blaðið - 12.07.2007, Page 18
FÉOGFRAMI
vidskipti@bladid.net
FIMMTUDAGUR 12. JULI 2007
blaðið
Hækkun markaðarins hérlendis er góð fyrir þá sem hafa
notið hennar en þó engin ávísun á áframhaldandi hækkun.
Ég sé ekki að afkoma lands og þjóðar leyfi 50% hækkun á
komandi misserum, meðal annars vegna skerðingar þorskafla.
Fleiri félög bætast í kauphöllina
Eik Banki var í gær skráður í kauphöll OMX á íslandi. Það sem af er
þessu ári hafa 57 félög verið skráð í kauphöllina.
Eik Banki var stofnaður árið 1832 og er stærsti banki í Færeyjum. Mark-
miðið með skráningunni er að útvíkka starfsemina á alþjóðavettvangi
í því skyni að dreifa áhættu og auka hagnað. Félagið hefur verið í sókn
á alþjóðavettvangi undanfarið og var helmingur af tekjum bankans í
fyrra upprunninn utan Færeyja. Á fyrirtækið meðal annars 9,94 prósent
hlutafjár í SPRON.
„Eik Banki er áhugaverð viðbót við geirann sem fyrir er afar sterkur á ís-
landi. fslenski markaðurinn hefur verið góð uppspretta fjármagns fyrir
ört vaxandi banka og Eik Banki mun án efa hagnast á þessu mikilvæga
skrefi í þróun sinni,“ segir Þórður Friðjónsson, forstjóri OMX á íslandi.
Tekur tilboði í
Actavis
Lífeyrissjóður verzlunarmanna
hefur tekið tilboði Novators í 2,3
prósenta eignarhlut sjóðsins í
Actavis að fjárhæð sjö milljarðar.
Sjóðurinn hefur talið verðmæti
Actavis vanmetið í tilboðum
Novators og segjast stjórnendur
sjóðsins enn telja að tilboðið
endurspegli ekki að fullu framtíð-
arvirði Actavis.
mbl.is
Fasteignir lengi á sölu
Sífellt lengri tíma tekur nú að selja fasteignir í Danmörku, samkvæmt
frétt Politiken. Að meðaltali tekur nú hálft ár að selja fasteign, samborið
við um hundrað daga fyrir ári. Sölutími fasteigna í stærstu borgunum,
Kaupmannahöfn ogÁrósum, mælist sem fyrr lengstur.
Fermetraverðið hefur mælst nokkuð stöðugt síðustu þrjá mánuði og er
nú að meðaltali um 330 þúsund krónur á hvern fermetra, eða sex pró-
sentum minna en í júní á síðasta ári. aí
Kaupa í Heli
Food Fresh
Bakkavör hefur keypt 51 prósents
hlut í tékkneska matvælafram-
leiðandanum Heli Food Fresh og
kaupir eftirstandandi hlutafé í
apríl 2010. Fyrirtækið hefur sér-
hæft sig í framleiðslu á tilbúnum
réttum, súpum og sósum fyrir
miðevrópskan markað.
Heli Food Fresh er staðsett suður
af Prag, höfuðborg Tékklands, og
þar starfa 76 manns. Á heimasíðu
Bakkavarar segir að tékkneska fyr-
irtækið velti um 300 milljónum
króna. aí
Barist um hlutabréfin
Hlutabréf hækka meira á
nýjum mörkuðum
^ ■ BB■
16.400 ■ ]
SsQiJ’í j H 1m|
Verðþróun fylgir
nýmörkuðum
M Fjölbreytilegar fjárfestingar ráðlagðar M Evrópubréf hækka
meira ■ Ekki hægt að lofa áframhaldandi hækkun
Eftir Björgu Magnúsdóttur
bjorg@bladid.net
Markaðsspekúlantar utan úr
heimi ráðleggja almenningi að fjár-
festa á fjölbreytilegum mörkuðum.
Eftirfarandi upplýsingar um þróun
hlutabréfaverðs fyrstu sex mánuði
ársins eru fengnar úr Dow Jones
Wilshire alþjóðamarkaðsskránni.
Hlutabréf í Bandaríkjum Norður-
Ameríku hækkuðu um 7,56% á
fyrri helmingi ársins en í Evrópu
var hækkun hlutabréfa næstum
því helmingi meiri eða tæp 13%. í
nokkurn tíma hefur vöxtur í Evr-
ópuríkjum verið talsvert meiri en í
Bandaríkjunum.
Perú á toppnum
Hvað varðar einstök lönd hækk-
uðu hlutabréf mest í Perú á fyrri
helmingi ársins, um 59,76%. Það
kemur vart á óvart því á síðasta
ári var Perú einnig á toppnum með
83,37% hækkun. Hlutabréf hækk-
uðu einnig mikið í Brasilíu, Chile
og Mexíkó en ekki eins mikið og í
nágrannaríkjunum Argentínu og
Kólumbíu.
Evrópa er sú heimsálfa þar sem
hlutabréfin hækkuðu næstmest á
HLUTABRÉFAVERÐ
► Hlutabréf í Bandaríkjunum
hækkuðu um 7,56% á fyrri
hluta ársins.
► Hækkunin í Evrópu var um
13%.
► Hækkun hlutabréfa hefur
óvíða verið meiri en á
íslandi, yfir 51% á fyrri hluta
úrsins. í Evrópu hækkuðu
bréf aðeins meira í Slóveníu.
eftir fyrrnefndum ríkjum. Slóvenía
trónar á toppnum þar sem hlutabréf
þar hækkuðu um rúm 58% og þar á
eftir kom ísland þar sem hækkunin
nam 51,21%.
Kauphöllin Qármálafyrirtæki?
Vilhjálmur Bjarnason, aðjúnkt
við viðskiptafræðideild Háskóla
íslands, segir íslenska markaðinn
greinilega fylgja nýmörkuðum
frekar en þróaðari mörkuðum á
borð við Bandaríkjamarkað.
„Hækkun markaðarins hérlendis
er góð fyrir þá sem hafa notið hennar
en þó engin ávísun á áframhald-
andi hækkun. Ég sé ekki að afkoma
lands og þjóðar leyfi 50% hækkun á
komandi misserum, meðal annars
vegna skerðingar þorskafla.“
Vilhjálmur segir aðalástæður
fyrir hækkun hins íslenska mark-
aðar vera fjármálafyrirtæki lands-
ins. „Kauphöllin er orðin hættulega
mikið fjármálafyrirtæki. Hún á að
endurspegla alla starfsemi í land-
inu, sem hún gerir ekki eins og
stendur.“ Visar hann þá til dæmis
til lyfjaframleiðslu og fiskveiða sem
standa utan við hana.
Lítil félög hækkuðu mest
Þróaðir markaðir annars staðar
en í Bandaríkjunum styrktust um
12,18% en nýmarkaðir styrktust
um 18,47%. Hlutabréf lítilla félaga
á nýmörkuðum hækkuðu upp úr
öllu valdi eða um 31,7 prósentustig
á fyrri hluta ársins. Á heimsvísu
hækkuðu bréf lítilla félaga mest,
eða um 13,58%, en bréf meðalstórra
félaga fylgdu þeirri hækkun fast á
eftir.
Þegar ákveðnir markaðir eru
skoðaðir var hækkun bréfa mest á
hrávöru-, iðnaðar-, olíu- og gasmörk-
uðum. Svipuð hækkun áðurnefndra
markaða var í Bandaríkjunum og
Evrópu.
blaöi
þriðjudaga
Auglýsingasíminn er
510 3744
MARKAÐURINN í GÆR
Hlutabréfaviðskipti með skráð bréf hjá 0MX á íslandi, 11. júlí 2007
Viðskipti í krónum Heildar-
ATH. = Athugunarlisti Viðskipta- Hlutfallsl. Dagsetning Fjöldi viðskipti Tilboð í lok dags:
Félög f úrvalsvísitölu verð breyting viösk.verðs viðskipta dagsins Kaup Sala
▼ Actavis Group hf. 86,00 -3,15% 11.7.2007 12 37.129.702 86,00 87,00
▼ Atorka Group hf. 8,95 -0,67% 11.7.2007 17 55.674.604 8,91 9,00
Bakkavör Group hf. 70,80 0,57% 11.7.2007 19 316.454.775 70,80 71,30
a Exista hf. 39,20 2,22% 11.7,2007 60 1.369.572.387 39,10 39,20
▼ FL Group hf. 29,50 -0,67% 11.7.2007 24 75.496.764 29,55 29,80
a. Glitnir banki hf. 29,10 0,34% 11.7.2007 63 868.660.445 29,05 29,10
▼ Hf. Eimskipafélag íslands 39,35 -0,38% 11.7.2007 5 29.222.700 39,35 39,50
a lcelandair Group hf. 30,95 0,49% 11.7.2007 6 402.317.208 30,90 31,00
a Kaupþíng banki hf. 1233,00 1,23% 11.7.2007 133 4.373.666.743 1230,00 1233,00
+ Landsbanki íslands hf. 39,70 0,00% 11.7.2007 78 1.556.656.122 39,60 39,70
♦ Mosaic Fashions hf. 17,00 0,00% 10.7.2007 - - 17,00 17,10
a Straumur-Burðarás Fjárf.b. hf. 22,80 0,22% 11.7.2007 115 468.989.375 22,75 22,80
a Teymi hf. 5,53 3,56% 11.7.2007 21 103.352.282 5,53 5,55
▼ Össurhf. 107,50 -0,92% 11.7.2007 12 24.747.943 107,50 108,50
Onnur bréf á Aðallista
♦ 365 hf. 3,40 0,00% 11.7.2007 3 56.749 3,37 3,42
a Alfescahf. 5,85 0,52% 11.7.2007 5 32.049.939 5,82 5,88
♦ Atlantic Petroleum P/F 1075,00 0,00% 10.7.2007 - 0 1070,00 1075,00
Eik Banki 735,00 11.7.2007 118 - 730,00 735,00
▼ Flaga Group hf. 1,87 -1,06% 11.7.2007 1 112.200 1.87 1,89
a Foroya Bank 240,00 1,69% 11.7.2007 32 42.475.932 237,00 240,00
♦ lcelandic Group hf. 6,35 0,00% 10.7.2007 - ■ - 6,35 6,44
a Marelhf. 93,00 0,65% 11.7.2007 8 24.126.346 92,80 93,00
A Nýherjihf. 19,80 3,13% 11.7.2007 2 1.084.500 19,80
▼ Tryggingamiðstöðin hf. 39,25 -0,13% 11.7.2007 2 78.500 39,25 39,50
4 Vinnslustöðin hf. 8,50 0,00% 25.6.2007 - -
First North á íslandi
▼ Century Alumlnium Co. 3589,00 -0,22% 11.7.2007 5 53.412.000 3570,00 3595,00
♦ HBGrandihf. 12,00 0,00% 2.7.2007 - *
♦ Hampiðjan hf. 6,90 0,00% 20.6.2007 - - 7,10
• Mest viðskipti í Kauphöll OMX
voru með bréf Kaupþings, fyrir
4,4 milljarða króna. Næstmest við-
skipti voru með bréf Landsbankans,
fyrir um 1,6 milljarða.
• Mesta hækkunin var á bréfum
Teymis, 3,56%. Bréf Exista hækk-
uðu um 2,22% og bréf Kaupþings
um 1,23%.
• Mesta lækkunin í gær var á
bréfum Actavis, eða 3,15 %. Bréf
Flögu lækkuðu um 1,06%.
• Úrvalsvísitalan lækkaði um
0,40% og stóð í 8.721 stigum í lok
dags.
• íslenska krónan veiktist um 1,13
prósent í gær.
• Samnorræna OMX40-vísitalan
lækkaði um 0,04% í gær, þýska
DAX-vísitalan um 0,8% og breska
FTSE-vísitalan um 0,2%.