blaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 20
FiMMTUDAGUR 12. JULI 2007
KOLLAOGKÚLTÚRINN
kolbrun@bladid.net
Hvað ervinur?
Ein sál ítveimur líkömum.
Aristóteles
blaóiö
Perlur á
Gljúfrasteini
Kristján Orri Sigurleifsson og
Guðrún Dalía Salómonsdóttir
halda tónleika á Gljúfrasteini,
sunnudaginn 15. júlí. Þar verða
leiknar bæði klassískar perlur
í útsetningum fyrir kontra-
bassa og píanó ásamt nokkrum
fallegum verkum sem voru upp-
runalega skrifuð fyrir hljóð-
færin. Verkin eru öll mjög
aðgengileg og koma úr ýmsum
áttum. Tvö verkanna eru eftir
Giovanni Bottesini (1821-1889)
en hann samdi ótal verk fyrir
kontrabassann og var sjálfur
kontrabassasnillingur.
Tónleikarnir hefjast klukkan
16.00 og aðgangseyrir er 500
krónur.
AFMÆLI í DAG
Pablo Neruda skáld, 1904
Henry David Thoreau
rithöfundur, 1817
Milton Berle
skemmtikraftur, 1908
METSÖLULISTI
Erlendar bækur
1. The Secret
Rhonda Byrne
2. The Bancroft Strategy
Robert Ludlum
3. A Thousand Splendid Suns
Khaled Hosseini
4. The Naming of the Dead
lan Rankin
5. Beach Road
James Patterson & Peter de Jonge
6. The Witch of Portobello
Paulo Coelho
7. Like the Flowing River
Paulo Coelho
8. Lisey s Story
Stephen King
9. The Thirteenth Tale
Diane Setterfield
10. Nature Girl
Carl Hiaasen
Listinn er gerður út frá sölu dagana
03.07.07-09.07.07 í Pennanum Eymunds-
son og Bókabúð Máls og menningar
METSÖLULISTI
Innlendar bækur
1. Viltu vinna milljarð? - kilja
Vikas Swarup
2. Lost in lceland
Sigurgeir Sigurjónsson
3. Flugdrekahlauparinn - kilja
Khaled Hosseini
4. Konungsbók - kilja
Arnaldur Indriðason
5. Tvíburarnir - kilja
Tessa de Loo
6. Leynda kvöldmáltiðin - kilja
Javier Sierra
7. Ókei bæ!
Hugleikur Dagsson
8. íslenska plöntuhandbókin
Hörður Kristinsson
9. Saffraneldhúsið - kilja
Yasmin Crowther
10. 5. riddarinn - kilja
James Patterson
Listinn er gerður út frá sölu í Pennanum
Eymundsson og Bókabúð Máls og menn-
ingar dagana 04.07.-10.07.2007.
ÁhrifaLmikii kynrdng
Reykjavíkurævintýri
í Frankfurt
Arthur Björgvin Boliason
fékk hugmyndina að því
að kynna Reykjavíká
sérstakri hátíð í Frankfurt.
Hann segist aldrei hafa
tekið þátt í jafn áhrifamik-
illi íslandskynningu.
Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur
kolbrun@bladid.net
Nýlega lauk I Frankfurt mikilli há-
tíð, „Höchster Schlossfest". Þetta er
árleg hátíð sem stendur í mánuð en
á sér hálfrar aldar sögu. Hátíðin bar
að þessu sinni yfirskriftina „Halló
Reykjavík", því höfuðstaður fslands
var sérlegur gestur hátíðarinnar. Art-
hur Björgvin Bollason átti hugmynd-
ina að þessari viðamiklu kynningu á
Reykjavík.
„Það má segja að vinskapur minn
við Thomas Meder hafi kveikt þessa
hugmynd," segir Arthur Björgvin.
„Thomas er einn af stjórnendunum
hjá Thyssen-Krupp-auðhringnum
og formaður hátíðarnefndarinnar.
Hann er lífið og sálin í þessari hátíð
og stýrir fjörutíu manna her sem sér
um skipulagningu hennar. Hugmynd
okkar um þessa kynningu á Reykjavík
var borin undir fulltrúa Reykjavíkur-
borgar sem komu hingað og skoðuðu
aðstæður og svo sló borgin til og taldi
þetta gott mál. Icelandair kom síðan
inn í dæmið sem einn helsti styrktar-
aðili hátíðarinnar. Það er greinilegt
að þessi hátíð hefur styrkt mjög sam-
skipti Reykjavíkur og Frankfurt.
011 þessi hátíð hefur verið mikið
ævintýri. Hún fór reyndar erfiðlega
af stað vegna þess að við opnun há-
tíðarinnar átti listakonan Rúrí að
fremja gjörning en skömmu áður
skall á þrumuveður þannig að gjörn-
ingurinn fór í vaskinn í bókstaflegri
merkinu. Menn létu það ekki á sig
fá og bæði Rúrí og Vilhjálmur Þ. Vil-
hjálmsson borgarstjóri komu aftur
nokkrum dögum seinna með friðu
föruneyti. Gjörningurinn var þá
endurtekinn niður við ána Main í
ákaflega mögnuðu umhverfi með til-
heyrandi hljóðum og trumbuslætti
trommuleikara. Fólk var bergnumið."
Á annað hundrað blaðagreina
Mikið var um dýrðir í Frankfurt
þá daga sem hátíðin stóð yfir. Á
annað hundrað viðburðir voru í
gangi á þeim tíma sem hátíðin stóð.
Islenskir tónlistarmenn fluttu tón-
list, höfundar lásu úr verkum sínum
og myndlistarmenn sýndu verk sin.
Sem dæmi má nefna að Viktor Arnar
Ingólfsson og Auður Jónsdóttir lásu
upp úr verkum sínum, ljósmynda-
sýning með verkum eftir Báru Krist-
insdóttur var opnuð og Friðrik Þór
Friðriksson kvikmyndagerðarmaður
var viðstaddur sýningu á Börnum
náttúrunnar og ræddi við áhuga-
fólk eftir sýninguna. Auk þess flutti
Hörður Áskelsson, ásamt tveimur
trompetleikurum, tónleika í Justinus-
kirkjunni, sem var byggð skömmu
fyrir landnám Islands og í lok hátíðar-
innar mætti Tómas R. Einarsson með
djasskvartett sinn.
„Ég hef aldrei tekið þátt 1 íslands-
kynningu sem mér hefur þótt jafn
áhrifamikil og þessi,“ segir Arthur
Björgvin. „ísland hefur fengið gríð-
arlega umfjöllun í fjölmiðlum vegna
hátíðarinnar og mér sýnist að hátt
á annað hundrað blaðagreina hafi
verið skrifaðar um hátíðina. Það
finnst varla sá Frankfurtbúi sem ekki
veit að Reykjavík er spennandi ferða-
mannaborg. Kynningargildi svona há-
tíðar verður ekki mælt í aurum.“
Halldór Laxness fékk sinn skammt
af athygli í Frankfurt. „Bankaráðsfor-
maður eins bankans í Frankfurt er
mjög hrifinn af Halldóri Laxness og
viidi efna til Laxness-kvölds," segir
Arthur Björgvin. „Fenginn varþýskur
rithöfundur, Berthold Dirnfellner,
sem fjallaði um Laxness og verk hans
og Petra Fehrmann, þekkt þýsk leik-
kona, las kafla úr Kristnihaldinu. Ég
sagði svo frá þvi hvaða þýðingu Lax-
ness hefði fyrir íslendinga sem uxu
upp með verkum hans og fjallaði um
UUKlUClllUcllclllUMclg JllcClCllMlCSÖ.
Það var troðfullt hús, um hundrað
manns, og við vorum beðnir um að
endurtaka leikinn og tókum næst
fyrir Atómstöðina, lásum úr henni og
ræddum efni sögunnar í svonefndum
„Bierkolleg", bókmenntaklúbbi þar
sem menn hittast á krá hér í Frankfurt
einu sinni í mánuði til að ræða heims-
bókmenntirnar. Þetta tókst svo vel að
við erum að leggja drög að því að fara
með Laxness-dagskrána okkar og
kynna og túlka sögurnar hans fyrir
Þjóðverjum, eina af annarri."
Arthur Björgvin. „Það finnst varla sá
Frankfurtbúi sem ekki veit að Reykjavík er
spennandi ferðamannaborg. Kynningargildi
svona hátíðar verður ekki mælt i aurum."
MENNINGARMOLINN
Sjötugur Cosby
Á þessum degi árið 1937 fæddist
gamanleikarinn Bill Cosby, ein
skærasta sjónvarpsstjarna 20. aldar.
Hann vakti fyrst athygli fyrir leik
sinn sem leynilögreglumaður í æv-
intýraþáttunum I Spy og var þar
með fyrstur blökkumanna til að
fara með aðalhlutverk í vinsælum
sjónvarpsþætti. Hann hlaut Emmy-
verðlaun þrjú ár í röð fyrir leik
sinn í þáttunum. Mestrar hylli naut
hann þó sem fjölskyldufaðirinn og
læknirinn í The Cosby Show. Hann
hefur einnig leikið í kvikmyndum
og talað inn á teiknimyndir.
Cosby kvæntist árið 1964 og eign-
aðist fimm börn en sonur hans,
Ennis, var skotinn til bana árið
1997 þegar hann var að skipta um
bíldekk á hraðbraut í Los Angeles.
Sama ár kom fram á sjónvarsviðið
22 ára gömul kona sem sagðist vera
dóttir Cosbys utan hjónabands.
Málið varð dómsmál og konan var
dæmd fyrir fjárkúgun.
Bill Cosby hefur hlotið fjölda
viðurkenninga á ferlinum og er
höfundur nokkurra bóka.