blaðið - 03.03.2007, Síða 16
16
LAUGARDAGUR 3. MARS 2007
blaðið
'A-:;ý. f.4A'
fol 11 k ÍF HVAÐ Er alltaf nóg að gera hjá fiisjnst endurskoðandanum? ^
folk@bladid.net
ÞER?
„Ég læt nú stjórnmálafræðina og sönginn nægja I bili."
Stefán Hilmarsson, söngvari
Fyrirsögnin .Stefán Hilmarsson mætti til skýrslutöku í Héraðsdómi
Reykjavjkur’ birtist á vefmiðlum í gær. Þó var ekki um að ræða
Stefán Hilmarsson söngvara, heldur nafna hans, endurskoðanda
er tengist Baugsmálinu.
HEYRST HEFUR
SVO virðist sem rekstur Deben-
hams í Smáralind hafi ekki
skilað nægilegum arði að mati
eiganda verslunarinnar, Baugs.
Búðin er sú stærsta sinnar teg-
undar á landinu og því nokkrum
vandkvæðum bundið að skipta
BAUGUR G R O U P
henni út. Það mun þó vera
ætlunin. Reyndar neita Baugs-
menn því staðfastlega, en sam-
kvæmt orðinu á götunni mun
Debenhams víkja alfarið fyrir
Magasin Du Nord-verslunarkeðj-
unni, sem einnig er í eigu Baugs.
Ávallt kemur búð í búðar stað ...
JÓN SIGURÐSSON, formaður
Framsóknarflokksins, sagði á
flokksþinginu í gær að fólki
bæri að varast ódýrar eftirlík-
ingar en menn frá hægri og
vinstri væru að laumast inn á
miðjuna og blekkja fólk til fylgis
við sig. Spurningin er
hvort framsóknar-
menn ættu ekki
að leika þennan
leik eftir, en
þeir mælast ein-
ungis sem næst-
minnsti flokkur-
innsamkvæmt
Capacent-
könn-
unum
OG meira af könnunum. Þann
19.-24. febrúar var spurt hvort
almenningur myndi kjósa
umhverfisverndarframboð leitt
af Margréti Sverris, Ómari
Ragnars og Jóni Baldvin. Ekk-
ert hefur frést af niðurstöðum
könnunarinnar og vekur það
upp ýmsar spurningar. Sú er
brennur heitast á
. vörumhlýtur
að vera sú
hvort niður-
stöðurnar
hafi verið
frambjóð-
endunum
í óhag
Helena í hálfa öld!
Eftir Trausta Salvar Kristjánsson
traustis@bladid.net
Helena Eyjólfsdóttir er ein ástsæl-
asta söngkona okkar Islendinga.
Hún byrjaði aðeins fimmtán ára
gömul og hefur síðan verið að í 50
ár. Hún heldur upp á söngafmælið
með tónleikum í Salnum
næstu tvo sunnudaga
klukkan átta. En
hvernig kom þetta
allt til?
„Þetta byrj-
aði með
tónleikum í
því sem hét
Austurbæj-
arbíó þá. Ég
varfimmtán
ára gömul og
var beðin að
koma þarna
fram. Af hverju
veit ég ekki enn
þann dag í dag.
Rokkið var að
byrja og þarna kom
hljómsveit frá Bret-
landi, Tony
Crombie
a n d
the Rockets. Þetta var mjög
gaman og ég söng bæði á ensku og
íslensku.“
Helena tók landspróf og stefndi
á menntaskólanám. Úr því varð þó
ekki.
„Nei, það kom annað upp á. Mér
var boðið að syngja með hljómsveit
Gunnars Ormslevs í Fram-
sóknarhúsinu,
síðar Glaumbæ.
Ég gat ekki
annað en
stokkið
á það.
M é r
fannst
K
s v o
gaman
1 ð
í syngja.
S u m -
arið eftir,
1 9 5 8,
b a u ð s t
mér síðan
að fara
norður til
Akureyrarað
syngja með Atlantic-kvartettnum
sem Finnur og Ingimar Eydal spil-
uðu með. Þar söng ég með Óðni
Valdimarssyni og á þessum tíma
gerði ég flestar mínar sólóplötur.
Þetta var yndislegur tími og sumar
allra sumra. I minningunni var
„Annars er ég ekki viss um
að ég hefði enst i þessum
bransa efég hefði ekki
verið gift tónlistarmanni,
en við vorum alltafíþessu
saman
alltaf sól og gott veður og yndis-
legt að vera fyrir norðan, þar sem
ég hafði verið einnig sem barn. Þá
kynntist ég manninum mínum,
Finni Eydal, og vorum við gift í 35
ár og áttum þrjú börn. Annars er
ég ekki viss um að ég hefði enst í
þessum bransa ef ég hefði ekki
verið gift tónlistarmanni, en við
vorum alltaf í þessu saman.“
Holóttir íslenskir vegir lögðu
stein í götu margra ferðalanga á
þessum tíma. Helena segir það
ekki hafa staðið í vegi
fyrir hljómsveitinni.
„Nei, ég man að
eitt sinn spil-
uðum við í
Bolung
arvík
á
Helena Eyjólfs Byrjaði
fimmtán ára i bransanum.
Vestfjörðum. Eftir ball þá helltum
við í okkur kaffi og pökkuðum
öllu dótinu inn í sendibíl. Við
brunuðum af stað um miðja nótt
og keyrðum áleiðis alla nóttina og
allan næsta dag að næsta stoppi,
sem var Röst á Hellissandi! Þannig
var nú vegakerfið á þeim tíma. En
fyrir vikið fékk maður tækifæri til
að kynnast landi og þjóð og ég sé
ekki eftir því.“
En Helena hefur einnig sungið
utan landsteinana. Og það fyrir
fólk með blátt blóð í æðum...
„Já, við flugum þrisvar sinnum til
Spánar og spiluðum á klúbbi á Mall-
orca. Eitt kvöldið var klúbbnum
lokað fyrir almenna gesti, því Spán-
arkonungur og Soffía kona hans,
ásamt Önnu Danaprinsessu og
Konstantín Grikkjakonungi, vildu
fá næði. Þar spiluðum við fyrir
þetta fína kóngafólk, sem þó var
auðvitað ekkert frábrugðið öðru
fólki. Og til þess að gleðja nú Önnu
prinsessu, ákváðum við að finna
e i 11 - hvert danskt lag handa
henni. En það eina á
prógramminu var
Der var en skikk-
elig bondemand,
semvið spiluðum
ádönsku! Húnvar
býsna ánægð með
það, held ég.“
Helena hefur sungið
margar íslenskar dægur-
perlur. Þar á meðal Hvíta
máva. En er hún ekkert leið
á því? Hvert laganna stendur
upp úr?
„Ég er nú þekktust fyrir Hvíta
máva sjálfsagt. Og nei, ég þreyt-
ist nú aldrei á því í rauninni, mér
þykir ávallt vænt um það því það er
svo fallegt lag. Annars held ég að
Bel Amí sé í uppáhaldi. Það er ofsal-
ega vel heppnað lag.“
En hvað með tónlistina í
dag? Hlustar Helena á popplög
nútímans?
„Já, já. Ekki mikið kannski en eitt-
hvað. Ég er ánægð með hvað unga
fólkið er ófeimið, þótt svo oft virðist
sumt meira gert fyrir augað en tón-
listina, í sjónvarpinu að minnsta
kosti. Annars vel ég tónlistina eftir
söngvurunum aðallega og held mig
mest í dægurklassíkinni. Reyndar
er ég alltaf mjög hrifinn af djassi
og hlusta svolítið á hann einnig,“
sagði Helena að lokum.
þriðjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
Su doku
5 3 8 6
2 7 6 3
7 1
7 2 8 9
9 5 8 7 2
4 2 1 5
1 7 6
7 9 1
5 8 9
Su Doku þrautin snýst um að raða tölunum frá 1-9 lárétt og
lóðrétt í reitina, þannig að hver tala komi ekki nema einu sinni
fyrir í hverri línu, hvort sem er lárétt eða lóðrétt. Sömu tölu má
aukin heldur aðeins nota einu sinni innan hvers níu reita fylkis.
Unnt er að leysa þrautina út frá þeim tölum, sem upp eru gefnar.
5-27
© LaughingStock Intomatlonal lnc./dlst. by Unitsd Modla, 2004
HERNIAr
eftir Jim Unger
Ég er í framboði sem
fulltrúi litla fólksins.