blaðið - 26.05.2007, Page 48
Mannrán og morð
Mannran Mikil leit
stóð yfir að hinum
sex ára gamla Bobby
^Greenlease árið 1953
Numinn á brott
FBI tók fljótlega við rannsókn málsins og eft-
ir að hafa rannsakað lausnargjaldsbréfið sem
foreldrum Bobbys barst eftir ránið dró lögregl-
an þá ályktun að um væri að ræða greinda ein-
staklinga sem hefðu að öllum líkindum falið
slóð sína vel. Sú staðreynd að drengnum hafði
verið rænt úr skólanum studdi grun þeirra
einnig.
Daginn sem Bobby Greenlease var numinn
á brott hafði kona á milli þrítugs og fertugs,
sem þóttist vera frænka hans, komið í skól-
ann. Konan sagði að um væri að ræða neyðar-
tilvik og að móðir Bobby hefði beðið sig um
að sækja hann. Sagði hún móður hans vera
mikið veika á spítala og að hún hefði farið
fram á að drengurinn yrði sóttur hið fyrsta.
Skólastjórnendur töldu ókunnugu konuna
afar traustvekjandi og leyfðu henni
þess vegna að yfirgefa skólann
með drenginn.
Það var ekki fyrr
en seinna sama dag
sem skólastjórinn
hringdi á heimili
Greenlease-hjón-
anna tilþessaðat-
huga með líðan
frú Greenlease,
að upp komst
að ekki væri
allt með felldu.
Frú Greenlease
hringdi sam-
stundis í eigin-
mann sinn sem
hafði samband við
lögregluna. Leitin að
Bobby Greenlease hófst
samdægurs þar sem ljóst
var að um mannrán væri að
ræða og því mætti engan tíma
missa.
Ekkert spurðist til drengsins en daginn
eftir höfðu mannræningjarnir samband við
foreldra hans og ítrekuðu að ef lausnargjaldið
bærist ekki þá hlyti barnið verra af. Farið var
fram á sönnun þess að drengurinn væri enn
á lífi en ræningjarnir sögðu að ekki kæmi til
greina að hleypa drengnum í símann. Móðir
hans fór þá fram á að drengurinn yrði spurður
tveggja spurninga sem aðeins hann gæti vitað
svörin við og að með svörum hans væri hægt
að fullvissa hana um að hann væri enn á lífi.
Ekkert svar barst og báru illvirkjarnir því við
að strákurinn væri tregur til en fullvissuðu
móður hans um að hann væri á lífi og við
góða heilsu.
Grunsemdir
vakna
Lausnargjaldið
átti að skilja eftir á
ákveðnum stað í borginni
þar sem mannræningjarnir
ætluðu að sækja peningana og sögð-
ust þeir ætla að afhenda drenginn heilan á
húfi sólarhring seinna en foreldrar hans áttu
að bíða við símann eftir frekari fyrirmælum.
Þau bárust hins vegar ekki og ekki heyrðist
meira frá þeim sem stóðu á bak við brotthvarf-
ið.
Frekari vísbendingar bárust hins vegar
nokkrum dögum seinna frá leigubílstjóra
sem hafði skutlað grunsamlegum manni á
hótel í borginni, en viðkomandi var drukkinn
og hafði gefið bílstjóranum sérstaklega mik-
ið þjórfé. Að sögn leigubílstjórans burðaðist
maðurinn með tvær stórar og þungar töskur
og bað hann um að vera sóttur aftur daginn
eftir og fór fram á að bílstjórinn leigði fyrir sig
svítu á einu af fínni hótelum bæjarins, en fyrir
það borgaði hann bílstjóranum 150.000 krón-
ur. í stað þess að gera eins og maðurinn sagði
hafði bílstjórinn samband við lögregluna og
greindi frá grunsemdum sínum. Lögreglan
mætti á staðinn og komst fljótlega að því að
ekki væri allt með felldu og að öllum líkind-
um væri hér á ferð maður sem væri viðriðinn
ránið á Greenlease-drengnum.
Viðurkenndu morð
í ljós kom að um var að ræða Steve Hall,
sem var 34 ára gamall fangi á reynslulausn.
Hall var tekinn til yfirheyrslu þar sem í ljós
kom að hann átti kærustu, Bonnie Brown,
sem svipaði mikið til lýsingar á konunni sem
sótt hafði drenginn í skólann. Hall reyndi
engu að síður að villa um fyrir lögreglunni
og sagðist hafa látið þriðja aðila fá drenginn
og að hann vissi ekkert frekar um afdrif hans.
Hefði eitthvað komið fyrir hann væri það á
ábyrgð þessa þriðja aðila. Hall hélt því einnig
fram að Brown hefði ekki vitað af því að um
mannrán væri að ræða þegar hún sótti dreng-
inn en fingrafaragreining á lausnargjaldsbréf-
inu sýndi fram á að Brown hefði skrifað það.
Við frekari yfirheyrslur viðurkenndu Hall
og Brown að hafa rænt Bobby Greenlease og
að þau hefðu lagt á ráðin um að myrða hann
svo hann gæti ekki borið kennsl á þau. Brown
fór með hann úr skólanum og hitti Hall á bíla-
stæði í útjaðri borgarinnar þaðan sem þau óku
út á akur í nágrenni bæjarins og ekki sást til
þeirra. Hall hafði tekið með sér reipi til þess
að kyrkja drenginn en það gekk ekki þar sem
bandið var of stutt og strákurinn barðist kröft-
uglega um. Hall skaut þá hinn 6 ára gamla
Bobby Greenlease til bana. Líki hans pökkuðu
þau inn og grófu hann í garði Brown.
Steve Hall og Bonnie Brown voru dæmd til
dauða fyrir morðið á drengnum og voru þau
tekin af lífi í lok árs 1953 en Bonnie Brown var
fyrsta konan sem var líflátin í Bandaríkjun-
um fyrir mannrán og aðild að morði.
Hinum 6 ára gamla Bobby
Greenlease var rænt þann
28. september árið 1953.
Drengurinn var sonur
auðugs verktaka, Roberts
C. Greenlease, og fóru
mannræningjarnir fram
á 35 milljónir í lausnargjald, en aldrei áður
hafði verið farið fram á svo hátt lausnargjald í
Bandaríkjunum. Greenlease var þó gerð grein
fyrir því af lögreglumönnum að þrátt fyrir að
hann myndi borga væri það ekki trygging fyr-
ir því að syni hans yrði ekki gert mein þar sem
hann gæti borið kennsl á misindismennina.
ÚLFLJÓTSVATNI
Upplýsingar og skróning ó netinu:
www.ulfljotsvatn.is
- Sparkleikir - Frumbyggjastörf - Ædol - Utilíf - Kassabílaakstur -
Fyrir stráka og stelpur 8-12 ára - skipt í hópa eftir aldri
Krassandi útilífsœvintýri - fjör og hópeflisandi!
u
//
INNRITUN ER HAFIN - Opið virka daga kl. 10-16 - sími 550 9800 - sumarbudir@ulfljotsvatn.Í