blaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 14
14
LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
blaöið
Gunnar Helgi Kristinsson, prófessor í stjórnmálafræði við Háskóla íslands:
Áttu að breyta stjórnarskránni
■ Ber sterkan keim af kosningavetri ■ Framsóknarflokkurinn kemur laskaður undan vetri ■ Vinnubrögð þingsins gagnrýnd
Eftir Trausta Hafsteinsson
og Heiðu Björk Vigfúsdóttur
,Lög um opinber hlutafélög standa
ofarlega í mínum huga sem merkur
áfangi ásamt lögum um fjármál
stjórnmálaflokkanna. Bæði þessi
mál eru stór áfangi þó að í báðum
tilvikum megi gagnrýna fyrirkomu-
lagið. Það sem blasir við að vantar
í löggjöfina eru stjórnarskrárbreyt-
ingar og löggjöf um léttvín í versl-
unum,“ segir Gunnar Helgi Krist-
insson, prófessor í stjórnmálafræði
við Háskóla Islands, þegar hann
er inntur eftir mikilvægustu mál-
unum sem náðu í gegn og ekki á ný-
liðnu þingi.
Hundrað þrítugasta og þriðja
þinghaldi lauk um nýliðna helgi og
fjöldi mála sat eftir á listanum yfir
óafgreidd mál. Af 212 frumvörpum
til laga urðu alls 114 að lögum, tvö
voru afturkölluð, tveimur var vísað
til rikisstjórnarinnar og 94 voru
ekki afgreidd. Þingi hefur verið
frestað fram yfir alþingiskosningar
12. maí.
Léleg vinnubrögð
Baldur Þórhallsson,
prófessor í stjórnmála-
fræði við Háskóla íslands,
telur mestu vonbrigði þing-
vetrarins vera ósamstöðu
um breytingar á stjórnar-
skránni. Hann furðar sig
oft á störfum þingsins. „Að
ekki hafi tekist að end-
urskoða stjórnarskrána
finnst mér standa upp
úr. Mikil vinna var lögð
í það en engin sátt náðist.
Klúðrið í kringum auðlindaákvæðið
og að fjölmiðlafrumvarpið hafi ekki
náð í gegn vakti óneitanlega athygli,“
segir Baldur.
„Merkilegt þótti mér að ríkis-
stjórnin náði í gegn frumvarpi um
Ríkisútvarpið þrátt fyrir mikla and-
stöðu. Hins vegar saknaði ég þess að
sjá ekki lagt fram frumvarpið um
jafnréttismálin. 1 raun vil ég segja
að vinnubrögðin á þinginu, þegar
málin eru látin hrúgast svona upp,
ná ekki nokkurri átt. Slík vinnu-
brögð eru mjög ankannaleg
Merkilegustu málin
Gunnar Helgi segir þróunina um
opinber hlutafélög nýja af nálinni
og að fyrirkomulagið sé nokkuð
vafasamt. Aftur á móti telur hann
lög um fjármál flokkanna nauðsyn-
leg og saknar laga um sölu
léttvína. „Þessi þróun er
mjög umdeild og
hugsanlega
Eins og hálfgert
spennufall hafi
orðið þegar
Davíð fór út
Gunnar Helgi Kristinsson,
prófessor í
stjórnmálafræöi.
Ríkisstjórnin
hefurátt tölu-
vert undir högg
að sækja
Baldur Þórhallsson,
prófessor í
stjórnmálafræói.
vafasöm. Ástæðurnar fyrir þessu
rekstrarformi eru dálítið óljósar og
kannski hæpnar. ísland var orðið
að nátttrölli fyrir að hafa ekki haft
neinar almennilegar reglur um
fjármál flokka,“ segir Gunnar
Helgi. „Það eru stórkostleg af-
glöp að hafa ekki komið í gegn
frumvarpinu um afnám einka-
sölu ÁTVR á léttu víni. Núver-
andi mynd fylgir óhagræði
og mismunun. Síðan
virðist búið að skapa
þá hefð að ná ekki
fram
ingum á stjórnarskránni,
hvað reynt er.“
sama
r
sfe'
Erfiður vetur fyrir
Framsóknarflokkinn
Baldur telur veturinn bera
þess glögglega merki að kosn-
ingar séu framundan. Hann segir
samstarf ríkisstjórnarflokkanna
oft hafa verið betra en nú er. „Það
er búinn að vera átakavetur í þing-
inu og stjórnarandstaðan hefur sótt
hart að stjórnarflokkunum, með
býsna góðum árangri þar sem rík-
isstjórnin hefur átt töluvert undir
högg að sækja. Þetta hefur
í raun verið mjög týpískt
kosningaþing,“ segir
Baldur. „Fram-
ÞINGHALDIÐ I VETUR:
Frá 2. október til 9. desember 2006 og frá
15. janúartil 18. mars 2007.
Þingfundirnir 96 stóðu alls í 544 klukku-
stundir og 32 mínútur.
Lengsti þingfundurinn stóð í rúmlega 16
klukkustundlr.
Lengsta umræðan var um frumvarp um
Ríkisútvarpið ohf. sem stóð i tæpar 70
klukkustundir.
Baráttan
heldur áfram
Ágúst Ólafur Ágústsson
varaform. Samfylkingarinnar
Minna spennandi Gunnar Helgi
Kristinsson, prófessor i stjórnmála-
fræði, telur nýliðið þinghald hafa
verið minna spennandi en oft áður.
Vinnubrögð þingsins eru gagnrýnd
þar sem mikilvæg þingmál eru látin
hrúgast upp á síðustu dögum þings
1
mm
sóknarflokkurinn hefur mest fengið
að finna fyrir vendinum enda verið
að stýra erfiðum málum. Stóriðjan,
umhverfismál og Byrgið hefur
komið illa út fyrir flokkinn og hann
kemur býsna laskaður undan vetri.“
Lítill hasar
Á heildina fannst Gunnari Helga
nýliðinn þingvetur minna spenn-
andi en oft áður. Líklega skýringu
telur hann vera fráhvarf fyrrum for-
manns Sjálfstæðisflokksins. „Það
er eins og hálfgert spennufall hafi
orðið þegar Davíð fór út. Lítill hasar
hefur verið í umræðunni og því
ekki eins spennandi að fylgjast
með, þó svo að hasarnum
fylgi oft ómálefnaleg pól-
itík,“ segir Gunnar Helgi.
„Þinghaldið hefur markast
nokkuð af krísu Framsókn-
arflokksins og örðugleikum
í stjórnarsamstarfinu.
Framsóknarmenn hafa
fengið mestu skell-
ina í samstarfinu
og örvænting farin
að ríkja á þeim
bænum.“
Allir vegir
á láglendi
Magnús Þór Hafsteinsson,
varaform. Frjálsl. flokksins
Breytingar
eru líka sigur
Steingrimur J. Sigfússon
formaður Vinstri grænna.
Ohefðbundii
fjármögnun
Geir H. Haarde,
forsætisráðherra
Dauðalisti U
andstöðunnar
Hjálmar Árnason
þingfl.form. Framsóknarfl.
Fagnar
■ Kynferðisbrotamál
Ég er mjög ánægður með að það tókst
að afnema fyrninguna í kynferðisbrotum
gegn börnum.
■ Störf án staðsetningar
Mjög mikilvægt mál fyrir landsbyggðina
sem Össur Skarphéðinsson barðist fyrir.
Þannig verða opinber störf skilgreind
eftir því hvort hægt er að vinna þau hvar
sem er.
■ Breiðavíkurnefnd
Sú nefnd á ekki bara að skoða málefni
fyrrum Breiðavikurbarna heldur öll heim-
ili sem börn voru vistuð á og koma með
tillögur til úrbóta.
Saknar
■ Matvælaverð
Það er leitt að tillögur Samfylkingarinnar
um enn frekari lækkun á matvælaverði
náðu ekki í gegn. Við þurfum að halda
þeirri baráttu áfram.
■ Fæðingarorlof
Stórt mál sem við börðumstfyrir breyt-
ingum á.
■ Eldri borgarar
Því miður komust tillögur okkar um stór-
felldar kjarabætur fyrir eldri borgara ekki
í gegn. Sú barátta heldur því áfram.
Fagnar
■ Láglendisvegir
Fagna því að farið verði í að gera
jarðgöng á ákveðnu árabili þannig að
allir vegir verði komnir á láglegndi eftir
ákveðinn árafjölda.
■ Vatnajökulsþjóðgarður
Mikilvægt náttúruverndarmál. Nú er það
komið á hreint að það er búið að friða
svæðið. Tel að það sé mjög mikilvægt.
■ Vegalög
Mér sýnist að þau muni opna það að farið
verði strax í framkvæmdir við Sundabraut-
ina sem ég tel að sé mikið hagsmunamál.
Saknar
■ Textun
Mál frá okkur í flokknum að það sé
skylda sjónvarpsstöðva að texta allt efni
fyrir fólk og ekki síst heyrnarskerta.
■ Skattamál
Að fólki yrði gefin heimild til að draga frá
skatti ferðakostnað til og frá vinnu eins
og er víða í nágrannalöndunum.
■ Sjávarútvegur
Við vildum heimila það að allir fslend-
ingar mættu fá að róa á eigin bát með
tveimur handfærarúllum. Það ætti að
vera sjálfkrafa réttur allra án þess að
hafa kvóta.
Fagnar
■ Vatnajökulsþjóðgarður
Sú ákvörðun að setja lög um þjóðgarðinn
er mikilvæg, þrátt fyrir að fyrirkomulagið
sé umdeilt.
■ Vestf irðir
Gagnlegt var að fá samþykkt fyrir úttekt
á möguleikum Vestfjarða sem miðstöðvar
þjónustu og siglinga á Norðurhöfum.
■ Vegalög
Við náðum fram mikilvægum breyting-
um á vegalögum þar sem tekið er á
einkavæðingarákvæðum. Stundum næst
ekki síst góður árangur í því að ná fram
breytingum á málum.
Saknar
■ Vændisbaráttan
Því miður hafðist ekki í þessari umferð að
innleiða sænsku leiðina í baráttunni gegn
kláminu. Þessari baráttu verðum við að
halda áfram.
■ Umhverf isréttur
Þó svo að frumvarpið sé ekki gallalaust
hefði ég viljað sjá þetta ná i gegn. Það
er hneisa að ekki hafi fyrir löngu verið
lögfestar reglur um umhverfisrétt.
■ Jafnréttismál
Ég hefði viljað drífa nýja frumvarpið um
jafnréttismál í gegn til afgreiðslu.
Fagnar
■ Metanbílar
Frumvarpið sem snerist um að fella niður
vörugjald á metanbílum. Þetta er mikið
framtíðarmál og umhverfismál.
■ Vatnajökulsþjóðgarður
Þetta er stórt mál og mjög ánægjulegt að
hafi farið i gegn.
■ Vegalög
Nýju vegalögin opna fyrir möguleika á
óhefðbundinni fjármögnun á samgöngu-
framkvæmdum.
Saknar
■ Samgöngumál
Það hefði verið mjög æskilegt að ná fram
langtímaáætlun í samgöngumálum.
■ Flugvallastarfsemi
Þetta er frumvarp sem ekki kom inn í
þingið. Er um tilflutning á flugvallastarf-
semi á Keflavíkurflugvelli á milli ráðu-
neyta yfir í Samgönguráðuneytið. Vona
að það verði hægt að ganga frá þessu að
fullu eftir kosningar.
■ Stjórnarráð íslands
Ekki var sameiginleg niðurstaða flokk-
anna í því að gera lágmarksbreytingar á
stjórnarráðslögunum. Ákvað þess vegna
að vera ekki að flytja frumvarp núna og
láta það bíða fram yfir kosningar.
Fagnar
■ Matarskattur
Lækkun á matar- og tekjuskatti eykur
ráðstöfunartekjur allra heimila í landinu
og því ber að fagna.
■ Vetnisvæðing
Nokkur frumvörp fóru í gegn sem lúta að
vetnistækni og vistvænum ökutækjum.
Þannig leggjum við enn frekari grunn að
því að vera áfram forystuþjóð í hreinu
andrúmslofti.
■ Ferðasjóður íþróttafélaga
Þetta er persónulegt baráttumál mitt
sem loksins fór í gegn og mikilvægt að
mínu mati.
Saknar
■ Auðlindafrumvarpið
Um málið var enginn efnislegur ágrein-
ingur en það strandaði hins vegar vegna
upphlaups og sýndarmennsku stjórnar-
andstöðunnar.
■ Auðlindir i jörðu og á hafsbotni
Dæmi um annað þarft frumvarp sem
stjórnarandstaðan setti á dauðalistann
hjá sér.
■ Hægri beygja
Ég er alltaf jafn hissa á að þetta mál,
hægri beygja á rauðu Ijósi, hafi ekki kom
ist í gegn í sjöttu atrennu.