blaðið - 12.07.2007, Qupperneq 36
36
FIMMTUDAGUR 12. JULI 2007
blaöió
DAGSKRÁ
Hvað veistu um Dennis Quaid?
1. Hvers vegna lagði hann leiklistina fyrir sig?
2. í hvaða mynd eyddi hann óeðlilega miklum tíma innan í Martin Short?
3. Hvaða frægu leikkonu var hann eitt sinn giftur?
«1 Svör
ueÁy 6eyg ■£
I X.?* \ 1 aoedsjouui z
■eune|pja/\sje>|SQ p jnpujaum
Jea 'pieno Apuey ‘sueij Jipojg • j
RÁS 1 92,4 / 93,5 • RÁS 2 90,1 / 99,9 • REYKJAVÍK FM 101,5 • BYLGJAN 98,9 • FM 95,7 • X-IÐ 97,7 • ÚTVARP SAGA 99,4 • LÉTTBYLGJAN 96,7 • GULLBYLGJAN 90,9 • R0NDÓ 87,7
HVAÐ SEGJA
STJÖRNURNAR?
OHrútur
(21. mars-19. apríl)
Það er ekki vist að þú hafir ástæöu til að finna fyrir
líkamlegri þreytu en vel má vera að þú verðir þreytt(ur)
ásálinni. Veittu henni langþráða hvíld.
©Naut
(20. apríl-20. maQ
Menningarárekstrar eiga sér ekki bara stað þegar
fólk frá mismunandi menningarheimum kemur
saman. Þeir geta líka átt sér stað á vinnustöðum eða
ásamkomum.
©Tvíburar
(21. maí-21. júnO
Ef til vill verðurðu fyrir einhverjum vonbrigðum á vinnu-
staðnum. Það þarf þó ekki að vera af því að þú sért að
gera eítthvað afþér.
Fullkominn glæpaþáttur
Ríkissjónvarpið hef-
ur gert þriðjudagskvöld
að sérstakri skemmtun
með sýningu á breskum
spennumyndaflokki, Je-
richo lögreglufulltrúa.
Þetta er alvöru gamal-
dags glæpaþáttur þar
sem hinn hæfileikamikli
Robert Lindsay fer með
aðalhlutverkið. Jericho
leynilögreglufulltrúi er
þreytulegur, orðvar og
greindarlegur eins og al-
vöru karlmenn eiga að
vera. Svo er framið morð
og allt er fullt af dular-
fullu fólki sem virðist
hafa ýmislegt á samvisk-
unni. Það er enginn sér-
stakur subbuskapur í þess-
um þáttum, umhverfið er
snoturt og fólkið fremur
fallegt.
Fram að þessu hef ég
séð tvo þætti sem eiga
það sameiginlegt að ríku
og fallegu einstaklingarn-
ir reyndust vera samvisku-
lausir morðingjar. Alltaf
virkar það jafn hressandi
á mig að horfa á ógæfu
Kolbrún Bergþórsdóttir
hressist við að horfa á ógæfu ríka
fólksins í sjónvarpsþáttum.
kolbrun(<íbladid.net
FJOLMIÐLAR
ríka fólksins í sjónvarpsþáttum. Sennilega finn-
ur maður öryggi í hversdagsleikanum þegar
maður sér að ógæfa fylgir peningum, en það eru
einmitt skilaboðin í þáttum eins og þessum.
Vondu fréttirnar eru þær að einungis eru
eftir tveir þættir af þessum fínu glæpaþáttum.
RÚV verður að panta fleiri.
©Krabbi
(22. júnf-22. júliQ
Þú færö skapandi verkefni upp í hendurnar síðari hluta
dags og þaó gæti þurft alla þína orku og einbeitingu.
Vertu vakandi.
®Lj6n
(23. júlf- 22. ágúst)
Samvinna, samverustund og samstaða eru lykilorðin
í dag. Enginn er eyland þótt sumir upplifi sig ef til vill
stundum á þann hátt.
CS Meyja
J (23. ágúst-22. september)
Þú gætir þurft að tjá þig opinberlega eða í margmenni
og koma mikilvægum skilaboðum á framfæri. En það er
engin ástæða til að stressa sig.
Vog
{23. september-23. október)
Miðlaðu reynslu þinni til þeirra sem vilja hlusta á þig.
Finnst þér þín lífsreynsla vera lítilfjörleg miðað við
lífsreynslu annarra? Hun er það ekki.
Sporðdreki
(24. október-21. nóvember)
Þúert búin(n) að venjast þvf að nota alla nýjustu tækni
og nútímaþægindi svo að þú hugsar ekki lengur um
það. I dag gætirðu fengið verkefni þar sem slíkt kemur
ekki við sögu.
Bogmaður
(22. nóvember-21. desember)
Þú átt gott með að ná góðum árangri (Iffinu enda
veistu hvað skiptir máli. En það þarf Ifka stundum að
reka sig á smá hindranir og það gæti gerst i dag.
©Steingeit
(22. desember-19. janúar)
Vinnusemi og elja einkenna vinnudag þinn og þú reyn-
ist góður starfskraftur. Hvað er það sem gefur þér þessa
orku? Kannski geturðu búið að henni framvegis.
©Vatnsberi
(20. janúar-18. febrúar)
Þótt þú viljir skoða öll mál ofan í kjölinn og leysa öll
smávægileg vandamál sem upp koma þarftu stundum
að einbeita þér að því mikilvægasta og láta hitt liggja
milli hluta.
©Fiskar
(19. febrúar-20. mars)
Þú ert manneskja sátta og góðra málamiðlana en
stundum eru erjur milli fólks þér ofviða. Ekki ásaka
sjálfa(n) þig, þetta er eðlilegt.
SJÓNVARPIÐ
16.20 Leikir kvöldsins (e)
16.35 Mótorsport (e)
17.05 Leiðarljós
17.50 Táknmálsfréttir
18.00 Stundin okkar (10:32) (e)
18.25 Börnin i
Mandarinuskólanum
19.00 Fréttir
19.30 Veður
19.35 Kastljós
20.10 Afrika heillar (3:6)
(Wild at Heart)
Breskur myndaflokkur
um hjón sem hefja nýtt líf
ásamt börnum sínum innan
um villidýr á sléttum Afríku.
Meðal leikenda eru Steph-
en Tompkinson, Amanda
Holden, Lucy-Jo Hudson,
Luke Ward-Wilkinson,
Deon Stewardson, Rafaella
Hutchinson og Nomsa
Xaba.
21.15 Aðþrengdar eiginkonur
(Desperate Housewives III)
Bandarísk þáttaröð um ná-
grannakonur í úthverfi sem
eru ekki allar þar sem þær
eru séðar. Aðalhlutverk
leika Teri Hatcher, Felicity
Huffman, Marcia Cross,
Eva Longoria og Nicolette
Sheridan. Atriði í þáttunum
eru ekki við hæfi barna.
22.00 Tíufréttir
22.25 14-2
22.55 Dagrenning (8:13)
(Day Break)
Bandarísk þáttaröð um lög-
reglumann sem er sakaður
um að hafa skotið saksókn-
ara. Hann leggur á flótta og
reynir að hreinsa mannorð
sitt en þegar hann vaknar á
morgnana er alltaf sami dag-
urinn. Meðal leikenda eru
Taye Diggs, Meta Golding,
Moon Bloodgood, Victoria
Pratt og Ramon Rodriguez.
Atriði í þáttunum eru ekki
við hæfi barna.
23.40 Aðþrengdar eiginkonur
(Desperate Housewives III)
Bandarísk þáttaröð um
nágrannakonur í úthverfi
sem eru ekki allar þar sem
þær eru séðar.
00.25 Kastljós
00.55 Dagskrárlok
H STÖÐ2
07.00 Magic Schoolbus
07.25 ScoobyDoo
07.45 Litlu Tommi og Jenni
08.10 Beauty and the Geek
08.55 f finu formi 2005
09.10 Bold and the Beautiful
09.30 Forboðin fegurð (89:114)
10.15 Grey's Anatomy (12:25)
11.05 Fresh Prince of Bel Air
11.30 Outdoor Outtakes (3:13)
12.00 Hádegisfréttir
12.45 Nágrannar
13.10 Forboðin fegurð (31:114)
13.55 Forboðin fegurð (32:114)
14.45 Two and a Half Men
15.20 Búbbarnir (9:21)
15.50 Skrímslaspilið
16.15 Batman
16.35 Doddi litli og Eyrnastór
16.45 Nornafélagið
17.10 Fífí
17.23 WilliamsWish
Wellingtons
17.28 Nágrannar
17.53 Bold and the Beautiful
18.18 island i dag og veður
18.30 Fréttir
18.55 island i dag, íþróttir
og veður
19.40 The Simpsons (13:22) (e)
Kvikmyndastjarna fellur
fyrir Ned Flanders. Það
reynir á trú hans þegar
stjarnan sýnir áhuga á
kynlífi þrátt fyrir að þau
séu ekki gift.
20.05 Matur og lífsstíll
Ragga Gísla er gestur
þáttarins en hún er
skemmtilegafrumleg í
matargerð sinni og fer oft
óhefðbundnar leiðir. Hún
kann að matreiða fisk á
óhemju einfaldan hátt en
um leið þannig að hann
kitli bragðlaukana.
20.40 So You Think
You Can Dance (8:23)
22.05 HOTEL BABYLON
23.00 Standoft (17:18)
23.45 Cold Case (23:24)
00.30 The Shield (5:10)
01.15 Medium (21:22)
02.00 Kept
03.35 Grey’s Anatomy (12:25)
04.20 Hotel Babylon
05.15 Fréttir ogisland i dag (e)
06.25 Tónlistarmyndbönd
frá Popp TíVi
® SKJÁREINN
07.35 Everybody Loves
Raymond (e)
08.00 Dr. Phil (e)
08.45 Vörutorg
09.45 Ústöðvandi tónlist
15.45 Vörutorg
16.45 One Tree Hill (e)
17.45 AllofUs(e)
18.15 Dr.Phil
19.00 Everybody Loves
Raymond (e)
19.30 Yes, Dear(6:11)
Systurnar Kim og Christine
eru eins ólíkar og systur
geta verið. Kimer haldinóg-
urlegri fullkomnunaráráttu
en Christine hefur afslapp-
aðra viðhorf til lífsins og
er dugleg að minna systur
sína á að líf hennar muni
aldrei verða jafn fullkomið
og hún þráir.
20.00 EVERYBODY HATES CHRIS
Chris verður að velja á milli
þess að fara á hafnabolta-
leik með pabba sínum og
bróður eða að fara í bíó
með Tasha.
20.30 According to Jim (13:22)
Jim og Cheryl ætla að end-
urnýja hjúskaparheitin en
allt fer úr böndunum þegar
börnin fá göt í eyrun.
21.00 Will & Grace (20:23)
21.30 Law & Order: SVU (3:22)
Níu ára stúlka hringir til
Neyðarlínunnar og segist
hafa verið innilokuð svo
dögum skiptir. Þegar sam-
bandið rofnar hefst kapp-
hlaup við tímann til þess að
finna stúlkuna áður en það
er um seinan.
22.20 TheLWord (10:12)
Kit er byrjuð að drekka aft-
ur eftir að hún hætti með
Angus. Bette heldur matar-
boð til að kynna Jodi fyrir
vinkonum sínum og Alice
finnur hugsanlega fjárfesta
fyrir vefsíðu sína.
23.10 Everybody Loves
Raymond
23.35 JayLeno
00.25 Law & Order (e)
01.15 Kidnapped (e)
02.05 Backpackers (e)
02.35 Vörutorg
03.35 Ústöðvandi tónlist
SIRKUS
TV
17.15 Insider
17.45 Skifulistinn
18.30 Fréttir
Fréttastofa Stöðvar 2 flytur
fréttir í opinni dagskrá á
samtengdum rásum Stöðv-
ar 2 og Sirkuss.
19.00 island i dag
19.40 Entertainment Tonight
i gegnum árin hefur En-
tertainment Tonight fjallað
um allt það sem er að
gerast í skemmtanabrans-
anum og átt einkaviðtöl við
frægar stjörnur.
20.10 Hidden Palms (5:8)
Eftir að Johnny Miller miss-
ir föður sinn snögglega
flytur hann til Palm Springs
ásamt móður sinni og
stjúpföður. En þrátt fyrir
að staðurinn virðist vera
sólskinsparadís uppgötvar
Johnny fljótlega að ekki er
allt sem sýnist.
21.00 My Name Is Earl (21:23)
21.30 Bestu Strákarnir (11:50)
22.00 The Riches (7:13)
Dauðsfall í fjölskyldunni
verður til þess að Malloy-
fjölskyldan snýr aftur á
heimaslóðir. Það eru ekki
allir sáttir við að fjölskyldan
sé komin aftur en sumir
vilja nýta þetta tækifæri tll
aö koma dóttur hjónanna í
hjónaband.
22.45 Medium (21:22)
Raðmorðingi gengur laus
og Allison kemst að því að
góð vinkona hennar verður
næsta fórnarlamb hans. Alli-
son gerir allt sem hún getur
til að vernda hana en kemst
að því að vinkonan er ekki
öll þar sem hún er séð.
23.30 Young Blades (10:13) (e)
Spennandi þáttaröð
þar sem sögusviðið er
Frakkland á miðöldum og
svokallaðar skyttur sjá um
að verja landið gegn illum
öflum.
00.15 Supernatural (22:22) (e)
(Yfirnáttúrulegt)
01.00 Entertainment Tonight
(e)
01.25 Tónlistarmyndbönd
frá Popp TV
s?=m SÝN
07.00 Copa America 2007
(Mexíkó - Argentína)
18.10 Gillette World Sport 2007
(þróttir í lofti, láði og legi.
Fjölbreyttur þáttur þar sem
allar greinar íþrótta eru
teknar fyrir. Þáttur sem
sýndur hefur verið í árarað-
ir við miklar vinsældir.
18.40 PGA Tour 2007 -
Highlights
Svipmyndir frá síðasta
móti á PGA-mótaröðinni í
golfi í Bandaríkjunum.
19.35 Þaðhelstai
PGA-mótaröðinni
Inside the PGA Tour er
frábær þáttur þar sem
golfáhugafólk fær tækifæri
til þess að kynnast betur
kylfingunum í bandarísku
PGA-mótaröðinni.
20.00 Sumarmótin 2007
(N1 - mótið)
20.30 Landsbankadeiidin 2007
21.30 Augusta Masters
úfficial Film
Nú styttist óðum í sjálft
Masters-mótið í golfi. Af
því tilefni er rétt að rifja
upp eftirminnileg mót í
sögu Masters. f þessum
þætti verður tekið fyrir
mótið árið 1960 þegar að
Arnold Palmer var á hátindi
síns ferils en hann lék á
Masters-mótinu fimmtíu
ár í röð.
22.25 Copa America 2007
(Mexíkó - Argentina)
M STÖÐ 2 - BÍÓ
06.00 Love Liza
08.00 All Dogs Go to Heaven 2
10.00 The Curse of the
Pink Panther
12.00 The Day After Tomorrow
14.00 All Oogs Go to Heaven 2
16.00 The Curse of the
Pink Panther
18.00 The Day After Tomorrow
20.00 Love Liza
22.00 Confidence
00.00 The Badge
02.00 The Terminator
04.00 Confidence
Stálmaðurinn snýr aftur
Singer gerir framhalds
mynd um Superman
Það hefur lengi legið fyrir að leikstjórinn Brian Singer vildi gera
framhald af mynd sinni Superman Returns og nú hefur það verið
staðfest að frumvinnsla á framhaldsmyndinni er hafin. Singer hef-
ur áður sagt að næsta mynd hans um ofurhetjuna í rauðu brókinni
myndi skarta enn meiri hasar og enn meiri spennu og verður for-
vitnilegt að sjá hvort hann nær að standa við stóru orðin.
Það hefur verið staðfest að Kevin Spacey muni fara aftur í
hlutverk Lex Luthor en lengi vel hafði fólk velt því fyrir sér
hvort Superman fengi einhvern annan óvin til að berjast við
en hann þarf víst að sætta sig við gamla góða Lex Luthor.
Það er Michael Dougherty sem sér um að skrifa handritið
og Singer sjáifur mun sjá um leikstjórnina. En fyrst þarf
hann að klára vinnuna við hina umdeildu mynd Valkyrie
og dramamyndina The Mayor of Castro Street og að þeim
loknum getur hann snúið sér að ofurmenninu. Áætlað er að
tökur á myndinni hefjist á næsta ári og að myndin komi í kvik-
myndahús árið 2009.
Stöð 2 klukkan 22.05
Hótelhasar
Það er alltaf líf og fjör í bresku þáttaröð-
inni Hotel Babylon. Nú er það opinbert
að Rebecca og Charlie eru par en hann
á fyrrverandi kærustu á hótelinu sem
kærir sig ekki um að hafa turtildúfurnar
fyrir augunum. Á sama tíma á Charlie í
vandræðum með bróður sinn sem mætir á
hótelið með nokkra hörkulega gaura.
Skjár einn klukkan 20.00
Bernskubrek Chris
Grínistinn Chris Rock heldur áfram að
rifja upp ævi sína í gamanþáttaröðinni
Everybody Hates Chris. Þar er af nægu að
taka enda ólst Chris upp við allsérstakt fjöl-
skyldulíf. í þætti kvöldsins verður Chris að
velja á milli þess að fara á hafnaboltaleik
með pabba sínum og bróður eða að fara í
bíó með Tasha.