blaðið - 03.03.2007, Qupperneq 12
LAUGARDAGUR 3. MARS 2007
blaði
Útgáfufélag:
Stjórnarformaður:
Ritstjóri:
Fréttastjóri:
Ritstjórnarfulltrúi:
Árogdagurehf.
Sigurður G. Guðjónsson
Trausti Hafliðason
Gunnhildur Arna Gunnarsdóttir
Elín Albertsdóttir
Níðst á starfsfólki
Bakkavararbræður eru oft nefndir hér á landi sem klárir athafna-
menn sem náð hafa miklum og glæsilegum árangri í viðskiptum
í útlöndum. Það er því leitt að lesa frétt Blaðsins í gær um aðbúnað
starfsfólks þeirra á Englandi. Þar kemur fram að ótal kvartanir hafi
borist frá starfsfólki vegna heilsu- og öryggismála í verksmiðjum í eigu
Bakkavarar. Breskt verkalýðsfélag hefur ítrekað kvartað undan lélegum
aðbúnaði starfsfólksins án þess að nokkuð sé gert til bóta af hálfu fyrir-
tækisins. I framhaldsfrétt Blaðsins í dag segir Halldór Grönvold, aðstoð-
arframkvæmdastjóri ASÍ, að það sé þekkt að íslensk fyrirtæki, sem hafa
haslað sér völl á alþjóðlegum vettvangi, hafi haldið verkalýðsfélögum
frá og hafi ekki hagað sér neitt sérstaklega vel, eins og hann orðar það.
Upplýsingafulltrúi eins stærsta verkalýðsfélags Englands segir í við-
tali við Blaðið að launin sem fyrirtækið greiði séu heldur ekki til sóma.
„Þeir greiða eingöngu lágmarkslaun og hér er dýrt að lifa. Meirihluti
starfsmanna talar litla ensku og á við tungumálaörðugleika að stríða.
Gerð var ítarleg skoðun á starfseminni og virkilega svört skýrsla um
aðbúnaðinn birt í kjölfarið.“ Ríkustu menn Islands níðast sem sagt á
starfsfólki sínu.
Fjölmargar fréttir hafa birst á undanförnu ári um aðbúnað útlendra
verkamanna sem starfa á Islandi. Það er löngu ljóst að bágt atvinnu-
ástand í A-Evrópu og þá sérstaklega í Póllandi hefur dregið verkamenn
hingað til lands en launakjör þeirra og aðbúnaður hefur ekki alltaf
verið til sóma. íslendingar hafa nýtt sér eymd þessa fólks til að hagnast
sjálfir. I mörgum atvinnugreinum hér á landi starfa nú útlendingar á
mjög lágum launum, jafnt konur sem karlar. Þetta fólk býr að auki oft í
húsnæði sem enginn íslendingur myndi sætta sig við að búa í.
Nýríkir íslendingar eru með fyrirtæki um allan heim. Orðspor þeirra
er ekkert sérstaklega gott og stundum frekar til skammar. Þetta eru
landar okkar sem aldir eru upp af kynslóð sem barðist af hörku fyrir
réttindum á vinnumarkaði hér heima. Það getur ekki verið skemmtilegt
að baða sig í milljörðum sem fengnir eru með því að níðast á verkafólki.
Það minnsta sem þessir menn geta gert er að búa þannig að starfsfólki
sínu að ekki hljótist af slys eða örkuml við vinnu. „Þar sem öryggismál
eru í ólagi fylgir óneitanlega oft óhreinlæti,“ segir upplýsingafulltrúinn
breski og bendir á að nýlega hafi vörufarmar af hummus, sem unnið
var í verksmiðju Bakkavarar, verið endursendir vegna salmonellu.
Ef menn gera illa við starfsmenn sína er hætta á lakari vinnubrögðum.
Vonandi eigum við ekki eftir að upplifa galla eða fúskvinnu í þeim bygg-
ingum sem hér hafa risið undanfarin ár á ógnarhraða með hjálp ódýrs
vinnuafls frá útlöndum.
Elín Albertsdóttir
Auglýsingastjóri: Steinn Kári Ragnarsson Ritstjórn & auglýsingar: Hádegismóum 2,110 Reykjavík
Aðalsími: 510 3700 Símbréf á fréttadeild: 510 3701 Símbréf á augfýsingadeild: 510 3711
Netföng: Wadid@bladid.net, frettir@bladid.net, auglysingar@bladid.net
Prentun: Prentsmiðja Morgunblaðsins
Með Ijúffengri fyllingu
úr ostum og öðru góðgæti
Kjúklingamánar er nýjung í fullunninní matvöru
frá Matfugli. Þeir eru með Ijúffengri fyllingu úr
6 mismunandi ostum og öðru góðgæti. Þá þarf
aðeins að hita í ofni eða á pönnu og því auðvelt
að reiða fram sælkeramáltíð á svipstundu. - Lostæti með lítilli fyrirhöfn
12
blaöiö
-.1 hÍTÍ HJfl UWNENOUM mM$ÆkÍMW TVlRÆÐNt Oö
MÁ m/l/l SEM FtNVST FA RH i FíNtl LflGt AP JfUi A NWWÍK
AV TóLKi SEM ES flP RMJfl í 'fíílMiM ZÍMN\.
Það er skemmtilega lýsandi um
hve miklir umhverfissóðar við ís-
lendingar erum að við höfum sama
orð um kjána og umhverfisverndar-
mann: græningi. Þó brá mörgum í
brún að sjá loftmengun hér borna
saman við það sem gerist á megin-
landi Evrópu í iðnaðarhaugnum
sjálfum. Tala nú ekki um þegar við
erum jafn rík af tuttugu metrum
á sekúndu og raun ber vitni. En
það er ekki alltaf rok og æ oftar er
loftmengun hér yfir heilsuvernd-
armörkum með alvarlegum af-
leiðingum, ekki síst fyrir börn og
ungmenni.
Samt höfum við lítið sem ekkert
hafst að. I raun hafa flestir ekki
fyrr en síðustu ár áttað sig á hve al-
varleg mengunin er og eitthvað eru
göturnar vonandi bleyttar meira
en áður var. En við höfum frekar
viljað horfa á mengunina en grípa
til áhrifaríkustu aðgerðanna sem
eru að hreyfa við nagladekkjunum.
Það er nefnilega þrátt fyrir vitn-
eskju okkar um mengunina og af-
leiðingar hennar ennþá ókeypis að
menga með nagladekkjum og öllum
frjálst. Þó vitum við að fyrir alda-
mótin ákváðu þeir í Ósló að setja
mengunarskatt á naglana og minnk-
uðu mengun í borginni mælanlega
með því einu. En þó margt sé dýrara
á Islandi en annars staðar er þó oft-
ast ókeypis að menga.
Loftmengun með tollafslætti
Það er oft áhugavert að fylgjast með
umræðum okkar um loftmengun.
Við erum þannig oft ákaflega áhuga-
söm um nýja tækni í bílaiðnaði. Ein-
hverja nýja tækni sem ef til vill og
Okeypis
kannski getur orðið til að draga úr
mengun eftir þrjátíu ár, en þangað
til munum við menga heiminn jafn
mikið eða meira en síðustu tvær aldir.
Við höfum hinsvegar engan áhuga á
því sem hægt er að gera til að draga
úr mengun bifreiða núna. Þannig
hafa stjórnvöld beinlínis lækkað
álögur á eyðslufreka bíla frá því sem
áður var, enda á að vera ókeypis að
menga. Af mjög eyðslufrekum bílum
er svo veittur sérstakur tollaafsláttur
Helgi Hjörvar
í nafni landbúnaðar. Síðasta aðgerð
ríkisstjórnarinnar til að minnka
mengun bílaflotans voru breytingar
á olíugjaldi til að hvetja fólk til að
skipta úr bensínbílum yfir í dýrari
en umhverfisvænni dísilbíla. Það er
gert með því að láta dísilolíuna vera
dýrari en bensínið!
En þetta eru auðvitað smámunir
hjá mengandi stóriðju. Einhvern
veginn höfum við haft þetta tutt-
ugu metra á sekúndu viðhorf til
hennar og látið okkur loftmengun í
léttu rúmi liggja enda blási það allt
burt. En nú þegar við erum orðin
einhver stærsti málmbræðir heims
dugir það viðhorf ekki lengur. Við
þurfum einfaldlega að hafa raun-
verulegar áhyggjur af mengun stór-
iðjunnar og taka þá afstöðu að það
sé ekki æskilegt að menga og spilla
meiru ókeypis í hennar þágu. Já,
ókeypis, því öll sú mengun og nátt-
úrufórnir sem þessu hafa fylgt hafa
verið ókeypis.
Slegist um ókeypis mengun
Nú höfum við bætt um betur með
því að fá sérstök heimildarákvæði
til að menga um 1,6 milljónum
tonna árlega meira en ella og sú
mengunarheimild veldur því að
helstu álfyrirtæki heims slást um að
fá að stækka, byggja við og byggja
nýjar mengandi bræðslur hér því
það er ókeypis. Við setjum verðmiða
á það sem máli skiptir og í því kerfi
okkar skipta náttúrugæði ekki máli
því þeim fórnum við fyrir ekki neitt.
Það er umhugsunarvert verðmæta-
mat sem minnir á frumbyggja.
Vont en það versnar. Því nú hefur
umhverfisráðherra lagt fram á Al-
þingi frumvarp um að þegar við
verðum búin að gefa alþjóðafyrir-
tækjunum leyfi til að auka mengun
á Islandi þá geti þau keypt sér
mengun í útlöndum, eða skógrækt
og mengað í krafti þess enn meira á
íslandi. Æ.tli það verði ekki bæði toll-
frjálst og skattfrjálst að flytja inn er-
lenda mengun? Hvað sem því líður
hvet ég alla til að koma á morgun
klukkan tvö í Háskólabíó og sjá í
boði okkar í Samfylkingunni brýna
heimildarmynd AÍ Gore um stærsta
viðfangsefni samtímans, loftslags-
málin. Ókeypis.
Höfundur er þingmaður Samfylkingar
Klippt & skorið
KK og Magnús Eiríksson kveðja sér
hljóðs á síðum eins stærsta og vinsæl-
asta enska dagblaðs i Kfna, Shangai
Daily, með yfirskriftinni „Kveðjur |
frá íslandi". Er rætt þar um og
við þá félaga sem halda tónleika J
í Shanghæ i kvöld en tvímenning-
arnir eru einnig að taka upp efni
fyrir næstu skífu KK sem mun heita Heim í dalinn
minn samkvæmt fréttinni. Sennilega erfátt sem
sýnir betur breytta og smækkaða heimsmynd og
aukna þátttöku Kína í þeim heimi en umrædd
frétt. Hvorki upptökur né tónleikar KK þykja
mikið fréttaefni hér á Islandi nú en ekki fór lítið
fyrir fréttum í öllum miðlum af íslensku hljóm-
sveitinni Strax sem fyrir 20 árum varð önnur
erlenda hljómsveitin til að halda tónleika að vest-
rænum hætti ÍKÍna. Svo sérstakt þótti þaðað BBC
gerði heimildarmynd um tónleikaförina.
Fátt er undarlegt við að Samkeppniseft-
irlitið rannsaki ferðaskrifstofur þessa
lands enda ákafleg fákeppni á þeim
markaði sem víðar. Tvö fyrirtæki eiga og reka
þær fjórar til fimm stærstu að mestu eða öllu
leyti og enginn sem kynnirsérreglulega tilboð
þau er í boði eru hjá ferðaskrifstofunum vel-
kist ívafa um að verðlagning beggja erkeimlfk.
Einnig má víst telja að álagning beggja sé ekk-
ert alit of hófleg, hvorki á flug-
ferðum né gistingu sé miðað
við verðlagningu erlendra
ferðaskrifstofa og flugfélaga
sem kannski lýsir sér best í
því að rekstur Heimsferða síð-
astliðin ár hefur gert Andra Má Ingólfssyni
forstjóra kleift að fjárfesta í og byggja upp
glæsilegt hótel í miðbænum og stofna sitt
eigiðflugfélag.
Búið er að tryggja áframhaldandi sam-
göngur milli Islands og Grænlands með
nýjum samningi samgönguráðuneytis-
ins og Flugfélags Islands til næstu þriggja ára.
Er það vel enda sýna rannsóknir fyrr og nú að
Islendingar vita afar lítið um þennan risaná-
granna í vestri sem er á skjön
við flestar aðrar þjóðir sem
eru forvitnar um nágranna 5T
sína. Hefur þó orðið talsverð g
breyting þar á með tilkomu
reglulegra flugferða undan-
farin ár auk þess sem erlendir ferðamenn nýta
sér þennan möguleika í vaxandi mæli enda
Grænland talsvert í umhverfisumræðu manna
í millum vegna bráðnunar íss og hækkandi
hitastigs.
albert@bladid.net