blaðið - 12.07.2007, Síða 6
FRETTIR
.
FIMMTUDAGUR 12. JULI 2007
blaðió
Styður orð
kaupmanna
Hagstofan segir lækkan-
ir skila sér í verðlag
Lækkun virðisaukaskatts og af-
nám vörugjalda þann 1. mars hefur
skilað sér í verðlag að mati Hagstof-
unnar. Vísitala neysluverðs hækk-
aði um 0,22 prósent frá því í síðasta
mánuði. Hækkun á markaðsvirði
húsnæðis skýrir þessa hækkun, því
vísitala án húsnæðis lækkaði um
o,i2 prósent frá því í júní.
Hafi laekkað um 7,4%
Guðrún R. Jónsdóttir hjá Hag-
stofu Islands segir að milli febrúar
og mars hafi verð á matar- og drykkj-
arvöru lækkað um 7,4 prósent, sem
var í takt við það sem lækkunin
átti að skila. Frá því í mars hefur
vísitala neysluverðs, án húsnæðis,
hækkað um 1,1 prósent. Þar af skýrir
hækkun á matar- og drykkjarvöru
0,3 prósent hækkunarinnar.
Guðrún segir þetta sýna að
verð á mat og drykk hafi hækkað
mun minna en verð í öðrum
vöruflokkum.
Verðlagseftirlit ASÍ hefur gagn-
rýnt matvöruverslanir fyrir að
hækka verð á matvælum þegar af-
nám vörugjalda hefði með réttu átt
að skila sér út í verðlag. Forsvars-
menn matvöruverslana hafa mót-
mælt þessum fullyrðingum. mge
STUTT
• Gróðurspjöll Spjöll voru
unnin á svæði Skógræktarfélags
Suðurnesja fyrr í vikunni. Um
200 birkiplöntur höfðu verið
rifnar upp og ýmist skildar eftir
í hrúgum eða teknar í burtu,
samkvæmtvefVíkurfrétta. mge
• Símaver Símtölum til Síma-
vers Reykjavíkurborgar fjölgar
um 20 prósent á fyrra helm-
ingi ársins 2007 miðað við
sama tíma árið 2006. bm
Gróf líkamsárás um helgina
Lúbarðir á leið í leigubíl
Fimm menn gengu í skrokk á
Guðna Kristjánssyni og félaga hans
þegar þeir voru á leiðinni að leiga-
bílaröðinni í miðbæ Reykjavíkur í
morgunsárið síðasta laugardag.
Guðni segir það deginum ljósara
að þessi hópur hafi verið þarna í
leit að vandamálum. „Við gengum
í gegnum hóp af fólki. Einn úr
hópnum rýkur þá að okkur og fer
að fiska eftir veseni,“ segir Guðni
og heldur áram: „Við héldum að
við gætum einhvern veginn talað
okkur út úr þessu en þetta stefndi
bara í eina átt og á endanum ræðst
hann á mig. Ég reyni eitthvað að
verja mig þarna og þá koma tveir
í viðbót. Þannig að þeir eru þrír
sem láta höggin og spörkin dynja á
mér.“ Hann segir að því næst hafi fé-
lagi hans reynt að koma honum til
hjálpar en þá hafi annar gripið hann
reynt að sparka í höfuðið á honum.
„Það mölbrotnaði á mér löppin og
auk þess er ég rifbeinsbrotinn, skor-
inn í andliti, með sprungna vör og
allur marinn á höfði,“ segir hann.
Félagi Guðna liggur nú á taugadeild
Landspítalans vegna höfuðáverka
sem árásarmennirnir veittu honum.
Guðni segir að þeir séu búnir að
kæra árásina og biður hann öll vitni
um að hafa samband við lögregluna.
elias@bladid.net
Nemar á Bifröst reiðir
vegna leiguhækkana
H Dæmi um 14 þúsund króna hækkun BS Rektor segir skólann tapa á breytingunum
Eftir Magnús Geir Eyjólfsson
magnus@bladid.net
Hópur nemenda í Háskólanum á
Bifröst er æfur út í yfirstjórn skól-
ans eftir að breytingar voru gerðar á
gjaldskrá stúdentaíbúðanna. Dæmi
eru um að leiga á einstökum íbúðum
hafi hækkað um rúmlega 14 þúsund
krónur á mánuði. Ágúst Einarsson
rektor segir að um leiðréttingu sé
að ræða, en útilokar ekki að málið
verði endurskoðað.
Nemendagarðarnir leigja alls út
220 herbergi og íbúðir. I tilkynn-
ingu um breytingarnar segir að
leigan lækki hjá 80 prósentum íbú-
anna, en hækki hjá hinum um 20
prósent. Þá hefur breytingin í för
með sér tekjutap fyrir skólann upp
á tæpa eina milljón króna á mánuði.
Einstæðir foreldrar margir
ElínborgRagnarsdóttir, formaður
íbúaráðs Bifrastar, segir mikinn hita
í nemendum vegna málsins. Hún
HÁSKÓLINN Á BIFRÖST
► Yfir 700 manns stunda nám
á Bifröst og búa um 800
manns í háskólaþorpinu.
► Skólinn er sprottinn upp af
Samvinnuskólanum sem
stofnaður var 1918.
► Jónas Jónsson frá Hriflu var
fyrsti skólastjóri Samvinnu-
skólans.
segist hafa óskað eftir skýringum
frá skólanum og á von á þeim fljót-
lega. Það sem nemendur eru einkar
ósáttir við, er að hækkunin kemur
einna helst niður á fjölskyldufólki.
„Mesta hækkunin er 13 til 14 þúsund
sem er gríðarleg hækkun fyrir fjöl-
skyldufólk. Margir nemendur hér
eru einstæðir foreldrar og hækk-
unin lendir á þeim. Þar fyrir utan
eru þessir nemendur að greiða leik-
skólagjöld,“ segir Elínborg.
Ágúst segist skilja sjónarmið nem-
endanna, en segir markmiðið fyrst
og fremst að leiðrétta misræmi milli
mismunandi tegundar húsnæðis.
,Þetta er til að gæta samræmis sem
hefur ekki verið hér og hefur verið
gagnrýnt af hálfu nemenda."
Sambærilegt verð annars staðar
Aðspurður hvort komið verði til
móts við fjölskyldufólk sem lendir í
hækkun, segir Ágúst ýmislegt hafa
verið gert og sífellt sé verið að hugleiða
hvað betur má fara. „Við ákváðum
til dæmis að hafa óbreytt skólagjöld
fyrir næsta skólaár, á meðan aðrir
skólar hækkuðu sín skólagjöld."
Elínborg segir nemendur lengi
hafa barist fyrir því að leiguverði á
Bifröst verði breytt til jafns við aðra
skóla á landinu. Ágúst bendir á að
húsnæðið sé nýtt og í mjög góðu
ásigkomulagi. „Ég er ekki að segja
að húsnæði sé ódýrt á Bifröst en það
er sambærilegt við aðra háskóla.“
REYKJAVÍK:
Kringlan
Bankastræti 5
Faxafen 12
KÓPAVOGUR:
Smáralind
GARÐABÆR:
Miðhraun 11
AKUREYRI:
Glerárgata 32
www.66north.is
Lind hefur myndast fyrir neðan Desjarárstíflu
Lekinn í berginu
bara smábuna
Skammt fyrir neðan Desjarár-
stiflu utan í Kárahnjúknum hefur
myndast lítil lind, væntanlega
vegna leka í berginu „Við lítum ekki
á þessa lind sem áhyggjuefni. Það
er væntanlega bergið í hnjúknum
sjálfum sem lekur og rör sem er
þarna í lindinni er útbúnaður til
að fylgjast með vatnsmagninu. Við
fylgjumst með þessu þegar hækkar
í lóninu og þrýstingur vex. Ef þetta
verður ásættanlega lítið gerum við
ekkert en ef við viljum minnka
þetta grípum við til ráðstafana þót't
ég búist síður við að þess þurfi,“
segir Sigurður Arnalds, upplýsinga-
fulltrúi Landsvirkjunar.
Lindin myndaðist fyrir um það
bil tveimur vikum og er heildarlek-
inn nokkrir lítrar á sekúndu, að
sögn Sigurðar. „Þetta er bara smá-
buna. Það sígur í gegnum allt berg
þegar vatnsþrýstingur kemur á
það. Það er bara spurning hversu
mikið það verður. Maður veit aldrei
hvernig svona leki hegðar sér. Nátt-
úran verður að leiða það í ljós.“
Leki fyrir neðan aðalstífluna er
enn óverulegur, að því er Sigurður
greinir frá. „Það sígur lítið og lekur
nánast ekkert ennþá. Botnrás undir
stíflunni var opnuð í fjóra daga í
síðustu viku til að hægja á fyllingu
lónsins. Núna erum við búin að
loka fyrir og þá hækkar lónið. Við
opnum aftur um miðjan júlí til að
tempra fyllingarhraðann sem fer
eftir hlýindum."
Hálslón er nú komið í 600 metra
hæð yfir sjávarmáli. Full lónhæð
verður 625 metrar. ibs