Orðlaus - 01.07.2005, Blaðsíða 46

Orðlaus - 01.07.2005, Blaðsíða 46
Pláneta: Tungl Höfuðskepna: Vatn Happatölur: 4 og 6 Fólk fætt í krabbanum er heimakært og finnst gott að vera umkringt fjölskyld- unni. Það getur stundum virkað sem ófélagslynt á aðra en það er bara vegna þess að því f innst oft erfitt að koma úr skelinni og er f remur viðkvæmt. Krabb- ar hafa þó gott innsæi og eru rómantískir og góðir vinir. Heppileg störf fyrir krabba eru biaðamennska, stjórnmál, hjúkrun, eldamennska eða garðyrkja. Krabbi Ljón é&L Meyja Vog 22. júní - 23. julí 24. júlí - 23. ágúst 24. ágúst - 23. september 24. september - 23. október I vinnunni hefur allt gengið sinn vanagang, en líklegt er að það muni verða breytingar á næstunni, jafnvel meiri ábyrgð sem leggst á þig. Þú átt það til að ana áfram, sem hefur oft komið þér í koll, en núna ættir þú ekki að láta neitt hindra þig í að gera þær breyt- ingar á lífi þínu sem þig er búið að langa til að gera í langan tíma. Framtíðin mun koma þér ánægjulega á óvart en þú verður þó að minnka kröfur þínar. Það á bæði við um ást- armálin og vinnuna því annars muntu aldrei leyfa þér að njóta þess sem þú hefur hverju sinni. Þú þarft að setja þér skýr markmið yfir það hvað þú nákvæmlega vilt. Því að þú átt auð- velt með að notfæra þér aðstæður um þess- ar mundir. Þú átt það til að búast við miklu án þess að leggja mikið á þig og verður því stöðugt fyrir vonbrigðum með alla skapaða hluti. Þú ættir því að hlusta betur á ráð ann- arra í kringum þig og slaka aðeins á egóinu, hugsa meira og tala minna. Þó að það virð- ist ekkert ætla að ganga upp hjá þér í ást- armálunum núna skaltu ekki hafa áhyggj- ur af því. Ljónið þarf að gefa sér tíma eitt með sjálfu sér næstu vikur og sleppa öllum stefnumótapakkanum í bili. Ástarlíf meyjunnar hefur verið álika spenn- andi og skattstofan á góðum degi og þú ert farin/n að sætta þig við að svona verði þetta bara. Þú ákveður alltof oft að hlutirnir gangi ekki upp, eingöngu vegna þess að þú óttast höfnunina svo mikið innst inni. Hættu að reyna að sálgreina alla í kringum þig. Leyfðu fólki stundum að koma þér á óvart. I vinnunni verðurðu að hætta að fresta verk- efnunum sem þú þarft að klára. Temdu þér betra skipulag og þú átt eftir að eiga mun fleiri skemmtilegar frístundir fyrir vikið. Fjölskyldan er búin að valda þér töluverðum erfiðleikum upp á síðkastið og þú ert kom- in/n með nóg af því að þurfa alltaf að leysa úr öllum vandamálum. Núna verður þú að stappa niður fótunum og segja að nóg sé komið. Þú getur ekki borið ábyrgð á mistök- um annarra endalaust því að það er farið að hafa áhrif á sjálfsöryggi þitt og samskipti þín við vini þína. Þú ert núna á báðum átt- um með mikilvægt mál sem varðar ástarlífið hjá þér og hefur ekki fengið að hugsa nóg um. Núna er þó ekki tíminn til að vera tví- stígandi því að þú munt sjá eftir að hafa ekki tekið eindregna ákvörðun. 1 1 2 Bogmaður & Steingeit Q^^Vatnsberi 24. októbi er - 22. nóvember 23. nóvember ■ 21. desember 22. desember - 20. janúar 21. janúar -19. febrúar Sporðdrekinn er fremur árásargjarn um þessar mundir og leitar uppi vandræðin til þess eins að gera hversdagsleikan meira spennandi. Þú ættir þó að hugsa um að sýna fordæmi og láta í minni pokann í tilefn- islausum þrætum og nýta fremur tímann í að lifa lífinu. Þú munt taka mikilvæga við- skiptaákvörðun á næstu vikum sem á eftir að gjörbreyta lífi þínu til hins betra. Árang- urinn mun ekki sýna sig alveg strax og erfið- ir tímar eru framundan en þú átt ekki eftir að hafa séð eftir neinu þegar til lengri tíma er litið. Ekki hafa áhyggjur af mogundeginum, lifðu fyrir daginn í dag. Fiskurinn er búinn að vera svo upptekinn af því að skípuleggja sumarið að hann er búinn að gleyma því að njóta veðurblíðunnar og frídaganna. Sættu þig við það að þú hefur ákveðna galla og einblíndu á kostina þína, sem eru ástæða þess að þú ert umkringd/ur af frábæru fólki þessa dagana, sem og aðra. Njóttu þess að vera með vinum og fjölskyldu, taktu skamm- tímaákvarðanir, slepptu öllu stressi og komdu elskunni þinni á óvart. Þá verður júli einstaklega sólríkur mánuður. Það er sumar og nóg af skemmtilegri hlut- um að gera heldur en að standa í endalaus- um rifrildum eins og þú ert búin/n að gera síðustu daga. Þú reynir að ýta eigin vanda- málum í burtu með því að skipta þér af ann- arra manna málum og hefur komið þér í ýmsar leiðinlegar aðstæður vegna þess að undanförnu. Líttu í eigin barm og hættu að vera svona hrædd/ur við að taka ábyrgð á eigin lífi. Framkvæmdu þá hluti sem þú ert búin/n að hræðast og taktu áhættu í ástar- málunum, sem þú ert búin/n að gleyma að hafi nokkru sinni verið til. Núna er löngu verkefni að Ijúka hjá þér sem hefur tekið allan þinn tíma síðustu vikur. Þú ættir því að leyfa þér að slappa aðeins af næstu daga og skella þér í langþráð fri því farsælir tímar eru fram undan hjá þér. Hrút- urinn er mjög orkumikill núna og fullur af persónutöfrum sem hann ætti að nýta í að heilla hitt kynið. Þú verður þó að gæta þess að leika þér ekki að þeim sem heillast af þér bara af því að þú vilt skemmta þér f sumar. Vertu heiðarleg/ur og þá munu næstu vikur koma þér á óvart. Núna þarf steingeitin að hætta öllu óöryggi og sækjast af fullum krafti eftir því sem hún er búin að eltast við alltof lengi. Ekki vera hrædd/ur við að segja skoðanir þínar því það versta sem gerist er að þú finnir mann- eskju sem er ekki sammála þér, en það get- ur endað í líflegum rökræðum sem þú gætir lært mikið af. Þú dregur að þér fólk úr öll- um áttum núna og átt í nógu að snúast og líklegt er að þú lendir í aðstæðum þar sem þú munt þurfa að velja á milli tveggja ómót- stæðilegra tilboða. Taktu þér góðan tíma í að hugsa hvað það er sem þú vilt og sumarið á eftir að enda á eftirminnilegan hátt. Mikil tækifæri eru í vændum hjá nautinu sem ætti að nýta tímann í að kanna mögu- leika framtíðarinnar. Taktu eitt skref í einu og þá munu hlutirnir snúast þér í hag. Þú þarft að henda af þér þungri byrði sem hef- ur legið á þér allt, allt of lengi og hugsa meira um sjálfa/n þig. Vertu opnari og fé- lagslyndari, þú hefur gott af því að rasa að- eins út. Ekki halda aftur af þér næstu vikurn- ar. Gerðu allt sem þig hefur dreymt um að gera og þá sérðu hvað í þér býr sem er miklu meira en þú hefur haldið. Vatnsberinn er búinn að vera óvenju bjart- sýnn síðustu vikur og var það líka tími til kominn eftir fremur daufa og óspennandi vorbyrjun. Það virðist allt ganga upp hjá þér þessa dagana og þú hefur úr nógu af spenn- andi verkefnum að velja. Það eina sem er að angra þig er að þér finnst þú ekki fullnægð/ ur í ástarlífinu. Þú átt ekki að sætta þig við að vera ekki hamingjusöm/samur núna því að aðdráttarafl þitt er gífurlegt og þú get- ur heillað hvaða manneskju sem er upp úr skónum. Komdu þó hreint fram og ekki spila með fólk því það mun bara koma I bakið á þér. Tvíburinn er mjög næmur núna og skynj- ar vel þegar einhver þarf á hjálp að halda. Þú átt því eflaust eftir að lenda í mörgum trúnaðarsamtölum og samningaviðræðum á næstunni og í aðstæðum sem þér finnst fremur óþægilegar en nýttu þennan styrk þinn í að byggja sjálfa/n þig upp. Góður vin- ur þinn á eftir að hjálpa þér mikið við að koma þér á þá braut sem þig langar til að vera á og er um leið að launa þér alla hjálp- ina síðustu vikur. Líklegt er að samband ykk- ar gjörbreytist í framhaldinu og að vináttan þróist á annað stig. pT Fiskar Hrútur Naut fcfi Tvíburar 20. febrúar - 20. mars 21. mars - 20. apríl 21. apríl - 21. maí 22. maí - 21. júní

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.