blaðið - 12.07.2007, Blaðsíða 28
ÍÞRÓTTIR
ihrottir@bladid.net
FIMMTUDAGUR 12. JÚLÍ 2007
Staða Eiðs versnaði til muna eftir jól. Fjórum sinnum hóf hann leik
í 22 deildarleikjum, átta sinnum kom hann við lítið við sögu og
lék aðeins í 390 mínútur í deildinni eftir jól. Alls lék hann því í heild
aðeins rúmlega þrjá leiki síðustu sex mánuðina og skoraði engin mörk.
SKEYTIN INN
Koma Fem-
ando Torres
til Liverpool
hefurvakiðvonir
« margra um betri
tíðmeðblómi
í haga. Steven
Gerrard er einn þeirra sem sáttir
eru við gang mála og lýsti þvi yfir
að með Torres i broddi iylkingar
gæti Liverpool fyrir alvöru tekið
þátt i keppninni um enska titilinn.
Hann reyndist þó ekki sannspár
þegar hann lét sömu orð falla
þegar annar Fernando, kenndur
við Morientes, kom til liðsins.
Morientes hvarf fljótlega á bekkinn
og var seldur eftir eitt tímabil.
Sögusagnir um
að Gabriel
Heinze sé
nokkuð spenntur
fyriraðspilafyrir
Liverpool hafa
vakið reiði Alex
Ferguson, stjóra United. Það vita
þeir sem til þekkja að það er ekki
jákvætt fyrir Argentínumanninn.
Hatrammur rígur er milli félaganna
og hreint guðlast talið að leikmenn
fari milli þessara tveggja ensku
risa. Heinze fær tiltal þegar hann
kemur frá Ameríkukeppninni.
að tínist hægt
og bítandi úr
þeim hópi er
gerðiArsenalað
skemmtilegasta
félagsliðiheims
* um tíma. Pires
og Henry famir og nú standa
likur til að Freddie Ljungberg
haldi til ftalíu þar sem Fiorentina
hefúr áhuga. Wenger hefur enn trú
á Svíanum en hraða hans og tækni
hefur hrakað og talsverð óánægja er
í herbúðum liðsins vegna sölunnar
á Henry. Gæti Ljungberg ákveðið
að nú sé tíminn til brottfarar.
Við liggur að
það nægi
að einstak-
lingur sé með
tvofæturheila til
að stórliðið Real
Madrid hafi hug á
að kaupa hann. Virðist vart sá knatt-
spyrnumaður til sem ekki hefur feng-
ið fyrirspum frá Madrid og ef marka
má Marca á Spáni er Jerzy Dudek
í símasambandi við forsvarsmenn
Real. Fáir virðast muna að margir af
bestu markvörðum Spánar hafa kom-
ið frá varaliðum Real gegnum tíðina.
'#.f j/ \ ‘f ,, :• \ ^ ÆíM.
Eiður þarf
f leiri feiki
I Eiður ekki í formi að sögn Eyjólfs
■ Verður að spila meira
Eftir Albert Örn Eyþórsson
albert@bladid.net
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði
alls ekki nógu marga leiki með fé-
lagsliði sínu seinnihluta vetrar og
það kom berlega í ljós í landsleikjum
Islands í vetur og vor að mati Eyj-
ólfs Sverrissonar landsliðsþjálfara.
Vill hann ekki meina að Eiður hafi
verið varaskeifa hjá liði Barcelona í
vetur en dregur ekki dul á að annars
staðar gæti Eiður fengið mun fleiri
tækifæri.
Mikil umræða hefur farið fram
um framgöngu Eiðs með landslið-
inu í vetur og þykir mörgum nóg
um. Setja þeir samasemmerki við
frammistöðu hans í búningi lands-
liðsins og hversu lítið hann hefur
komið við sögu undir stjórn Frank
Rijkaard, þjálfara Barcelona, eftir
áramót.
Tölfræði hans með Barca í vetur
er athyglisverð fyrir margra hluta
sakir. A fyrrihluta leiktíðarinnar
meðan Samuel Eto'o var meiddur
var Eiður tíu sinnum í byrjunarlið-
inu í deildinni og skoraði fjögur
mörk. í þrígang kom hann inn á
seint í leik og náði að setja eitt mark
undir slíkum kringumstæðum.
Staða Eiðs versnaði til muna
þegar helstu stjörnur Barca urðu
leikhæfar á ný eftir jól. Aðeins
V;;. "f**"'.
Eyjolfur Sverrisson
Leikformi Eiös hefur
hrakað á síðustu
mánuðum og sést
það í landsleikjum.
fjórum sinnum hóf hann leik í 22
deildarleikjum, átta sinnum kom
hann við sögu í tíu til fimmtán mín-
útur í senn og lék samtals í 390 mín-
útur með Barcelona í deildinni eftir
jól. Alls lék hann því í heild aðeins
rúmlega þrjá leiki síðustu sex mán-
uðina og skoraði engin mörk. Sé
tölfræðin tekin enn lengra lék Eiður
1582 mínútur í deild og Meistara-
deild í treyju Barca í vetur sem gerir
tæplega átján leiki alls. Er það sami
fjöldi leikja og spilaðir eru
í íslensku Landsbanka-
deildinni hvert sumar.
Koma Thierry Henry
til Barca mun færa
Eið Smára enn aftar
í goggunarröðinni
en í vetur verði hann
áfram á sínum stað.
Ein ástæða þess að
Rijkaard er ekki áfjáður
að selja Eið að svo stöddu
kann að vera sú að hann
er fyrsta flokks
varamaður og þannig vill Hollend-
ingurinn hafa það. Mikið má ganga
á áður en hann verður tekinn fram
fyrir þá Ronaldinho, Messi, Henry
eða Eto'o í byrjunarliðinu.
Eyjólfur Sverrisson landsliðs-
þjálfari segir alveg ljóst að rekja
megi formleysi Eiðs í síðustu lands-
leikjum til þess að hann fái lítið að
Er pláss fyrir Eið?
spila. „Hann er í toppformi líkam-
lega en það sem vantar er leikformið
og menn verða að spila reglulega
til að ná því og viðhalda því. Það
kemur hins vegar fljótt fái menn
tækifærin og ég lít ekki svo á að
Eiður hafi verið varaskeifa hjá Barc-
elona í vetur.”
Förum varlega í akstri um ísland og höfum hugfast að ferðalagið
er jafnmikil upplifun og áfangastaðurinn. Landið hefur upp á
ótalmargt að bjóða og aldrei að vita hverju þú missir af þegar
farið er um í óðagoti. Stillum hraðanum í hóf, göngum vel um
landið okkar og komum heil heim.
Ljósmyndasamkeppni
Á ferdalag.is finnurðu ýmiss konar upplýsingar sem tengjast
ferðalögum um ísland. Kynntu þér fáséðar perlur utan alfaraleiðar
og sjáðu með eigin augum. Safnaðu Ijósmyndum og sendu inn í
Ijósmyndasamkeppnina okkar. Sú stendur í allt sumar og vegleg
verðlaun eru í boði.
www.ferdalag.is