blaðið - 12.07.2007, Qupperneq 26
26
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007
blaóió
LÍFSSTÍLLKONAN
konan@bladid.net
Maður er vel meðvitaður um það í
gegnum lífið að það eru ekki allar
mæður sem geta haft börn sín á brjósti.
Fyrsti kvenbæjar-
stjórinn heiðraöur
Frumkvöðullinn Hulda Dóra
Jakobsdóttir (fædd 21. október 1911,
lést 31. október 1998) gegndi starfi
bæjarstjóra fyrst kvenna á íslandi.
Hulda var kjörin bæjarstjóri í Kópa-
vogi árið 1957 og gegndi því starfi
til ársins 1962. í ár eru því fimmtíu
ár liðin frá því að fyrsta konan sett-
ist í bæjarstjórastól. Árið 1970 náði
hún kjöri sem bæjarfulltrúi og sat
eitt kjörtímabil.
Hulda var helsta driffjöðrin í
byggingu Kópavogskirkju og sat
í sóknarnefnd í 10 ár, einnig stóð
hún að stofnun Leikfélags Kópa-
vogs. Hulda var ásamt manni
sínum kjörin fyrsti heiðursborgari
Kópavogs árið 1976. Þessara tíma-
móta var minnst með opnun örsýn-
ingaí Bókasafni Kópavogs. Aðstand-
Saumaklúbbur
á Netinu
Margar konur tilheyra svoköll-
uðum saumklúbbum, þar sem
hist er með reglulegu millibili og
saumað, prjónað eða annað slíkt.
Einn slíkur klúbbur er starfræktur í
gegnum Netið. Þessi klúbbur kallar
sig Netkellur og er vefslóðin net-
. kellur.is. Það voru tvær konur upp-
haflega sem byrjuðu með þennan
klúbb árið 2002. I dag eru þær 20.
Klúbburinn leggur mesta áherslu á
útsaum. Konurnar koma víðsvegar
að af landinu og halda fundi mán-
aðarlega. Heimasíðan er vönduð og
getur fólk sem hefur áhuga á hann-
yrðum fengið uppskriftir og annan
fróðleik í gegnum síðuna. Einnig
eru nýir félagar velkomnir.
endur Huldu ásamt Jafnréttisstofu
standa fyrir sýningunni.
Á sýningunni eru munir í eigu
ættingjaHuldu.en einnigeruþarop-
inber skjöl, þar sem sjá má ýmislegt
sem Hulda lagði til sem bæjarstjóri.
Jafnréttisnefnd notaði tækifærið
þegar sýningin var opnuð og
afhenti útibúi Landsbankans
í Smáralind jafnréttisverðlaun
Kópavogs.
Arangur fer eftir gæðum
Hvaða Spirulina ert þú að taka?
S
29 vítamín og steinefni ■ 18 aminósýrur ■ Blaögræna ■ Omega
• GLA fitusýrur • SOD eitt öflugasta andoxunarensím líkamans
Eingöngu lífræn næringarefni tryggja betri upptöku og nýtingu Híkamanum.
Súrefnistæmdar umbúöir
vernda næringarefnin.
Lifestream þörungarnir eru ómengaðir,
ræktaðir í ferskvatni eftir ströngum
gæöastaðli. IS09001 • IS014001
Greinilegur árangur eftir
nokkra daga inntöku
Aukið úthald,
þrek og betri líðan
Fæst í apótekjum og heilsubúðum.
www.celsus.is
Auglýsingasíminn er
510 3744 ....................—
Eiga konur í stríði við brjóstagjafarmafíu?
Frjálst val aðalatriðið
Agnes Wold, læknir
og sérfræðingur í
Svíþjóð, gagnrýnir
„brjóstagjafamafíuna"
fyrir að koma inn
samviskubiti hjá
konum. Verkefnastjóri
hjá landlækni segir að
leggja beri áhersiu á
upplýst val.
Eftir Lovísu Hilmarsdóttur
lovisa@bladid.net
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin
mælir með því að ungbörn fái
eingöngu móðurmjólk fyrstu sex
mánuðina. I grein í norska blaðinu
Aftenposten kemur fram að sænski
læknirinn Agnes Wold efast ekki
um áhrifin sem brjóstamjólk hefur
á börn en hún segir að þessi viðmið
séu fyrir þróunarlöndin. Lönd eins
og Noregur og Svíþjóð sem búi við
allt önnur lífsskilyrði eigi ekki að
lúta sömu reglum.
Wold segir í greininni að það
sé mjög algengt að ef konur af ein-
hverjum ástæðum geta eða vilja
ekki hafa barn á brjósti eða hafa það
skemur en sex mánuði, þá upplifi
þær mikla skömm og samviskubit
og fái neikvæð viðbrögð frá heilbrigð-
isstarfsmönnum og öðrum konum.
Hún kallar þetta brjóstagjafamafí-
una og segir að það sé val hverrar
móður hversu lengi eða hvort hún
hefur barn sitt á brjósti.
Mælt með brjóstagjöf
Landlæknisembættið á íslandi fer
eftir Alþjóðaheilbrigðisstofnuninni
og mælir með því að konur hafi börn
sín á brjósti í sex mánuði. Hildur
Kristjánsdóttir, ljósmóðir og verk-
efnastjóri hjá landlæknisembættinu,
segir að mest sé lagt upp úr upplýstu
vali hérlendis. „Við leggjum mjög
ríka áherslu á upplýst val kvenna en
við mælum með brjóstagjöfinni. Það
veitir börnum ákveðna vörn gegn
sýkingum og hefur áhrif á sjúkdóma
seinna á ævinni. Hins vegar leggjum
við áherslu á stuðning við ákvörðun
konunnar hvort sem hún ákveður
að gefa brjóst eða ekki,“ segir Hildur
og bætir við að konur séu mjög
jákvæðar gagnvart brjóstagjöf hér-
lendis og flestum finnist brjóstagjöf
sjálfsagður hlutur.“
STAÐREYNDIR
Strax um miðja meðgöngu
fer að myndast mjólk í
brjóstunum.
Flókið fyrirbrigði
Sólveig Þórðardóttir, hjúkrun-
arfræðingur og ljósmóðir, hefur
starfað við fæðingar í rúm 20 ár. Hún
hefur mikla reynslu af ungbarna- og
mæðraeftirliti. „Maður er vel meðvit-
aður um það í gegnum lífið að það
eru ekki allar mæður sem geta haft
börn á brjósti. Það er mjög flókið fyr-
irbrigði að annast barn og næra það
samtímis," segir Sólveig.
Aðspurð hvort hún verði vör við að
konum líði illa ef þær hafa ekki börn
sín á brjósti segir Sólveig að það
þurfi að gera rannsóknir á því. „Ég
hef ekki séð neinar rannsóknir sem
sýna að konur upplifi vanlíðan eftir
að hafa tekið upplýsta ákvörðun
Fyrsta mjólkin sem kemur
kallast broddur.
Ungbörnum er eðlilegt að
sjúga allt sem snertir varir
þeirra.
um að hafa barn ekki á brjósti. Sem
fræðimaður þætti mér athyglisvert
að sjá slíka rannsókn, hvort konum
líður sem annars flokks mæðrum ef
þær geta ekki haft barn á brjósti. Ég
þekki eina og eina konu sem af ein-
hverjum ástæðum verður að hætta
brjóstagjöf. Stundum liður þessum
konum illa með það. Ef konur
ákveða af einhverjum ástæðum að
hafa börn sín ekki á brjósti þá virði
ég þá ákvörðun og styð þær í því.“
KONA VIKUNNAR
Hvað œtlaðir þú að verða þegar þú
varst lítil?
Læknir eða búðarkona, lék mér
mikið í búðar- og læknisleikjum.
Efekki hér, hvarþá?
Eg vil bara vera þar sem ég er.
Hvað er kvenlegt?
Það er það sem hver og einn telur
kvenlegt.
Er munur á körlum og konum og ef
svo er, hver er hann?
Það er töluverður munur á milli
kynja og þannig var því ætlað að
vera.
Erfullu jafnrétti náð?
Nei, það er á ábyrgð okkar að
breyta því.
Hvað skiptir þig mestu máli í
lifinu?
Lífið sjálft.
Helstu fyrirmyndir?
Foreldrar mínir.
Ráð eða speki sem hefur reynst þér
vel? Það að vera hamingjusamur er
ákvörðun.
Draumurinn þinn?
Að vera við stjórnvölinn á eigin lífi.
Nafn: Freyja
Haraldsdóttir
Aldur:21 árs
Starf: Leiðbeinandi
í unglingastarfi
einstakra barna og
vinnuríleikskóla.
Uppáhaldsbók?
Leitin að tilgangi lífsins er djúp og
áhrifamikil bók og ég mæli með
henni. Svo standa dýrin í Hálsa-
skógi alltaf fyrir sínu.