blaðið - 24.03.2007, Síða 47
blaðið
LAUGARDAGUR 24. MARS 2007
47
Steinunn Vala Sigfúsdóttir
„Ég sé ekki eftir þessum tíma því
ég fékk mörg tækifæri ikjölfarið.
þetta varþess virði og hefur
kennt mér mikið en þegar ég lít til
baka þá var þetta erfitt. “
Hef ákveðnar skoðanir
Af framgöngu Steinunnar Völu
í verkfallinu var ljóst að þar væri
ákveðin ung kona á ferð enda segist
hún hafa ákveðnar skoðanir á sam-
félaginu. „Ég var ellefu ára gömul
þegar ég byrjaði að lesa blöðin, þetta
var mjög meðvituð ákvörðun hjá mér
og ég hugsaði með mér að nú væri ég
orðin nógu stór til að lesa Morgun-
blaðið. Ég píndi mig til að lesa það því
mér fannst það nú yfirleitt leiðinlegt.
Ég hef enn þá mjög gaman af að fylgj-
ast með og hef ákveðnar skoðanir á
flestu. Þegar ég var formaður félags
framhaldsskólanema hélt ég reglu-
lega fundi með nemendunum til að
fá þeirra viðbrögð. Ég fann að þeir
sem eru í forystu og í svona hlutverki
hafa ótrúlega mikil völd. Ég fann að
ég vissi aðeins meira en hinir nem-
endurnir því ég var í þessari stöðu og
þá fann ég hve auðvelt er að sannfæra
fólk og fá það á sitt band. Fólk segir
stundum að stjórnmálafólk hafi
engin völd en ég er ekki sammála
því. Sem einstaklingur getur maður
haft ótrúlega mikið að segja um sam-
félagið sem maður býr í. Við þetta
tækifæri fann ég að það er virkilega
hlustað á það sem maður hefur að
segja.“
„Ég kom aftan að
honum og það helltist
yfir mig sú tilfinning
að hann væri aleinn,
einn, lítill og einmana.
Ég bara varð að eignast
annað barn því ég gat
ekki látið hann fara
einan í gegnum lífið."
Líkar vel við flesta
Steinunn Vala vill hins vegar ekki
kannast við að hún stefni á frama í
stjórnmálum. „Á meðan verkfallinu
stóð fór ég á nokkra fundi með Geir
H. Haarde, þáverandi fjármálaráð-
herra, og Birni Bjarnasyni, þáverandi
menntamálaráðherra, og þeir reynd-
ust mér mjög vel. Það má segja að
þeir hafi orðið til þess að ég fór í Sjálf-
stæðisflokkinn. Éghefþví unnið tölu-
vert fyrir flokkinn, var í einhverjum
nefndum og talaði á landsfundi
Sjálfstæðisflokksins en svo eignað-
ist ég börn og hef ekki tíma í þetta
lengur. Mér finnst gaman að stússast
í stjórnmálum og ég hef oft hugsað
með mér að þetta væri kannski minn
vettvangur af því mér finnst gaman
í félagsstörfum. En svo er til dæmis
einn vinkill á stjórnmálum sem er af-
skaplega leiðinlegur og það eru próf-
kjörin og baráttan. Ég vil að öllum
líki vel við mig og mér líkar vel við
flesta. Mér finnst allt í lagi að takast
á við einhvern en ef þú ætlar að koma
þér áleiðis í þínum flokki þá þarftu
að hafa stuðningsmenn sem ætla að
kjósa þig fram fyrir hina. Ég er lítið
fyrir þess háttar baráttu."
Stolt af því að vera tvíburi
Steinunn Vala á tvö börn með
unnusta sínum, Stefáni Eiriks Stef-
ánssyni, tveggja ára strák og fimm
mánaða strák. „Það er svolítið í stíl
við mig að eiga tvö börn með stuttu
millibili. Ég hef oft hugsað um það
af hverju ég velji mér alltaf erfiðar
leiðir í lífinu. Ég valdi mér erfitt
nám, fór ein norður þegar ég var
tiltölulega ung og hef tekið mikið
að mér. Þegar eldri sonur minn var
sjö mánaða hóf ég að setja hann i
pössun annars slagið. Eitt sinn þegar
ég kom að sækja hann í pössun sat
hann einn á gólfinu með lítið dót. Ég
kom aftan að honum og það helltist
yfir mig sú tilfinning að hann væri
aleinn, einn, lítill og einmana. Ég
bara varð að eignast annað barn því
ég gat ekki látið hann fara einan í
gegnum lífið. Ég hef náttúrlega alltaf
haft einhvern, ef einhver var að
stríða mér var tvíburabróðir minn
strax mættur og öfugt. Það er margt
líkt með okkur systkinunum og
við eigum margt sameiginlegt. Við
völdum til dæmis svipað nám, hann
fór i rafmagnsverkfræði og ég í bygg-
ingarverkfræði. En að öðru leyti
erum við ólík, ég er frekar róleg en
hann getur verið svolítið stressaður.
Við höfum náttúrlega alltaf fylgst að
og það eru hlutir sem ég deili með
honum sem ég veit að önnur systk-
ini deila ekki með hvort öðru. Hann
veit allt um mig og við erum mjög
náin. Þetta er mjög skemmtilegt og
ég er mjög stolt af því að vera tví-
buri. Ég nánast vorkenni þeim sem
eiga ekki tvíbura því þá á maður sér
alltaf einhvern bandamann.“
Gerðist allt frekar hratt
Þrátt fyrir að oft sé mikið að gera
segist Steinunn mæla með því að
eignast tvö börn með stuttu milli-
bili. „Þetta er reyndar dálítið erfitt
en ofsalega skemmtilegt. Oftast
finnst mér þetta mjög þægilegt og
þetta gengur miklu betur en ég bjóst
við. Bræðurnir eru strax farnir að
tengjast og eldri strákurinn leikur
við þann yngri. Ég bind miklar vonir
við að þeir verði ofsalega góðir vinir
og hafi ofan af fyrir hvor öðrum.
Kannski eignast ég fleiri börn
seinna en ekki á næstunni. Maður-
inn minn var alveg til í annað barn ”
en núna hefur hann áhyggjur ef ég
sé óléttar konur og brosi,“ segir Stein-
unn Vala og hlær en hún og Stefán
kynntust í MA. „Við byrjuðum í
skólanum á sama tima og vorum í
sama vinahópi. Við fórum tvisvar á
stefnumót en það varð ekkert meira
úr því. Svo kynntist hann tvíbura-
bróður mínum þegar þeir voru í há-
skólanum og þeir urðu mjög góðir
vinir. Fljótlega eftir það kviknuðu*
einhverjir neistar á milli okkar og
við fórum að vera saman. Núna
erum við búin að vera saman í rúm
þrjú ár og það gerðist því allt frekar
hratt hjá okkur. Hins vegar erum við
bæði mjög sátt við það, við höfðum
þekkst lengi þegar við byrjuðum
saman, vissum hvað við vildum og
vorum reynslunni ríkari."
svanhvit@bladid.net
eso
dekor
BÆJARLIND 12 - S: 544 4420
Tilboðsvörur í mars