blaðið - 24.03.2007, Blaðsíða 50
50
LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
blaðið
helgin
Leiklistardagar 2007 standa sem hæst
helgin@bladid.net
Leiklistarveisla um helgina
að verður mikið um
dýrðir á Leiklistar-
dögum 2007 sem
hófust í gær og lýkur
með leiklistarþingi
sem fram fer 1 Leik-
húskjallaranum á
Alþjóðlega leiklistar-
deginum næstkomandi þriðjudags-
kvöld.
I dag og næstu daga standa leik-
hús landsins síðan fyrir ýmsum
uppákomum svo sem umræðum
um sýningar og opnum húsum auk
þess sem sums staðar verða sérstök
tilboð á leikhúsmiðum.
Áhorfendum á söngleiknum Legi
eftir Hugleik Dagsson í Þjóðleik-
húsinu gefst í kvöld tækifæri til að
spjalla við leikara úr sýningunni
og leggja fyrir þá spurningar að
leik loknum.
Á morgun, sunnudag, verður boð-
ið upp á sams konar umræður áhorf-
enda og leikara að lokinni seinni
sýningu á verkinu Sitji Guðs englar
eftir Guðrúnu Helgadóttur. Sýning-
in hefst kl. 17.
Opin æfing á Gretti
1 Borgarleikhúsinu verður hald-
inn umræðufundur um listgagn-
rýni í forsal Borgarleikhússins á
morgun kl. 18. Sérstakur gestur
fundarins verður Donald Hutera
dansgagnrýnandi en aðrir þátttak-
endur verða María Kristjánsdóttir
leiklistargagnrýnandi og Lilja Ivars-
dóttir dansgagnrýnandi. Ragnheið-
ur Skúladóttir stjórnar umræðum.
Á mánudag kl. 10-12 verður síðan
almenningi boðið á opna æfingu á
söngleiknum Gretti. Á þriðjudag
munu síðan dansarar íslenska dans-
flokksins og leikarar Leikfélags
Reykjavíkur gera innrás í Kringl-
una kl. 12 og þá verður opinr sam-
lestur á Lík í óskilum eftir Aníhony
Neilson kl. 13:30.
Leiklistarþing
Leiklistardögum lýkur með
leiklistarþingi í Leikhúskjallaran-
um á þriðjudag kl. 19. Yfirskrift
leiklistarþingsins er Innrás/útrás
og frummælendur verða Richard
Gough, stofnandi Performance Stu-
dies international í Bretlandi, Elena
Krúskemper, listrænn stjórnandi
LÓKAL alþjóðlegu leiklistarhátíðar-
innar á f slandi, Katrín Hall, listrænn
stjórnandi íslenska dansflokksins
og Ingvar E. Sigurðsson leikari. Allir
eru velkomnir meðan húsrúm leyfir.
ilá.
‘Brimborg og Mazda áskilja sér rétt til að breyta verði og búnaði án fyriivara og að auki er kaupverð háð gengi. Aukabúnaður á myndum
og 17" áltelgur. Nánari upplýsingar veita söluráðgjafar Brimborgar.
Veldu þann sem
þér líkar best
■ Mazda hefur lægstu bilanatíðni allra bíla samkvæmt
rannsókn tryggingafélagsins Warranty Direct. Helmingi ÆSSSKr, Spurðu um endursöluverð á Mazda.
lægri en Toyota. Hagsýnn fslendingur velur praktískah\ m Komdu í nýjan og glæsilegan
og fallegan bíl. Þess vegna eru gæði Mazda góður \ "Mltm Sn'íw9h ^azda h^a Brimbor9
kostur fyrir þig. Veldu þann sem þér líkar best. - 1 so a
Uppgötvaðu nýja og betri þjónustu Mazda á fslandi.
Veldu sportlega og praktíska hönnun. Núna Mazda3. Y
Spurðu Mazda eigendur
um þjónustu Brimborgar.
Komdu í Brimborg og
reynsluaktu Mazda3.
Hippaball í Eyjum
Andi hippatímabilsins ríkir í Vest-
mannaeyjum þessa dagana þar
sem Listahátíð hippans er haldin í
sjötta skipti. Markmið hátíðarinnar
er að varðveita þá listsköpun sem
leystist úr læðingi á þessu tímabili
blóma, friðar og ásta. í gær var til
dæmis haldin nytjalistamarkaður og
þjóðlagakvöld þar sem jafnt þekktir
sem óþekktir listamenn
komu fram. Hámarki
nær hátíðin í kvöld
með hippaballi í
Höllinni. Hippa-
bandið leikur fyrir
dansi og verða
ballgestir klæddi
í anda blóma-
tímans í víðum
mussum og
með blóm í hári.
Operukórinn flytur
Carmina Burana
Um 140 listamenn taka þátt í
flutningi Óperukórsins í Reykjavík
á Carmina Burana eftir Carl Orff í
Langholtskirkju á morgun, sunnu-
dag, kl. 17 og aftur kl. 20. Kórinn
hefur fengið til liðs við sig slag-
verksleikara Sinfóniuhljómsveitar
fslands, Sinfóníuhljómsveit áhuga-
manna, unglingakór Söngskólans
í Reykjavík og einsöngvarana Sig-
rúnu Hjálmtýsdóttur sópran, Þor-
geir J. Andrésson tenór og Bergþór
Pálsson barítón.
Carmina Burana er eitt af vin-
sælustu tónverkum samtímans og
er byggt á kvæðasöfnum Búrans-
klausturs frá því um 1300. Inngang-
ur þess fjallar um örlagagyðjuna
Fortúnu, drottningu heimsins, og
um hverfulleika hamingjunnar.
Fyrsti þáttur fjallar um vorið og feg-
urð náttúrunnar, annar þáttur um
gleði og drykkjusöngva á kránni
og þriðji þáttur felur í sér tíu ástar-
kvæði og eru sum þeirra æði djörf.
Á morgun eru 70 ár frá því að
Carmina Burana var frumflutt í
Frankfurt am Main. Sérstakur heið-
ursgestur á tónleikunum verður
ekkja tónskáldsins Carls Orff, frú
Liselotte Orff.
Óperukórinn í Reykjavík hefur
nokkrum sinnum áður flutt verkið
Bergþór Pálsson Bergþór
er einn þriggja einsöngvara
sem koma fram með Óþeru-
kórnum í uppfærslu hans á
£ Carmina Burana.
ýmist að hluta eða í heild og nýtur
það sérstakra vinsælda meðal kór
félaga.