Orðlaus - 01.02.2003, Side 47
r
Ljjónið (23.júlí - 22.ágúst)
Þótt Ijónið kjósi að þóknast félaga sínum birt-
ist það jafnframt árásargjarnt í eðli sínu þegar
árið framundan er kannað. Þú býrð yfir hernað-
aranda sem þú heldur í skefjum og gefur ekki
lausan tauminn nema við vissar aðstæður.
Tilfinningar þlnar upplifa erfiða tíma og þú
verður að læra að þekkja reiðina og skynja afl
ástar og samvinnu. Þú hefur sjaldséðan mátt
til að lækna og eyða þegar ástin er annars veg-
ar,og ert fær um að gefa þig óskipta/n.Á þess-
um tímapunkti hefur þú gert upp hug þinn
innra með þér. Mannleg samskipti, verkefni
eða viðskipti, hvað sem það er þá reynir þú til
hins ýtrasta að láta það ganga. Areiðanleiki og
örlæti einkenna Ijónið í byrjun aprfl en þegar
það verður fært um að sjá hlutina eins og þeir
eru frekar en eins og það vill að þeir séu lærir
það að sleppa takinu burtséð frá því hversu
sársaukafullt sem það nú er. Fyrir mars byrjun
birtist auðmýktin holdi klædd og þú gerir ým-
islegt fyrir aðra af hreinni góðmennsku, en þú
átt það til að taka hluti of nærri þér og ættirað
hætta að berjast við fólk og veita mótstöðu.
Sporðdreki (24.okt - 21 .nóv)
Þú ættir að draga þig svolftið út úr hring-
iðunni um stund, greina aðstæður og setja
þér skýrari markmið árið 2003. Stjarna sporð-
drekans gæti fundið fyrir ójafnvægi í byrjun
ársins en þú býrð yfir geysilegri keppnishörku
sem kemur þér á áfangastað. Þú gætir þó á
sama tíma étt það á hættu að særa aðra ef
það skilar árangri f samkeppninni. Ekki láta
aðstæður draga úr þér allan mátt, hvort sem
um einkalff þitt eða starf/nám er að ræða. Þú
þarft að verjast með þvf að draga þig út úr
hringiðunni, eins og fyrr segir. Fólk fætt und-
ir stjörnu sporðdrekans þarf að geta kúplað
sig út úr hlutunum til þess að vera fært um
að setja sér skýrari markmið.Taktu þátt í verk-
efnum sem auka sjálfstraust þitt og hafðu það
hugfast út nóvember mánuð og jafnvel fyrri
hluta desember. Óvæntir hlutir stíga fram á
sjónarsviðið þar sem umhyggja og djúpur
fögnuður þfns eigin anda verður nánast
áþreifanlegur af þinni hálfu. Þú ert minnt/ur á
það hérna að þeir sem leita stöðugt að öryggi
halda áfram að leita alla ævi án þess að finna
það sem leitað er að.Valið er í þínum höndum
árið framundan.
Meyjan (23.ágúst - 22.sept)
Meyjan er gefandi f samskiptum við sfna nán-
ustu en er nú óttaslegin varðandi öryggi, bæði
fjárhagslegtogtilfinningalegt,sembyrgirann-
ars snjallt innsæi hennar. Ef þú óttast höfnun
eða sársauka ættir þú að vera vakandi fyrir
táknum sem birtast þér um þessar mundir og
vera óhrædd/ur við tilfinningar þínar. ( febrú-
ar ættir þú að byrja að sætta þig við þá stað-
reynd að þú ert uppfull/ur af hæfileikum sem
þú þarft að fara að virkja. Nóttin er jafnvel sá
tfmi sem þú gerir áætlanir og þú átt jafnvel
erfitt með svefn því þú hefur mjög viðkvæmar
taugar og ert ákaflega næm/ur á alla strauma
í kringum þig. Þú verður að læra að nota kraft
þinn á réttan hátt því ef þú ferð rétt að mun
hann nýtast þér vel næstu misseri.Maí mánuð-
ur á eftir að verða einkar jákvæður fýrir þig og
þú kemst í gegnum hvað sem er með þvf að
nýta orku þína rétt.
Bogamaður (22.nóv - 21 .des)
Gleymdu því ekki, að ef þú nýtur ekki stund-
arinnar gerir þú hlutina ekki eins vel og þú
ert annars fær um. Þú ert án efa þægileg/ur
í umgengni en gleymdu ekki að hreyfa þig
endrum og eins. Hafðu stjórn á lund þinni
þessa dagana. Ástarhiti birtist hér en þar ertu
á réttum miðum,en ekki leyfa afbrýðiseminni
að eiga mfnútu af tfma þfnum. Stjórnun og
völd eiga vel við þig árið framundan en þú
mátt ekki gleyma að fyrirgefa náunganum.
Gefðu þér tfma til að hinkra aðeins við og þá
sérstaklega í byrjun apríl. Bfddu eftir lausninni
með því að hafa vakandi auga og hugsa ein-
ungis um það sem skiptir máli, þá kemur hún
af sjálfu sér. Heimilislíf þitt verður hamingju-
samt og þar ræður gleði og góðvilji rfkjum.en
á sama tíma ert þú minnt/ur á að spilla ekki
ástvinum með dekri og eftirlæti. Þú ert barn
Júpíters sem segir að lukkan sé þér hliðholl
um ókomna tíð.Veittu þérfrelsi til að skapa og
hlustaðu á sálina sem reynir án efa um þessar
mundir (febrúar 2003) að ná til þfn. Þú ert fær
um að fá það sem þig vanhagar um en ekki
ýta fólki frá þér sem þú berð tilfinningar til.
Vogin (23.sept - 23.okt)
Vorið 2003 sýnir vogina á leiðinni í frí sem
tengist löngu ferðalagi þar sem hún mun ta-
kast á við skemmtilegt tækifæri og ekki síður
áhugaverða reynslu. Ef þú leitast við að ná fjár-
hagsiegu öryggi ( fari annarra ( stað þess að
fullnægja þörfum þínum mun eflaust harðna (
dalnum, því hér eru á ferðinni rangar áherslur.
Þú kýst manneskju sem lætur undan þörfum
þfnum og uppfyllir kröfur þínar, en innst inni
virðir þú fólk enn meira ef það hleypur ekki
á eftir öllum óskum þínum. Hættu að leita og
reyndu að vera róleg/ur og afslöppuð/afslapp-
aður í samskiptum við aðra árið framundan.
Ef þú bindur mjög miklar vonir við það sem
koma skal á tilfinningasviðinu ættir þú að líta
inn á við mun betur. Ef þú hefur upplifað höfn-
un á einhvern hátt árið 2002 ættir þú að efla
innri styrk þinn fremur en að virkja veikleika
þfna þetta árið. Jafnvægi rfkir milli þín og fé-
laga þinna og sú vinátta hjálpar þér að takast
á við hvaða hindranir sem kunna að verða á
vegi þínum. Allir vegir eru þér færir ef þú kær-
ir þig um.
Steingeit (22.des - 19.jan)
Steingeitin ætti að hlusta á sínar innstu þrár
varðandi framtfð sína en reyna einnig að
taka hverju sem verður á vegi hennar með
jafnaðargeði. Ekki hika við að finna þér nýjar
ögranir og efldu skopskynið sumarið 2003.
Oft verða hlutirnir ekki eins og þú sjálf/ur ósk-
ar þér, en með því að taka hlutunum eins og
þeir eru axlar þú raunverulega ábyrgð. Næstu
þrfr til sex mánuðir sem framundan eru verða
annasamir, en ánægjulegir, en ef þú ætlar þér
að ná þeim árangri sem þú sættir þig við í
starfi/námi mátt þú hvorki líta á sjálfan þig
með augum heimsins né leyfa þér að verða
háð/ur gagnrýni annarra. Þú ert fær f hverju
sem þú tekur þér fyrir hendur og býrð yfir ein-
stakri aðlögunarhæfni sem kemur þér þangað
sem þú ætlar þér hverju sinni. Ef þú ert stadd-
ur/stödd í vandræðum um þessar mundir
(febrúar 2003) skalt þú horfast í augu við
vandamálið, taka strax á málinu af krafti og
huga vel að framtfð þinni. Marsw mánuður
færir stjörnu þinni mikla gleði og
eflir vilja þinn til að vera góð(ur)
við þá sem þér þykir vænt um. Síð-
ari hluti ársins 2003 færir þér aukin
tækifæri og fjárhagslegt öryggi þitt
á eftir að batna á árinu.