blaðið - 04.05.2007, Qupperneq 32
40
FOSTUDAGUR 4. MAI 2007
|_
Tf
intin &
Seldi helming Gnarls Barkley lag ■ Skoöanaskiptin
i
Feguröardrottningar selia fot
Ætlaði alltaf að verða
söngkona
Mjög sexi og flottur í
D,DD,E,F,FF,G,GG,H,HH
skálum á kr. 4.990,-„
Push up í CDE skálum á kr.
3.990,-“
hennar aldri ofarlega í huga hlær
hún og vill ekki gefa mikið upp í
þeim efnum. „Ég er laus og liðug
eins og er og ég held að kannski séu
strákarnir svolítið hræddir við mig.
Ég er líka mikið erlendis og hef því
ekki mikinn tíma fyrir strákamál.”
Jóhanna stundar nú nám við
Flensborgarskólann í Hafnarfirði
en í haust er hún á leiðinni í nám
til Kaupmannahafnar. „Ég var ekki
alveg að finna mig í hefðbundna
skólakerfinu og fannst vanta meira
pláss fyrir sönginn og tónlistina.
Skólinn sem ég er að fara í kennir
allskonar söngaðferðir og stefnur
og ég hlakka mikið til að hefja nám-
ið þar í haust. “
Draumurinn ekki endilega
að verða rík og fræg
Jóhanna býst þó við að vera með
annan fótinn vestanhafs og hinn
hér heima þar sem hún ætlar enn
að einblína á söngferilinn. Umboðs-
maður hennar er söngkonan María
Björk Sverrisdóttir en hún hefur
fylgt henni frá fyrstu tíð.
„Eg hef lært í þessu ferli að enginn
verður stjarna á einni nóttu. Það
tekur langan tíma að klifra upp all-
an stigann og þrepin eru ansi mörg.
Það er hinsvegar nauðsynlegt að
gefa sig allan í það sem maður er að
gera og vera þolinmóður. Það hefur
alltaf verið á hreinu í mínum huga
að ég ætlaði að verða söngkona þeg-
ar ég yrði stór. Mig langar að geta
lifað á því í framtíðinni að syngja
og koma fram en draumurinn er
ekki endilega að verða rík og fræg.
Minn draumur er að fólk um allan
heim vilji og geti keypt plöturnar
mínar, þá verð ég ánægðsegir
þessi unga en þroskaða söngkona
að lokum.
væri með báða fæturna á jörðinni.
Ég veit að mamma var stundum
stressuð en mér fannst þetta hið eðli-
legasta mál og bara skemmtilegt.”
Með sama upptökustjóra
og Jennifer Lopez
Það eru rúm fjögur ár frá því að
Jóhanna Guðrún söng inn á sína
seinustu plötu, þá 12 ára að aldri en
það er langt frá því að hún hafi set-
ið auðum höndum síðan. Jóhanna
hefur verið með annan fótinn í
New York og Los Angeles á milli
þess sem hún lifir hefðbundnu lífi
menntaskólastelpu á Islandi.
„Ég hef verið að vinna að plötu
sem er næstum tilbúin en platan
var tekin upp í New York. Það er
ekki kominn ákveðinn útgáfudagur
en það verður örugglega fljótlega
eftir sumarið."
Upptökustjóri plötunnar er mað-
ur að nafni Ric Wake og hann hefur
unnið sér til frægðar að vinna með
ekki ómerkari söngkonum en Jenni-
fer Lopez, Mariuh Carey og Whitn-
ey Huston. „Hann var vist mjög
frægur gitarleikari á eighties-tíman-
um áður en hann sneri sér að upp-
tökustarfinu. Síðan hef ég líka mik-
ið unnið með manni að nafni Lee
Harrocks og hann semur mikið af
lögunum sem eru á plötunni. Hann
býr og starfar í Los Angeles, er mjög
hæfileikaríkur og hefur meðal ann-
ars unnið með Celine Dion.“
Jóhanna semur mikið af lögum
og textum sjálf og segir að tónlistin
á plötunni sé popptónlist með rokk-
ívafi. Hún segist vera undir áhrif-
um úr mörgum áttum.
„Ég er í raun alæta á tónlist, ég hef
gengið i gegnum nokkur skeið þeg-
ar kemur að tónlist sem ég er und-
ir áhrifum frá. Þegar ég var yngri
hlustaði ég mikið á Whitney Hou-
ston, Celine Dion og Mariuh Carey.
. Síðanbreyttistsmekkurminnþegar
ég fór í áttunda bekk en þá fór ég að
hlusta meira á rokktónlist eins og
Queen, Metallicu, Creed og fleiri.“
Langar að spila meira opinberlega
Jóhanna er þessa dagana að setja
saman tónlistarprógramm, bæði
með sinni eigin tónlist og þekktum
lögum eftir aðra sem hún hyggst
flytja opinberlega á næstunni. „Mér
finnst mjög gaman að spila opinber-
lega og ég er að undirbúa mig fyrir
að koma meira fram. Ég er með gítar-
leikara með mér og við settum sam-
an mjög skemmtilegt prógramm.
Það er líka nauðsynlegt að halda
sér í formi með því að spila fyrir
fólk og það skiptir mig miídu máli.“
Ekki mikill tími fyrir stráka
Þegar Jóhanna er spurð út í ást-
armálin sem oft eru unglingum á
Margir muna eftir
söngkonunni ungu,
Jóhönnu Guðrúnu
Jónsdóttur, en hún
kom fyrst fram á
sjónarsviðið aðeins 9 ára gömul og
vakti þá athygli fyrir mikla söng-
hæfileika hjá svo ungri stúlku.
Jóhanna Guðrún hefur undanfar-
in misseri verið með annan fótinn
í New York og Los Angeles þar sem
hún vinnur að nýrri plötu. Upptöku-
stjóri hennar er sá sami og tekur
upp tónlist fyrir Jennifer Lopez og
Mariuh Carey og sá sem semur tón-
listina með henni hefur unnið fyrir
Celine Dion. Jóhanna Guðrún er
orðin ung kona sem ætlar sér stóra
hluti og á eflaust eftir að ná langt í
framtíðinni.
Með báða fæturna á jörðinni
Jóhanna segir að henni hafi sjálfri
fundist það mjög eðlilegt að koma
fram og syngja inn á plötur aðeins
níu ára að aldri. „Ég held að öll sú
lífsreynsla hafi bara haft góð áhrif
á mig enda hafði ég alltaf gott fólk
í kringum mig sem sá til þess að ég
Glæsilegur í D,DD,E,F,FF,G
skálum á kr. 6.490,-„
Jóhanna Guðrún Jónsdóttir „Þaö
hefur alltaf verið á hreinu í mínum huga
að ég ætlaði að verða söngkona þegar
ég yrði Stór. Munri/í.nAmmulnr
5 SPURNINGAR:
INGÓLFUR LEKVE23ÁRA
Hvað heitir formaður Vinstri grænna?
SteingrímurJ. Sigfússon
i hvaða landi er borgin Lissabon?
Portúgal
Hvar er Sixtínska kapellan?
Veit ekki
Hver er iengsti dagur ársins?
Þann 21. júní
Hver leikstýrði kvikmyndinni Pulp Fiction?
Það veit ég ekki
ÞORGILS ÞORGRÍMSSON 26 ÁRA
Hvað heitir formaður Vinstri grænna?
Ég veit þaö ekki
i hvaða landi er borgin Lissabon?
Veit það ekki
Hvar er Sixtínska kapellan?
Það veit ég ekki
Hver er lengsti dagur ársins?
Dagurinn i dag
Hver leikstýrði kvikmyndinni Pulp Fictlon?
Quentin Tarantino
ELDBJÖRG ÁRNADÓTTIR19 ÁRA
Hvað heitir formaður Vinstri grænna?
Guð, ég veit það ekki
f hvaða landi er borgin Lissabon?
Ekki hugmynd
Hvar er Sixtinska kapelian?
í Moskvu
Hver er lengsti dagur ársins?
Föstudagurinn langi
Hver leikstýrði kvikmyndinni Pulp Fiction?
Quentin Tarantino
JÓN ÞÓRARINSSON 26 ÁRA
Hvað heitir formaður Vinstri grænna?
Steingrímur J. Sigfússon
I hvaða landi er borgin Lissabon?
Portúgal
Hvar er Sixtinska kapellan?
Ekki alveg viss
Hver er lengsti dagur ársins?
Það er 21. júní
Hver leikstýrði kvikmyndinni Pulp Fiction?
Man það ekkl
GUDJÓN INGÓLFSSON 23 ÁRA
Hvað heitir formaður Vinstri grænna?
Steingrimur J. Sigfússon
I hvaða landi er borgin Lissabon?
Portúgal
Hvar er Sixtínska kapellan?
Á ftalíu
Hver er lengsti dagur ársins?
21.júní
Hver leikstýrði kvikmyndinni Pulp Fiction?
Quentin Tarantino
ouguejei uguano 'S |un[ • u -p nu!ue>giB/\ | ■£
lefiniJOd 'Z uossnjfiis r Jnui.ufiuieis ‘t uoas
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingor og skróning á netino:
www.ulfljotsvatn.is
Bátasiglingar - Vatnaleikir - Sparkleikir - Ædol - Kassabílaakstur/-
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífscevintýri - fjör og hópeflisandi!
%%
n
INNRITUN ER HAFIN - Opið virlca daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.is