Orðlaus - 01.07.2005, Blaðsíða 8
Mafían á rætur að rekja til Sikileyjar og i byrjun síðustu aldar
náði hún yfir lítinn hóp af glæpamönnum sem stóðu í ýmiss
konar braski og ólöglegri starfsemi. Hóparnirfóru stækkandi
og urðu með öldunum svo valdamiklir á Ítalíu að þeir stjórn-
uðu skuggalegustu afkimum samfélagsins á bak við tjöldin.
Á tímum fasismans þar í iandi var allt lagt í að berjast gegn
mafíósunum og skipulagðri glæpastarfsemi þeirra og margir
lentu í fangelsi eða flúðu úr landi. Þeir settust þá að í Banda-
ríkjunum þar sem þeir héldu áfram fyrri iðju og ítalsk-banda-
ríska mafían varð brátt ein öflugasta glæpaklíka þar í landi
á 20 öldinni. Hún blómstraði, sérstaklega á bannárunum þar
sem mafíósarnir sáu um ólöglega áfengissölu, fjárhættuspila-
starfsemi og vændissölu. Sökum ótrúlegs vægðarleysis hafa
mafíósarnir verið vinsælt umræðuefni og margir hverjir orðið
heimsfrægir í gegnum kvikmyndaiðnaðinn sem virðist aldrei
fá nóg af því að segja sögur þeirra.
Al Capone
...ættu allir að þekkja, enda gerði
Robert De Niro hann ódauðlegan í
mynd Brians De Palma, The Untou-
chables. Capone var alræmdur á
þriðja og fjórða áratug síðustu
aldar. Hann byrjaði að vinna sem
útkastari fyrir Frankie Yale í Brook-
lyn en fluttist þaðan til Chicago
og stóð í ýmsu braski fyrir Johnny
Torrio, svo sem að sjá um vændi og
fjárhættuspilastarfsemi og leyni-
lega vínsölu. Fljótlega tók hann
yfir starfseminni og stjórnaði göt-
um borgarinnar harðri hendi, hót-
aði vitnum, drap keppinautana
og mútaði ríkisstarfsmönnum.
Enginn þorði að standa uppi í hár-
inu á honum, jafnvel þó að flest-
ir tengdu hann við hið alræmda
klíkumorð, St. Valentine's Mass-
acre, þarsemsjömannsvoruskotn-
ir til bana en enginn ákærður fyrir.
Þetta blóðbað átti eftir að gera
Capone frægan langt eftir dauða
hans en það var ekki fyrr en Elli-
ot Ness, sem hafði eytt árum í að
negla Capone, að mafíósinn lenti
í fangelsi fyrir skattsvik. í fyrstu
stjórnaði hann starfseminni bak
við rimlana þar til hann var færður
í Alcatraz-fangelsið. Veldið fór að
sölna og Capone dó stuttu eftir að
hann kom úr fangelsinu.
Sam Giancana
...var yfirmaður mafíunnar í Chic-
ago frá árunum 1957-1966. Hann
var meðlimur götuklíkunnar The
42s í Chicago á þriðja áratugnum
og fékk fljótt mikla viðurkenningu
fyrir að vera góður flóttabílstjóri
og vægðarlaus morðingi, komst í
kynni við Al Capone og fékk meiri
ábyrgðarhlutverk. Giancana var
handtekinn rúmlega 70 sinnum á
ferlinum en lenti ekki nema tvisvar
í fangelsi, enda í góðu sambandi
við JFK Bandaríkjaforseta sem
hann hafði aðstoðað í kosningun-
um. Giancana hefur verið tengdur
við alls kyns valdamenn Bandaríkj-
anna. Ein sagan segir að CIA hafi
leitað til hans með áform um að
drepa Fidel Castro og ná Kúbu í
Svínaflóaárásinni. Önnur að Gianc-
ana hafi átt þátt í dauða Marilyn
Monroe til þess að reyna að koma
sökinni á John og Robert Kennedy
vegna þess hve harðir þeir bræður
voru í að vinna gegn skipulögðum
glæpasamtökum. Giancana var
bæði spilltur og gráðugur og þeir
tveir lestir urðu honum að lokum
aðfalli. Hannflúði í útlegðtil Mexí-
kóárið 1966eftiraðhafa veriðrek-
inn úr mafíunni en var síðan send-
ur til baka til Bandaríkjanna og
drepinn í kjallara heimilis síns 19.
júní 1975, rétt áður en hann átti
að koma fram fyrir þingið og tala
um tengsl mafíunnar við CIA.
Carlo Gambino
....var einn áhrifamesti mafíufor-
ingi Bandarikjanna fyrr og síðar.
Hann komtil landsinssem ólögleg-
ur innflytjandi frá Ítalíu og vann
sem áfengissmyglari og bílstjóri
fyrir mismunandi klíkur á bann-
árunum. Gambino hafði ótrúlegt
viðskiptavit og kunni að koma sér
í kynni við réttu mennina. Hann
gekk til liðs við Lucky Luciano,
Meyer Lansky og Frank Costello,
og saman losuðu þeir sig við sam-
keppnisaðilann Vito Genovese.
Gambino tók þá völdin í New York
og stjórnaði götum borgarinnar í
fjölda ára, opnaði bari og dreifði
áfengi. Sagt hefur verið að hann
hafi mútað tveimur þingmönnum
til þess að fá að vera áfram í land-
inu og því reyndist árangurslaust
að senda hann til baka til Ítalíu.
Gambino dó síðan úr hjartaáfalli.
iohn Gotti
...var meðlimur í Gambino ma-
fíósafjölskyldunni og varð fljótt
yfirmaður eins valdamesta hóps-
ins innan hennar. Hann varð hálf-
gerð stjarna á níunda áratugnum
og túristar kepptust um að fá að
taka myndir af sér með honum. Al-
menningur var þó ekki sá eini sem
hafði áhuga á Gotti því FBl fylgd-
ist grannt með hverju skrefi sem
hanntók.Gotti varaðlokum hand-
tekinn eftir að félagi hans vitnaði
gegn honum og eyddi síðustu dög-
um sínum í fangelsi þar til hann dó
úr krabbameini.
Benjamin Síegei
...betur þekktursem Bugsy, fædd-
ist inn í fátæka rússneska gyðinga-
fjölskyldu í Brooklyn. Hann gekk
til liðs við Meyer Lansky og Lucky
Luciano og vann sem leynimorð-
ingi fyrir hann í upphafi. Bugsy Si-
egel komst síðar inn í innsta hring
Hollywood og átti hóp af hjákon-
um. Hann fílaði glamúrinn og
byggði að lokum risa spilavíti í Las
Vegas og fékk ýmsa mafíuforingja
til að fjárfesta í því með sér. Verk-
efnið gekk þó ekki nógu vel og
fjárfestarnir fóru að gruna hann
um græsku. Bugsy var drepinn á
heimili sínu í Beverly Hills.
SHJ
IMokkrar góðar
mafíumyndir
The Godfather (1972-1990)
Þríleikurinn í leikstjórn Francis
Ford Coppola er löngu orðinn
klassíker í kvikmyndasögunni þar
sem Corleone-glæpafjölskyldan
er samblanda úr nokkrum raun-
verulegum mafíufjölskyldum.
Goodfellas (1990) í leikstjóm
Martins Scorsese er án efa ein
besta mafíumynd kvikmyndarsög-
urnnar, með Robert De Niro, Ray Li-
otta, Joe Pesci, Lorraine Bracco og
Samuel L. Jackson meðal leikara.
................................-t
Donnie Brasco (1997) er
byggð á sannsögulegum atburð-
um og fjallar um starfmann
FBI sem reynir að uppræta
mafíuna. í aðalhlutverkum
eru Johnny Depp og Al Pacino
en Mike Newell leikstýrir.
The Untouchables (1987)
með Robert De Niro í hlutverki Al
Capone og Kevin Costner sem Eliot
Ness. Brian De Palma leikstýrir.
A Bronx Tale (1993) í leik-
stjóm Roberts De Niro er saga
um föður sem berst við mafiu-
foringja í hverfinu sínu, Bronx.
Analyze This (1999)
og Analyze That (2002) eru
gamanmyndir um þjáðan mafíu-
foringja og sálfræðinginn hans
með þeim Robert De Niro og
Billy Christal í aðalhlutverkum.
The Whole Nine Yards
(2000) og The Whole Ten
Yards(2004) eru gamanmynd-
ir með Bruce Willis og Matthew
Perry í leikstjórn Jonathans Lynn.
Scarface (1983) skartar Al Pac-
ino í hlutverki Antonio Tony Mont-
ana í leikstjórn Brians De Palma.
Bugsy (1991) fjallar um líf
mafíósans Bugsy Siegel sem
er leikinn af Warren Beatty.
Mobsters (1991) segir frá ma-
fíósunum Lucky Luciano, Lansky,
Frank Costello og Bugsy Siegel
með Christian Slater, Patrick
Dempsey, Richard Grieco og Cost-
as Mandylor í aðalhlutverkum.
ER VERIÐ AÐ LJÚGA AÐ ÞÉR?
8
Það hafa allir logið og við
mannfólkið eigum örugglega
aldrei eftir að hætta því. Flest-
ir segja sína fyrstu lygi þegar
þeir eru fjögurra ára en þá
átta börn sig á mætti tungu-
málsins. Fólk byrjar þó ekki að
Ijúga til að koma sér út úr að-
stæðum fyrr en um sex ára ald-
ur og flestir halda því áfram
alveg þangað til að komið er í
gröfina.
Það er ekki til nein leið til að vera
100% viss um hvort verið sé að
Ijúga að þér en það eru ýmsir þætt-
ir sem hægt er að skoða og komast
þannig nær sannleikanum.
Fólk sem forðast augnsam-
band: Venjulega horfa þeir sem
þú talar við í augun á þér a.m.k.
hálft samtalið. Ef þú tekur eftir því
að þeir líta undan eða niður á með-
an á vissum parti af samræðunum
stendur getur vel verið að það sé
verið að Ijúga að þér.
Breytingar á röddini: Þegar
röddin breytist eða er óstöðug get-
ur það táknað lygi. Eins getur ver-
ið vísbending þegar fólk ummar
eða gefur frá sér mikið andvarp.
Líkamstjáning: Að snúa líkam-
anum frá þeim sem talað er við,
andlitið eða munnurinn hulinn og
miklar handa- og fótahreyfingar
geta einnig verið merki um blekk-
ingu.
Talað í þversögn: Þegar við-
mælandi þinn fer að tala í þver-
sögn við sjálfan sig ætti það að
vekja hjá þér efasemdir.
Með þessar upplýsingar á bak
við eyrað ættir þú að geta ver-
ið nær sannleikanum eða orð-
ið betri lygari. Þó svo að þær
gildi alls ekki um alla getur ver-
ið gott að skoða þessa þætti
þegar þú telur að einhver sé
að Ijúga að þér.