Orðlaus - 01.07.2005, Blaðsíða 4

Orðlaus - 01.07.2005, Blaðsíða 4
FÓLfiO ÓFRfim^ TISKA Gallabuxnasnið að breytast! Það vita allir að vel sniðnar galla- buxur eru "must have" í fataskápn- um hjá tískumeðvituðu fólki. Nú v i r ð a s t f I e s t i r hönnuð- ir galla- buxnavera að breyta áherslun- um í galla- b u x n a - sniði fyrir haustið og virðist sem stelpu og strákasnið séu að skipta um stöðu. Áherslurnar verða því þessar: STELPUR: Gallabuxnahönnuðirnir eru nú búnir að sameina lágan streng og víðar, kassalaga skálmar. Beinar, víðar skálmar með mjög lágum rassvösum eru einkennandi í þess- um nýja stíl og þó að þessi snið hafi einkum verið gerð fyrir stráka er þetta mjög kvenlegt og sexý. MERKI SEM ERU AÐ GERA ÞETTA: Gas, Firetrap, Dickies, No- body, Gsus. STRÁKAR: Hjá strákunum eru áherslurnar líka að breytast og munu skálm- arnar mjókka niður, bæði í teygjan- legu og óteygjanlegu gallabuxna- efni. Nú eiga því buxurnar að vera með lágum streng, innvíðar og helst með litlum rassvösum að mati tískusérfræðinga. Við (slend- ingar erum auðvitað alltaf fyrstir í öllu og því ekki skrýtið að karl- menn bæjarins séu nú þegar farnir að skipta um snið langt á undan öllum hinum. MERKI SEM ERU AÐ GERA ÞETTA: Full Circle, Edwin, Diesel, Blood & Glitter, Acne Jeans. TOLVULEIKIR Contents Under Pressure: Tískukóngurinn Mark Ecko er að vinna að graffitítleik með tölvleikjaframleiðandanum The Collective. í leiknum koma fram yfir 50 vel þekktir graffarar en leik- urinn gengur út á að hjálpa Trane, sem er leikinn af rapparanum Talib Kweli, að meika það í graffitíheim- inum.Leikurinnkem- Ég* ur út í Bandaríkj- r' unum í haust. Bulletproof: Nú geta bráðum allir leikið rap- parann 50 Cent en í þessum t ö I v u I e i k ' er rappar- inn staddur á götum New York borgar þar sem hann þar þarf að öðlast virð- ingu og díla við allskonar hip hop stjörnur eins og Dr. Dre, Eminem og G-Unit krúið á meðan hann reynir að fletta ofan af samsæri. Leikurinn kemur út í nóvember. TONLIST Fjölmargar íslenskar plötur eru væntanlegar í búðirnar í sum- ar og byrjun haustsins. Má þar nefna aðra breiðskífu sveitarinnar Kimono, sem kemur út um mán- aðarmótin og hefur fengið þann hressandi titil Arctic Death Ship. Hljómsveitin hefur fengið nýjan trommara til liðs við sig frá því að platan Mineur Agressive kom út árið 2003 en það er Kjartan Bragi Bjarnarson og samkvæmt Gylfa Blöndal gítarleikara lyftir hann hljómsveitinni yfir á töluvert hærra plan. „Arctic Death Ship er miklu, miklu betri plata en sú síð- asta, bandið er orðið þéttara og þroskaðra og farið að móta sínar pælingar í skírari jarðveg" segir Gylfi. „Hún er ekki eins post-rokk- uð og fyrsta platan, heldur hress- ari og líflegri". Breiðskífa með pönksveitinni Rass er að týnast í búðir og fékk hún titilinn Andstaða. Þarna eru á ferðinni nokkrir af fyrrum með- limum HAM, þeir Óttár Proppé, Arnar Ómarsson og Björn Blöndal en auk þeirra er Toggi á gítar og Guðni úr Ensími á bassa. Um er að ræða pönkplötu af gamla skól- anum með einföldum og hressum pönktextum og undirspili. Diskórokkararnir í Jeff Who? senda frá sér plötuna Death Before Disco í lok ágúst og eftir fyrstu hlustun sagði Haukur Magnússon, blaðamaður Orðlaus, að það væri auðheyrt að hún ætti eftir að vera mikill fengur fyrir partý-og tónlist- arþyrsta Islendinga. Platan Dr. Phil með hljómsveit- inni Dr. Spock kemur út um eða eftir helgi og er þar um að ræða spennutreyjurokk í hæsta gæða- flokki. Platan var öll tekin upp live í stúdíó Sýrlandi á 20 klukkustund- um þar sem meðlimirnir glömruðu á hljóðfærin með viskí um hönd. Ný plata með Sigur rós kemur væntanlega út með haustinu en platan hefur ekki verið titluð enn- þá. Búið er að hljóðrita hana og senda út í framleiðslu. Að lokum er væntanleg plata frá Ghostigital þeirra Bibba Curver og Einars Arnars og heyrst hefur að þar sé alveg magnað verk á ferð- inni. SJONVARP Bachelor þættirnir hafa slegið það rækilega í gegn hjá íslendingum að nú hefur Skjár einn og Sagafilm ákveðið að færa þáttinn í íslensk- an búning. Einhleypir íslendingar geta því settsig í stellingar því leit- in er hafin af 25 konum og einum eftirsóttum piparsveini til að taka þátt í íslenska Bachelornum sem gæti endað með ást og rómantík, bónorði og demantshring. Hægt er að skrá sig á heimasíðu SKJA- SEINS eða sækja skráningareyðu- blöð í Símabúðirnar vítt og breytt um landið. Þáttastjórnandinn er leikarinn Jón Ingi Hákonarson. ÞJOÐHATIÐ I EYJUM óK'm í Versl- u n a r - manna- helgina og Þjóð- h á t í ð ve rð u r ekki af verriend- anum í ár. Þar munu I svörtum Fötum og Skítamórall halda uppi stuðinu og fulltaföðrumflottumogfjölbreytt- um hljómsveitum leggja leið sína til Eyja til þess að taka þátt í þess- ari ógleymanlegu tónleikahelgi. Á setningardegi hátíðarinnar, föstu- dag, verður kvöldvaka og brenna á Fjósakletti. Á laugardagskvöldið verða meðal annars tónleikar með Grafík og partýsveitin Trabant spilar strax á eftir flugeldasýning- una. Á sunnudag er svo auðvitað hinn ógleymanlegi brekkusöngur og tónleikar með Bubba Mortens. Skímó og I svörtum fötum sjá svo um að klára ballið. Það verða fáir sviknir af þessari helgi sem nýtur meiri vinsælda hjá landanum með hverju árinu. ÞAÐ SEM GERÐIST EN ENGINN VISSI! ”STJÖRNURNAR SEM SLUPPU ... Það er ekki á hverjum degi sem að stórstjörnur koma til íslands og hvað þá að þær komist upp með að vera hér án þess að slúðurpressan nái þeim. Það hafa þó verið hér stjörnur sem slúðurblöðin hafa ekki náð að hafa , sem betur fer segir Orðlaus því við viljum jú ekki hræða fólk af landi brott með fjölmiðlaumfjöllunum á meðan þau eru í fríi og sverta þannig orðspor íslendinga. Hér eru nokkrar heimsfrægar stjörnur sem komið hafa til landsins og farið án þess að þeir sem eru alitaf fyrstir með fréttirnar nái að vera með fréttirnar. Reene Zellweger 1 Nikole Kidman : Brad Pitt og Jennifer Aniston Kom til landsins nú um áramótin með íslenskum vini. Hún mun hafa látið lítið fara fyrir sér en lét meðal annars sjá sig á áramótafagnaði Priksins Hún var stödd hér á iandi ásamt kærastanum sínum ekki allsfyrir löngu. Þau borð- uðu meðal annars á Rauðará og fóru í jöklaferð. Þau ætl- uðu líka að skella sér í Bláa Lónið en breyttu plönum sínum á seinustu stundu og hoppuð beint upp í flugvél. Þessi gróu saga hefur geng- ið um bæinn lengi en þau áttu að hafa eytt heilli viku á landinu fyrir um tveimur ár- • um síðar. Þegar við slóum á þráðinn til hótelsins sem þau áttu að hafa gist á var fátt um svör enda er það stefna hótelsins að gefa ekki upp upplýsingar um gesti(húrra fyrir því). Talsmaðurinn sagð- ist þó hafa heyrt þetta áður en kannaðist alls ekki við að hafa séð Brad Pitt. Hann sagðist þó hafa fengið til sin stúlkur sem líkjast Jennifer á hóteliðtil sín.

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.