blaðið - 04.05.2007, Page 1

blaðið - 04.05.2007, Page 1
Fjölbreytt Listahátíð Hrefna Haraldsdóttir, framkvæmda- stjóri Listahátíðar, segir aö flestir ættu að finna eitthvað við sitt hæfi af þeim listviðburðum sem boðið I verður upp á í ár. f* 1 Oryggi á heimilum Það sem virkar hversdagslegt og saklaust á heimilinu í augum fullorðinna getur í augum barns . verið spennandi en jafnframt || stórhættulegt leikfang. Söngkonan Jóhanna Guörún hefur undanfarin ár verið meö annan | fótinn í New York og Los Ange- í les þar sem hún vinnur að nýrri [ plötu með þekktu fólki. SÉRBLAÐ »21-28 82. tölublað 3. árgangur föstudagur 4. maí 2007 FRJALST, OHAÐ & OKEYPIS! Jón Ásgeir og Tryggvi áfrýja í Baugsmálinu: Sakfellt í fyrsta sinn ■ Jón Gerald segir sér hafa veriö mútað ■ Kostnaður ríkissjóðs 104 milljónir Eftir Magnús Geir Eyjólfsson magnus@bladld.net Jón Ásgeir Jóhannesson var í gær fundinn sekur um brot á hegningarlögum og dæmdur í þriggja mánaða skilorðsbundið fangelsi. Tryggvi Jóns- son, fyrrum forstjóri Baugs, var dæmdur í níu mánaða skilorðsbundið fangelsi fyrir hegningar- lagabrot og meiriháttar bókhaldsbrot. Þetta er í fyrsta sinn sem dómur endar með sakfellingu í Baugsmálinu. Þeir ætla báðir að áfrýja. I yfirlýsingu frá stjórn Baugs Group, sem Hreinn Loftsson stjórnarformaður skrifar undir, segir að sakfellingin sé byggð á veikum grunni og að verulegar líkur séu á að áfrýjun leiði til sýknu. Hvorki verjendur Baugsmanna né settur ríkissaksóknari í málinu voru ánægðir með niðurstöðuna. Af orðum þeirra að dæma má ætla að málinu verði áfrýjað til Hæstaréttar. Gestur Jónsson, verjandi Jóns Ásgeirs, segir það vonbrigði að komið hafi til sakfellingar. Jakob Möller, verjandi Tryggva, tók í sama streng og sagði það aldrei hafa hvarflað að honum að refsingin yrði jafnþung og raun ber vitni. Hann sagði þó að hafa bæri hugfast að eingöngu sé um skilorðsbundna dóma að ræða. Kostnaður ríkissjóðs vegna málsins nemur rúmum 104 milljónum króna og er þá ótalinn rannsóknarkostnaður og kostnaður vegna ann- arra hluta málsins. Af þessari upphæð er kostn- aður setts ríkissaksóknara 50 milljónir. Ákæru á hendur Jóni Gerald Sullenberger var vísað frá dómi. Hann var ánægður með þá nið- urstöðu og segir málinu lokið af sinni hálfu. í samtali við Blaðið í gær fullyrti hann að forstjóri Kaupþings hafi í ágúst 2002 boðið honum 2 millj- ónir króna fyrir að draga málið til baka og þegja. I yfirlýsingu frá Kaupþingi segir að hvorki for- stjóri Kaupþings banka né aðrir starfsmenn hans hafi nokkurn tíma gert Jóni Gerald slíkt tilboð og ásakanir hans séu því fráleitar. FRÉTTIR » 4 Eignir gætu breyst í skuldir „Ef krónan veikist skyndilega gætu þeir sem eru með húsnæðislán í erlendri mynt farið að skulda í stað þess að eiga í húsnæðinu sínu,“ segir Már Mixa, sérfræðingur hjá NordVest verðbréfum, en í grein sem hann skrifar í Blaðið í dag kemur fram að erlendar lántökur heimilanna hafa aukist um 150 prósent á síðustu tólf mánuðum. FRÉTTIR » 6 250 pantanir á 10 milljónir stykkið Rúmlega 250 manns hafa pantað nýjan Land Cruiser, svokallaðan Land Cruiser 200, þrátt fyrir að nánast engar upplýs- ingar liggi fyrir um hann ennþá og þrátt fyrir að bíllinn komi ekki á markað fyrr en um næstu áramót. Enn er ekki komið í Ijós hvað bíllinn mun kosta, en ekki þykir ólíklegt að verðið fari yfir 10 milljónir. FRÉTTIR » 2 Hjartað sló hraðar hjá Þórunnbjörgu: Sá slána skella á rúðunni „Hjartað er vart komið á rétt ról,“ segir Þórunnbjörg Sigurðardóttir, ökumaður á Íjósbrúnum Dodge Stratus-fólksbíl. Er hún ók eftir Miklubraut rúmlega ellefu í gær- morgun féll brúaröryggisslá á bíl- rúðuna hjá henni, kastaðist þaðan á húdd bílsins og á sendibifreið. „Ég var nýbúin að líta á hraðamæl- inn og sá að ég var á 63 kílómetra hraða. Reynslan var hörmuleg því ég sá stöngina ekki fyrr en hún lenti á rúðunni. Ég snöggbremsaði.“ Þórunnbjörg segir að fólk hafi flykkst að henni og spurt um líðan en til allrar lukku hafi hvorki hún né aðrir slasast. Ökumaður á vörubíl með ófrá- gengnum krana olli slysinu. Um- ferðin um Miklubraut í vestur stöðv- aðist í nærri klukkustund. Stopp undir öryggisslá Umferð um Miklubraut í vestur stöðvaðist í nær klukkustund þegar klukkan var tuttugu mínútur gengin í tólf er krani vörubíls rakst upp í öryggisslá og féll á tvo r Allir hermenn eru Harry prins Allir breskir hermenn sem eru á leið til herþjónustu í írak klæðast nú stuttermatreyju með skilaboð- unum „l’m Harry" eða „Ég er Harry“ til að sýna stuðning sinn við Harry Bretaprins sem einnig heldur til íraks á næstu vikum. Uppreisnarmenn í Irak hafa hótað því að beina sjónum sínum sérstaklega að og drepa Harry prins, sem er þriðji í röðinni til að erfa bresku krúnuna af Elísabetu Bretadrottningu. Treyjurnar eru sagðar lýsa vel þeim samhug sem ríkir meðal breskra hermanna. Með skilaboð- unum á bolunum er verið að vísa til atriðis í kvikmyndinni Spartakus f rá árinu 1960, þar sem allir skylminga- þrælarnir standa upp og segjast vera Spartakus til að bjarga Spartakusi sjálfum frá krossfestingu. NEYTENDAVAKTIN I ] Verð á rafmagni % Fyrirtæki kr./kWh fastgj./dag Orkuveita Rvk. (A1D) 4,10 21,82 Hitaveita Suðnes.(ADI) 3,83 23,28 Rarik (V0110) 4,52 22,56 NorAurorka (A1D) 3,61 23,69 Orkubú Vestfj.(R011) 4,43 20,26 Verð til heimila - Dreiting (ekki á frjálsum markaðil Upplýsingar frá Neytendasamtökunum GENGI GJALDMIÐLA ■II USD SALA 63,84 % -0,31 T ■ GBP 127,27 -0,17 ▼ mmm DKK 11,67 -0,23 ▼ • JPY 0,53 -0,32 '▼ EH EUR 86,95 -0,23 ▼ GENGISVÍSITALA 117,48 -0,25 ▼ ÚRVALSVÍSITALA 7.816,67 21,9 ▲ VEÐRIÐ í DAG VEÐUR » 2 RYMINGAR m KYIVIINUAK- iSALA! OUkrco oq-400/ c,PSLÁTTUB Afgreiðslutími virka daga: 10-18 og lau.: 11-16 Reykjavík sími: 533 3500 - Akureyri sími: 462 3504 Egilsstaðin simi: 471 2954 Erum að taka inn nýjar gerðir af rúmum frá Sealy og stólum og sófum frá Action Lane og þurfum að rýma verslun og lager af eldri gerðum.

x

blaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: blaðið
https://timarit.is/publication/941

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.