blaðið - 24.03.2007, Qupperneq 20
20 LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
blaöiö
BURFELL
Sparskinka
Keykt
;kinka
Beikon
ninaaDiuqu
iparskmka
íutakjöt
Brauðskinka
Taðreykt
hangiálegg
Sparskinkí
Y
BURFELL
Búrfell
í nýjum
búningi,
álegg í nýjum og endur-
lokanlegum umbúðum.
Búrfell er heiti á fjalli ... raunar mörgum
fjöllum á íslandi sem öll eru svipuð að
lögun. Sumirtelja að heitið Búrfell sé
skírskotun til kistuformsins, nánar tiltekið
búrkistu eða matarkistu. Það er fín tilgáta.
Vörurnar frá Búrfelli eru Ijúffengar
gæðakjötvörur en á sérlega góðu verði.
Búrfellsáleggið er í endurlokanlegum
umbúðum, enda er gott að geta lokað
matarkistunni sinni.
Búrfell, góður matur á borð
Þrælar „Flestir sem eiga veiðiheimildir í dag
eru bara þrælarþessa afþorgunarkerfis og
virðast gera litið annað en að greiða afþeim
peningum sem var komið undan þegar veð-
setning veiðiheimildanna varleyfð."
Auðlindalygavefurinn
Undanfarið hefur duniðyfir okkur
enn ein fullyrðingalygabylgjan um
fiskveiðikvótann og stjórnarskrána.
Það er látið í veðri vaka að umræðan
snúist um náttúruauðlindir þjóð-
arinnar og hvernig tryggja megi í
stjórnarskrá að þjóðin eigi það sem .
hún á af náttúruauðlindum og hefur
alltaf átt og mun alltaf eiga, sama
hvað nokkrir óheiðarlegir stjórn-
málamenn plotta í reykfylltum bak-
herbergjum. Að festa í stjórnarskrá
að óheiðarlegir stjórnmálamenn
í framtíðinni eigi erfiðar með en
hinir óheiðarlegu stjórnmálamenn
fortíðarinnar að gefa einhverjum
hagsmunahópi í samfélaginu til-
teknar náttúruauðlindir þjóðar-
innar er fádæma farsi og sjónarspil.
Það er þó í takt við þá framkomu
sem fólkið í landinu þarf sí og æ
að þola af hálfu stjórnmálamanna
sjónarspilsins. Helstu forsvarsmenn
stjórnarflokkanna hafa undanfarið
rifið sig niður í rass í ræðustóli Al-
þingis til að sannfæra menn um að
þeim væri alvara akkúrat núna að
þjóðin ætti auðlindirnar.
Náttúruauðlindin horfin
En hvaða auðlindir eru það sem
þeir vilja akkúrat núna tryggja að
þjóðin eigi? Þannig var ástandið til
dæmis með fiskinn í sjónum þar til
fyrir stuttu að hann var eign þjóðar-
innar og enginn vefengdi það fyrr en
nokkrir slyngir, útsmognir og óheið-
arlegir stjórnmálamenn fundu það
út að það þurfti lítið annað en penna-
strik á Alþingi til að færa allan fisk-
inn í sjónum umhverfis landið um
Flestir sem eiga veiðiheimildir í dag
eru bara þrælar þessa afborgunar-
kerfis og virðast gera lítið annað en
að greiða af þeim peningum sem var
komið undan þegar veðsetning veiði-
heimildanna var leyfð. í eitthvað
hlýtur útgerðargróðinn að hverfa í
dag þar sem útgerðin virðast ekki
græða mikið.
Við viljum öll
spilin upp á
borðið og það
strax.
Umrœðan
kveðnu eigi alltaf að hafa átt fisk-
veiðiauðlindina. En brjálæðislega
klárir en óheiðarlegir stjórnmála-
menn hafa haft blekkingarkraft
til að dáleiða og vaða á skítugum
skónum yfir alla þannig að enginn
veit lengur hver á hvað.
MF: 011 spil upp á borðið
Er ekki mál til komið að segja
frá því á mannamáli hvað varð um
peningana sem teknir voru út úr
bankakerfinu í nafni fiskveiðiauð-
lindarinnar? Hvað varð um þessa
peninga? Hvar er þessi svikamylla
stödd í dag? Er verið að hengja það
um hálsinn á þjóðinni með núver-
andi breytingum á stjórnarskránni
að þjóðin ábyrgist að greiða bönk-
unum þetta til baka til að unnt sé að
halda áfram fiskveiðum við landið?
ókominn tíma í vasa nokkurra að- .................................^i?ur??y ?í?Vr^S.S.0.n. Eru þetta fyrirmæli sem bankarnir
ila. Þetta fór þannig fram að gefnar
voru út veðheimildir til að veðsetja
fiskinn í sjónum og þessir örfáu
einstaklingar eða fyrirtæki sem þá
„áttu“ veiðiheimildirnar tóku einfald-
lega risalán í bönkunum gegn veði
í óveiddum fiski sem kallast því
ágæta nafni „kvóti“ eða „veiðiheim-
ildir“. Fjármunir sem mynduðust
við þetta voru að því virðist fluttir
að stórum hluta úr landi. Þessi upp-
hæð nam líklega tugum ef ekki
hundruðum milljarða. Þar með var
þessi náttúruauðlind horfin á braut
frá þjóðinni í vösum nokkurra
góðkunningja hinna óheiðarlegu
stjórnmálamanna. Síðan seldu hinir
„heppnu“ það sem kallað er kvóti eða
veiðiheimildir en nú var veiðiheim-
ildin ekki lengur „ókeypis“ eins og
þegar þeir fengu hana heldur fylgdi
afborgunarbyrði veiðiheimildinni
af þessum risafúlgum sem dregnar
voru út úr bankakerfinu þegar veð-
setning veiðiheimildanna fór fram.
Óheiðarlegir stjórnmálamenn
Umræðan undanfarna daga um
að setja í stjórnarskrá að þjóðin eigi
auðlindirnar og þar með fiskveiði-
heimildirnar virðist því vera lítið
annað en að tryggja í stjórnarskrá
að þjóðin en ekki útgerðin skuldi
bönkunum þennan pening, þessa
tugi eða hundruð milljarða sem
voru dregnir út úr bönkunum með
heimild í lögum frá Alþingi þar
sem óheiðarlegir stjórnmálamenn
opnuðu fyrir það að þessi auðlind
færi eins og hún lagði sig úr landi
í peningum á nafni örfárra einstak-
linga. Það eina sem eftir er að setja
í stjórnarskrá er sem sagt að þjóðin
skuldi bönkunum þennan pening.
Um það er rifist í dag, hvernig eigi
að orða það að þjóðin skuldi örugg-
lega þennan pening og „trikkið" er
að ef til vandræða kemur þá á þjóðin
að greiða auðlindina í annað sinn úr
sínum vasa í peningum þó hún í orði
hafa gefið núverandi viðskiptaráð-
herra sem lætur í veðri vaka að hann
vilji bara standa við stjórnarsáttmál-
ann við samstarfsflokkinn? Það að
afborgun af þessari milljarða pen-
ingaúttekt sé orðin svo há að útgerð-
irnar í landinu hafi ekki bolmagn
til að greiða af þessu bendir til að
sá tími nálgist óðum að núverandi
útgerðir sem keyptu fiskveðiheim-
ildirnar af þeim sem fengu þær frítt
og veðsettu þessar veiðiheimildir og
fóru burt með peningana, geti ekki
lengur greitt af þessum þjófapen-
ingi. Að núverandi eigendur standi
ekki lengur undir afborgunum af
þessari spillingaraðgerð stjórnmála-
og útgerðarmanna fyrri tíma þegar
þeir veðsettu veiðiheimildirnar og
fóru með peningana úr landi eða
földu þá undir koddanum.
Við viljum öll spilin upp á borðið
og það strax.
Höfundur er verkfræðingur.
A1 er hið besta mál, án
stækkunar í Straumsvík
1 vikunni skrifaði undirrituð grein
um „mikilvægi” Alcan í samfélag-
inu. Undirrituð hefur ekkert á móti
álverinu í Straumsvík né vinnslu á
áli. 1 raun er ál mjög hentugt efni
út frá mörgum sjónarmiðum. Á1 er
afar léttur málmur og því lágmarks-
kostnaður við allan flutning þess og
notkun. Á1 ryðgar ekki og því hent-
ugt í rakaþolnum tilgangi, enda
notað víða s.s. í umbúðir, byggingar-
og iðnaðarvörur, bíla, flugvélar og
í geimfarartæki! Á1 hefur þann um-
hverfisvæna kost að vera algjörlega
endurvinnanlegt.
800 milljónir tonna
Frá árinu 1888 hafa verið fram-
leiddar um 8oo milljónir tonna af
áli og talið er að 75 prósent þess séu
enn í notkun. Áætlað er að álnotkun
í heiminum muni aukast um 3-5 pró-
sent á ári að meðaltali á komandi
árum og muni tvöfaldast fyrir árið
2025. Til að endurvinna ál þarf ein-
ungis 5 prósent af þeirri orku sem
frumvinnsla þess krefst. Það þýðir
að í stað þess að frumframleiða ál,
gætu Islendingar tekist á við endur-
vinnslu á áli án frekari orkuþarfar,
sem svarar til 95 prósent aukningu
á álafurðum.
Umrœðan
Frá árinu 1888
hafa verið fram-
leiddar um 800
milljónir tonna
afá
Sigriður Lárusdóttir
Dýrmæt auðlind
1 stað þess að ráðstafa enn frekar
þeirri dýrmætu auðlind sem raforkan
er til frumframleiðslu áls, gætum við
tekið að okkur endurvinnslu á marg-
földu því magni með sömu orku-
notkun og nú er. Einnig væri vert að
skoða möguleika Islendinga á því að
fullvinna frekar ál og auka þar með
verðmæti hér á landi, í stað þess að
flytja það út öðrum til virðisauka.
Á þennan hátt yrði ekki bara
meiri virðisauki í vörunni sjálfri,
heldur einnig í hönnunarvinnu, hug-
viti, afleiddum störfum og svo fram-
vegis þar sem meiri þekking þýðir
verðmætari störf og verðmætari
störf þýða meiri tekjur fyrir íslenskt
þjóðarbú.
Undirrituð hvetur Hafnfirðinga
til þess að segja nei við nýju deili-
skipulagi og þar með stækkuðu
álveri þann 31. mars næstkomandi.
Tökum höndum saman og mótum
stefnu til framtíðar með virðisauka í
huga, okkur og afkomendum okkar
til handa.
Heimildir: Árbók VFl/TFÍ2005
Höfundur er Kfeindafræðingur B.Sc.