blaðið - 26.05.2007, Qupperneq 2
2 LAUGARDAGUR26. MAÍ 2007
blaöiö
VEÐRIÐ í DAG
Slydda nyrðra
Dálítil slydda eða él á norðanverðu
landinu. Skýjað með köflum sunn-
antil og sums staðar skúrir síðdegis.
Hiti 1'til10 stig, hlýjast syðst.
ÁMORGUN
Léttskýjað
Hæg norðlæg eða breytileg
átt og víða léttskýjað, en dá-
lítil él við norðurströndina og
skúrir suðaustanlands. Hiti 0
til 10 stig, mildast syðst.
VÍÐAUM HEIM 1
Algarve 20
Amsterdam 24
Barcelona 26
Berlín 30
Chicago 21
Dublin 13
Frankfurt 29
Glasgow 10
Hamborg
Helsinki 14
Kaupmannahöfn
London 22
Madrid 14
Montreal 21
New York 22
Orlando 21
Osló 16
Palma 21
París '27
Stokkhólmur 17
Þórshöfn 8
Á FÖRNUM VEGI
Ætlarðu að ferðast
um helgina?
Ásbjörn Jónsson
„Ég fer til Þýskalands og verð
næstu þrjár vikur í þremur mis-
munandi sumarhúsum þar í landi."
Guðni Björgvin Högnason
„Nei, það er ekkert planað."
Kristín Bjarnadóttir
„Nei, ég verð bara heima hjá
mér.“
Ólafía Karlsdóttir
„Já, ég verð í hjólhýsi í Þjórsárdal."
Silja Runólfsdóttir
„Ég fer bara heim til mín á Bolung'
arvík.“
Þjórsárver Menn hafa
mismunandi skoöun á þvi
hversu stór hin eiginlegu
Þiórsárver eru. Blaöiö/RAX
Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra:
Hafnar byggingu
Norðlingaölduveitu
■ Sáttmálinn skýr ■ Yfirlýsingar stangast á ■ Ákveðin réttarstaða
Eftir Ingibjörgu B. Sveinsdóttur
ingibjorg@bladid.net
„Það stendur algjörlega ljóst í sátt-
málanum milli flokkanna að Þjórs-
árverin öll og allt hið viðkvæma
sérstaka votlendi verður friðað.
Það er alveg ljóst að í tíð þessarar
ríkisstjórnar verður þessi friðun
frágengin sem áratuga deila hefur
verið um. Það er líka alveg ljóst að í
tíð þessarar ríkisstjórnar fara menn
ekki í neina Norðlingaölduveitu,"
segir Össur Skarphéðinsson iðnað-
arráðherra vegna ummæla Náttúru-
verndarsamtaka fslands.
Samtökin hafa Iýst því yfir að við
blasi að ekki sé samkomulag innan
ríkisstjórnarinnar um að stækka frið-
land Þjórsárvera til suðurs þannig að
Norðlingaölduveita verði úr sögunni
en í stefnuyfirlýsingu ríkisstjórnar-
innar segir orðrétt: „Stækkun frið-
landsins í Þjórsárverum verði tryggð
þannig að það nái yfir hið sérstaka
votlendi veranna.“
Náttúruverndarsamtökin segja
að ekki verði annað séð en að yfir-
lýsingar forystumanna flokkanna
um stækkun Þjórsárvera stangist
á. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir utan-
ríkisráðherra lýsti því yfir í viðtali
Landsvirkjun á
ákveðin réttindi
Þorsteinn Hilmarsson,
upplýsingafulltrúi
Landsvirkjunar
á miðvikudagskvöld að skýrt væri
í sínum huga að ekki væri hægt að
fara í Norðlingaölduveitu. Geir Ha-
arde forsætisráðherra sagði hins
vegar í viðtali á fimmtudagskvöld að
ekkert væri í stefnuyfirlýsingu rík-
isstjórnarinnar sem kvæði sérstak-
lega á um að stöðva þessi áform.
Þorsteinn Hilmarsson, * upplýs-
ingafulltrúi Landsvirkjunar, bendir
á að fyrir rúmu ári hafi stjórn fyr-
irtækisins ákveðið að leggja áform
um Norðlingaölduveitu til hliðar
að sinni. „Það er ekki unnið að
neinum framkvæmdum þar. Hins
vegar liggur fyrir að Landsvirkjun
á þar ákveðin réttindi til að byggja
þá ágætu veitu. En það er ekkert
í okkar spilum sem hefur bent til
þess að við hygðumst byggja veit-
una á þessu kjörtímabili.“
Upplýsingafulltrúinn bendir
jafnframt á að þeir séu til sem telji
það geta farið saman að varðveita
Fríðunín verður
frágengin
Össur Skarphéöinsson
iðnaðarráðherra
votlendið og byggja Norðlingaöldu-
veitu, eins og hann orðar það. „Sam-
kvæmt tillögu starfshóps umhverfis-
ráðherra, sem skipuð var fulltrúum
heimamanna og Umhverfisstofn-
unar, er gert ráð fyrir þreföldun á
stærð Þjórsárvera en Norðlingaöldu-
veitusvæðið er ekki inni á því landi
sem lagt er til að verði friðað. Þar
að auki hafa menn mismunandi
skoðun á því hversu stór hin eigin-
legu Þjórsárver eru nú.“
Þorsteinn telur erfitt að meta nú
hvernig staðan verður verði svæðið
þar sem fyrirhugað er að byggja
Norðlingaölduveitu friðað. „Við
höfum náttúrlega ákveðna réttar-
stöðu. Það liggur fyrir að þetta eru
verðmæt réttindi sem Landsvirkjun
á. Það hefur farið mikill peningur í
undirbúning og stjórn Landsvirkj-
unar taldi ekki réttmætt á grund-
velli þeirrar ábyrgðar sem hún hefur
að afsala sér þessum réttindum.“
Mjanmar:
Suu Kyi
enn í haldi
Herforingjastjórnin í Mjan-
mar ætlar að halda baráttukon-
unni Aung San Suu Kyi í haldi
í eitt ár til viðbótar. Hún átti
að fá frelsi á sunnudaginn, en
fulltrúi stjórnarinnar tilkynnti
henni ákvörðunina í gær á
heimili hennar í Rangoon.
Suu Kyi hefur varið n af síð-
ustu 18 árum í stofufangelsi eftir
að flokkur hennar vann sigur í
kosningunum 1990. Hún komst
þó aldrei til valda því herinn
sniðgekk úrslitin og hefur haldið
fast um valdataumana síðan 1988.
Barátta Suu Kyi gegn her-
foringjastjórninni í Mjanmar
hefur vakið atfiygli á alþjóðavett-
vangi. Hún hlaut friðarverðlaun
Nóbels árið 1991 fyrir baráttu
sína fyrir lýðrlþi I Mjanmar.
Héraðsdómur
Hálft ár fyrir
líkamsárás
32 ára karlnjaður var í
gær dæmdur jisex mánaða
fangelsi fyrirííkamsárás auk
þess að greiðífórnarlambi
sínu 270 þúsund krónur
auk vaxta í skaðabætur.
Líkamsárásin átti sér stað í
Hressingarskálanum í Reykjavík
fyrir rúmu ári. Hún atvikaðist
þannig að ákærði réðst að
karlmanni með glerflösku og
braut hana á andliti hans með
þeim afleiðingum að hann
hlaut tvö stór alldjúp sár.
Ákærði var einnig dæmdur
til að greiða tæpar 300 þús-
und krónur í sakarkostnað.
KYNNTU ÞER NAMSFRAMBOÐ A
HEJMASIPU SK04ANS
www.hr.is
Urnsokriarfrestur er til 31. mai
HASKOLINN I REYKJAVIK
Fær bætur vegna flutnings milli deilda á Landspítala:
Spítalinn greiði hálfa milljón
Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi
í gær Landspítala - háskólasjúkrahús
tií þess að greiða hjúkrunarfræðingi
hálfa milljón króna í bætur vegna til-
færslu í starfi. Kröfu hjúkrunarfræð-
ingsins um að tilfærslan yrði gerð
ógild var hins vegar vísað frá dómi.
Forsaga málsins er sú að karl-
kyns hjúkrunarfræðingur tilkynnti
deildarstjóra sínum að kvenkyns
samstarfsmaður sinn hefði áreitt
sig kynferðislega eftir sameigin-
legt matarboð starfsmanna deild-
arinnar. Karlinn kvaðst í kjölfarið
ekki treysta sér til að starfa með kon-
unni. Úr varð að konan var færð á
aðra deild. Konan sætti sig ekki við
þá ákvörðun og sótti því mál gegn
Landspítala - háskólasjúkrahúsi og
krafðist þess að flutningurinn yrði
ógiltur auk þess sem henni yrðu
greiddar fimm milljónir króna í
miskabætur. Hún taldi að tilfærslan
hefði orðið til þess að gefa ásök-
unum starfsfélaga síns byr undir
báða vængi og valda sér álitshnekki
og andlegri vanlíðan.
Landspítala - háskólasjúkrahúsi
var einnig gert að greiða 880 þúsund
króna málskostnað konunnar.