blaðið - 26.05.2007, Síða 40
40 LAUGARDAGUR 26. MAÍ 2007
blaðið
Lætur ekki velgengni stíga sér til höfuðs
Verð að vera
Velgengni söngvar-
ans Garðars Thórs
Cortes í Bretlandi
hefur líklega ekki
farið fram hjá
neinum hér á landi
enda hafa reglu-
lega birst fréttir af hinum ýmsu af-
rekum hans. Hæst ber án efa útgáfu
plötu hans, Cortes, sem kom út um
miðjan apríl og náði fyrsta sæti á vin-
sældalista yfir klassískar plötur þar
í landi. Sá árangur er ekki síst merki-
legur í Ijósi þess að þetta er fyrsta
einsöngsplatan sem Garðar gefur út
utan íslands og er hann því í raun að
feta sín fyrstu skref á þessum harða
markaði. Garðar segist ekki hafa séð
fyrir að platan hlyti jafngóðar við-
tökur og raun ber vitni. „Auðvitað
vonar maður að hún gangi sem best
en í raun og veru getur maður ekki
gert sér einhverjar hugmyndir um
hvar hún lendir á þessum svo kall-
aða vinsældalista eða hvernig hún
selst. Maður reynir að skila sínu
og svo verður maður bara að bíða
og sjá. Að platan skuli ganga svona
vel núna er bara bónus og maður
gerir sér grein fyrir því en heldur
sínu striki og skilar sínu sem best,“
segir Garðar sem finnst útgáfa plöt-
unnar standa upp úr því sem gerst
hefur á þessum viðburðaríka tíma í
Bretlandi.
Sömu lögmál hvar sem maður er
Mönnum reynist misauðvelt að
höndla velgengni, ekki síst þegar
hana ber brátt að. Ekki er að heyra
á Garðari að hún hafi slegið hann
út af laginu og sjálfur segist hann
ekki finna fyrir meiri pressu en
áður. „Ég geri ekki neitt öðruvísi.
Ég vil meina að maður reyni að
skila sínu sem best í hvaða verkefni
sem maður tekur sér fyrir hendur.
Það eru sömu lögmál sem gilda í
því sem maður er að gera núna og
ef maður er með einsöngstónleika
í Salnum í Kópavogi eða að syngja
í Óperunni hérna eða í óperu í Nor-
egi, Englandi eða Þýskalandi. Þetta
er allt það sama,“ segir hann.
Það er ekki sjálfgefið að söngv-
arar njóti velgengni og nái langt á
sínu sviði þó að þeir búi yfir ótví-
ræðum hæfileikum. Á þessu sviði
eins og ýmsum öðrum eru margir
kallaðir en fáir útvaldir.
„Ef við lítum bara á Bretland þá
eru þar náttúrlega voðalega margir
söngvarar og tónlistarmenn
þannig að það er erfitt að láta
heyra í sér eða láta sjá sig. Ég held
að allir listamenn þarna úti geri
sér grein fyrir því að það er ekki
sjálfgefið að manni gangi vel. Ég
veit ekki hver galdurinn er. Maður
verður bara að vera trúr sjálfum
sér og reyna að skila sínu sem best.
Meira getur maður ekki gert. Allt
umfram það er smábónus. Maður
má ekki hugsa of mikið um það
því að þetta er bara eins og hver
önnur vinna. Þú heldur alltaf þínu
striki hvað sem gerist, hvort sem
þú færð jólabónusinn eða ekki. Þú
vinnur ekki meira þann mánuðinn
eða minna þann næsta af því að
þú fékkst jólabónusinn. Þú heldur
þínu striki,“ segir Garðar.
Basl að stíga fyrstu skrefin
Það er enginn leikur að ná langt
sem söngvari heldur útheimtir það
mikla vinnu og þolinmæði.
„Það er ægilegt basl fyrir söngv-
ara að stíga sín fyrstu skref. Það
kostar sitt að fara til útlanda í
prufusöng til dæmis. Maður veit
að maður fær oftast nei og einstaka
já. Þannig er það bara og maður
verður að gera sér grein fyrir því
strax í upphafi hvort maður hefur
þrek í það. Þetta er mjög erfitt og
dýrt.
Það er ekki aðeins verið að horfa
á hæfileika heldur líka atriði eins
og hæð og hárlit af því að maður
er að syngja fyrir ákveðið hlutverk.
Þegar fólk ræður mann hefur það
eitthvert hlutverk í huga þó að
því líki kannski við röddina eða
leikhæfileikana þá passar maður
ekki endilega í hlutverkið. Maður
verður að gera sér grein fyrir þessu
og taka það að minnsta kosti ekki
nærri sér. Það eru margir sem
hreinlega geta ekki gert þetta og
ég skil það því að þetta er voðalega
erfitt,“ segir Garðar.
Þrefaldur pottur!
Náðu þér í Lottómiöa á næsta
sölustað eða á lotto.is
lotto.is
Ánægður með Einar Bárðar
Þó að Garðar standi yfirleitt einn
í sviðsljósinu taka vitaskuld fleiri
þátt í velgengni hans á bak við
tjöldin. í þeim hópi er Einar Bárðar-
son sem hefur unnið ötullega að því
að koma Garðari á framfæri bæði
hér heima og erlendis. Garðar ber
samstarfinu við Einar vel söguna.
„Einar er voðalega klár í því
sem hann gerir eins og allir hérna
heima vita og allir eru að sjá núna
úti. Hann kann sitt fag og skilar
sínu alltaf vel og af einlægni þannig
að það er rosalega gott fyrir mig að
hafa hann með mér í þessu ævin-
týri og ég held að við séum báðir
voðalega ánægðir hvor með annan.
Svo erum við náttúrlega með fólk
í kringum okkur sem vinnur með
okkur og fyrir okkur. Allt það fólk
höfum við valið vel og það kemur
í Ijós að það hefur verið rétt val og
við treystum því fólki líka. Það er
mjög mikilvægt að hafa gott fólk í
kringum sig því að þetta er náttúr-
lega stór bisness þarna úti.“
Vil vera sem mest heima
Klassískum söngvurum standa
ekki mörg tækifæri til boða hér
á landi, sérstaklega ef þeir vilja
syngja á sviði. Aðeins ein ópera er
í landinu og þar eru fáir fastráðnir
Ég held að allir listamenn
þarna úti geri sér grein
fyrir því að það er ekki sjálf-
gefið að manni gangi vel.
Ég veit ekki hver galdurinn
er. Maður verður hara að
vera trtír sjálfum sér og
reyna að skila sínu sem
best. Meira getur maður
ekki gert. Allt umfram það
er smábónus. Maður má
ekki hugsa ofmikið um það
því að þetta er bara eins og
hver önnur vinna.
söngvarar. Það er því ekki undar-
legt að margir beini sjónum sínum
til útlanda og freisti gæfunnar þar.
„Það er mikið af góðum söngv-
urum hér miðað við fólksfjölda og
ef maður vill syngja á sviði er í raun-
inni ekkert annað að gera en að
leita út fyrir landsteinana. Maður
hálfpartinn neyðist til þess af því
að ég held að flestir söngvarar vilji
búa og starfa heima. Alla vega tala
ég fyrir mig. Ég vildi óska þess að
ég gæti verið heima sem mest því
að ég er mjög heimakær en þannig
er það ekki alltaf og þá leitar maður
út. Mamma er ensk og ég hef alist
upp á báðum stöðum þannig að
í rauninni er ég ekki svo mikið í
útlöndum þegar ég er úti sem er
kostur fyrir mig. Auðvitað er það
stundum lýjandi en það er sem
betur fer ekki eins og maður sé að
fara að heiman og á einhvern ókunn-
ugan stað. Það er eins og maður sé
að fara að heiman og heim þannig
að þetta er ekki eins slæmt og það
gæti verið. Það gæti verið verra
eins og amma segir alltaf. Það gæti
verið verra.“
Ekki ýtt út í þetta
Garðar kemur úr mikilli tónlist-
arfjölskyldu sem kunnugt er en
faðir hans og nafni er einnig söngv-
ari og móðir hans Krystyna pían-
isti. Þá hafa systkini hans, Nanna
og Aron, einnig fengið söngbakter-
íuna. Garðar segir að foreldrar sínir
hafi þó ekki ýtt þeim systkinunum
út á þessa braut né nokkra aðra.
„Þau studdu okkur í þeim ákvörð-
unum sem við tókum um hvað
við vildum læra og svo framvegis.
Þegar maður hefur svona músík í
kringum sig síast hún inn og það
hefur eflaust haft sín áhrif,“ segir