íbúðinni
þegar reykkafarar fóru þangað
inn en fólkið var enn með með-
vitund þegar það fannst. Slökkvi-
liðinu tókst að koma í veg fyrir
að eldurinn breiddist út en
íbúðin er mikið skemmd vegna
reyks. Talið er að kviknað hafi
í út frá þvottavél sem var inni á
baðherberginu.
Skýstrókar í suðurríkjum Bandaríkjanna:
Tuttugu farast í óveðri
Tuttugu manns létust og tugir
slösuðust í röð skýstróka sem
gengu yfir Alabama, Georgíu og
Missouri í Bandaríkjunum aðfara-
nótt gærdagsins. Átta ungmenni
létust þegar þak grunnskólabygg-
ingar gaf sig eftir að einn skýstrók-
anna gekk yfir bæinn Enterprise í
Alabama. Skýstrókarnir ollu mik-
illi eyðileggíngu víðs vegar um
suðurríkin, þar sem hús og bílar
skemmdust og tré og rafmagns-
staurar rifnuðu upp með rótum
sem olli rafmagnsleysi.
Alríkisstjórnin hefur þegar
boðið hamfarasvæðunum aðstoð,
en veðurfræðingar sögðu í gær
að búast mætti við frekari ský-
strókum og var hættuástandi lýst
yfir í mörgum sýslum Alabama og
Georgíu.
Bob Riley, ríkisstjóri Alabama,
lýsti yfir neyðarástandi í ríkinu
í kjölfar skýstrókanna og sendi
hundrað þjóðvarðliða til Enter-
prise, sem varð verst úti, til að að-
stoða við björgunaraðgerðir.
LÁTIÐ FAGMANN
VINNA VERKIÐ!
- Dúkalögn
- Veggfóörun
Félag dúldagninga- og
veggfóðrarameistara
- Teppalögn
dukur@simnet. is - www.dukur.is
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingiþjorg@bladicl.net
Hafni Hafnfirðingar stækkun álvers-
ins í Straumsvík verður það mikið
áfall fyrir bæjarfélagið. Framtíð ál-
iðnaðar á íslandi mun einnig velta
á því hver niðurstaðan verður. Þetta
segir Guðni Ágústsson, landbúnað-
arráðherra og varaformaður Fram-
sóknarflokksins, aðspurður um
viðhorf flokksins til frestunar eða
stöðvunar á stóriðjuframkvæmdum.
Framsóknarflokkurinn ákvarðar
kosningastefnu sína á flokksþingi
sem nú stendur yfir.
„Við erum ekki flokkur sem
setur stórt stopp á samfélagið
á neinu sviði,“ ségir Guðni og
tekur það fram að nú liggi nánast
ekkert stórt fyrir í stóriðjufram-
kvæmdum nema stækkun álvers-
ins í Straumsvík. „Það má segja að
framtíð þessa áliðnaðar á íslandi
velti mikið á því hvernig þetta fer í
Hafnarfirði. Verði þetta fellt blasir
við stórt stopp á mörgum sviðum
og mikið áfall tel ég það vera fyrir
Hafnarfjörð."
Þrátt fyrir þessa skoðun varafor-
mannsins segir hann flokk sinn
vera umhverfisvænan. „Við erum
sannarlega umhverfisvænn flokkur
og grænn sem er að stofna stærsta
þjóðgarð í Evrópu og ná samstöðu
um stækkun friðlands í Þjórsár-
verum. Við viljum auðvitað fara
með allri gætni í kringum náttúr-
una. Formaður flokksins hefur lagt
fram þingmál þar sem nýting og
vernd er okkar framtíðarsýn"
Óbundinn til kosninga
Guðni segir baráttuna sem fram-
undan er fyrir alþingiskosningarnar
í vor leggjast vel í sig. „Ég hygg að
þjóðin sé með vaxandi áhyggjur af
því að ríkisstjórnin falli og kaffi-
bandalag stjórnarandstöðuflokk-
anna nái að komast að eitt og sér. Ég
held að Vinstri grænir muni stoppa
mjög margt sem er mikilvægt í
samfélaginu í dag, ekki bara álið.
Ég held að þá megi búast við hærri
sköttum á fólk og fyrirtæki og þess
vegna muni almenningur gera það
upp við sig að kaffibandalagið vilji
hann ekki sjá.“
Það er mat Guðna að Framsókn-
arflokkurinn eigi marga fylgis-
menn í hópi óákveðinna sem enn
er stór. Og hann leggur áherslu á
að flokkurinn gangi óbundinn til
kosninga. „Við erum ekki skuld-
bundnir Sjálfstæðisflokknum að
einu eða neinu leyti.“
Hann segir afar mikilvægt að
standa við það markmið í stjórnar-
sáttmálanum að ákvæði um að auð-
lindir sjávar séu sameign íslensku
þjóðarinnar verði bundið í stjórn-
arskrá og farið verði yfir málið
með samstarfsflokknum.
Allra veðra von
Jón Sigurðsson, viðskiptaráðherra
og formaður Framsóknarflokksins,
sagði í yfirlitsræðu sinni á flokks-
þinginu í gær framsóknarmenn
stæðu fast á sínum málum í barátt-
unni innan ríkisstjórnar sem utan
þótt ágreiningur væri ekki alltaf
borinn á torg.
„Við erum ósammála um umfang
einkavæðingar, samfélagshlutverk
markaðarins, byggðaframlög, vel-
ferðarþróun og fleira.“
En þrátt fyrir ólíkar áherslur
hefur stjórnarsamstarfið gengið
ágætlega, að sögn formannsins.
Hann hnýtti í stjórnarandstöðu-
flokkana og sagði mikla togstreitu
einkenna Samfylkinguna og að
sumar yfirlýsingar Vinstri grænna
vektu furðu. „Það er ókyrrð í ís-
lenskum stjórnmálum og allra
veðra von. Líkur benda til að stjórn-
arandstaðan sé að klofna í ennþá
fleiri flokka en verið hefur.“
Jón sagði jafnframt að keppni
annarra flokka til að ryðjast inn á
miðjuna sýndi ljóslega mikilvægi
SFylgiFram-
sóknar ræður
úrslitum
Jón Sigurðsson viðskipta-
ráðherra áflokksþingi
Framsóknarflokksins
Sannarlega
grænn flokkur
Guðni Ágústsson
landbúnaöarráöherra
Framsóknarflokksins. „Það fer alls
ekki á milli mála að styrkur og fylgi
framsóknarmanna ræður alveg úr-
slitum um það hvers konar stjórn og
stjórnarstefna verður á landi hér.“
Eins og Guðni lagði formaðurinn
áherslu á að engin skuldbinding he-
fði verið gefin um stjórnarsamstarf
eftir kosningarnar. Málefnin yrðu
látin ráða.
DRÖG AÐ ÁLYKTUNUM
FL0KKSÞINGS:
■ Ákvörðun um stuöning Islands við að-
gerðir og innrás í Irak var byggð á röngum
upplýsingum og var því röng. Af þeim
mistökum beraðlæra.
■ Ráðherrar gegni ekki
jafnframt þingmennsku.
■ Auölindir landsins
verði I þjóðareigu.
■ Heimavinnsla afurða
úr hráefnum landbúnaðar verði efld.
■ Lágmarksframfærsla skilgreind. Ein-
staklingsbundinn persónuafsláttur.
■ Allir búi við sambærileg lífeyrisréttindi
og sérréttindi þingmanna afnumin.
■ Fæðingarorlof lengt í 12 mánuði.
■ Afnám tengingar íbúöalána við bruna-
bótamat.
■ Hluta LlN-lána verði breytt í styrki.
Könnun Gallup:
Æ færri treysta Alþingi
Alþingi nýtur minnsts trausts
meðal íslensku þjóðarinnar, sam-
kvæmt nýrri könnun Gallup, en
einungis 29 prósent svarenda sögð-
ust bera traust til þingsins. Hefur
traustið aldrei mælst eins lítið
síðan mælingar hófust í ágúst 1993
en það hefur lækkað um 14 prósent-
ustig frá síðasta ári.
Traust til dómskerfisins er næst-
minnst eða 31 prósent, og hefur það
minnkað um 12 prósentustig. Er það
einnig minna en mælst hefur áður.
Háskóli Islands hefur frá upphafi
mælinga verið sú stofnun sem nýtur
mests trausts og sögðust 85 prósent
svarenda bera traust til stofnunar-
innar. Lögreglan mældist með 78 pró-
sent sem er einu prósentusigi minna
en í febrúar á síðasta ári. Traust til lög-
reglunnar eins og það mældist nú og
í fyrra hefur ekki verið eins mikið frá
því mælingar hófust en það var þá 84
prósent. Frá því í fyrra hefur traust
ríkissáttasemjara rýrnað um 9 pró-
sentustig og mælist nú 47 prósent.