Orðlaus - 01.12.2005, Blaðsíða 34

Orðlaus - 01.12.2005, Blaðsíða 34
Byrjunargræjur fyrir verðandi Guggu Föt Leðurstígvél Diesel gallabuxur Þröngur fleginn toppur Stórt belti með semalíusteinum eða öðru skrauti Allskonar glingur úr Kiss eða lce in a bucket Stutt þröng úlpa með loðhettu Smink Brúnkukrem, brúnkukrem og aftur brúnkukrem Meik Gloss, gloss, gloss og meira gloss Highlight á kinnbeinin Smokey förðun í kringum aug- un Dior show maskari til að ná fram Völu Matt augnahárum Tónlist RogB (en ekki hvað?) Maria Carey Justin Timberlake 50 cent Kiss FM FM 95,7 ...og allt sem er hægt að dilla síl- óinu og rassinum við. Bíómyndir Allt með Jennifer Aniston Legally Blond Einhver soft klámmynd á DVD Clueless Kill Bill (af því það er töff að segj- ast fíla hana) Allar rómantískar gamanmyndir Note Book (út af Ryan Gosling) ...að lokum Bridget Jones Bækur Eh? Húsgögn Kósí sófi Glerborð Stórt sjónvarp Amerískt rúm Ikea, Ikea, Ikea Bíll Yaris eða Polo Dót Egg Lappi l-pod Gemsi fullur af drasli Ef þú svarar öllum þessum spurningum játandi þá eru 100% líkur á því að þú sért svokölluð Gugga, kvenhnakki, diskógella eða afsprengi klámkynslóðarinnar, sem er nýjasta heitið yfir blessaðar Guggurnar. Þróun Guggu Guggan er vissulega kvenhnakki með meiru. Hennar blómatími er á árunum milli 18 og 25 en eftir það dregur hún sig vanalega í hlé eða fer að einbeita sér að öðru en djammi. Stundum kemur það þó fyrir að Guggan heldur áfram í djamminu og þá bíða hennar vanalega annaðhvort fitusog, meðferðir og margar misheppn- aðar sambúðir eða flutningur til útlanda sem endar á því að hún kemur heim tíu árum síðar með próf í förðunarfræðum upp á vas- ann og sögur af poppurunum sem urðu vinir hennar. Ómenntuð Þar sem karlafar og djamm eiga hug Guggunnar allan, þá hefur hún ekki mikinn tíma til að mennta sig. Viðhald brúnku, eða "tans" eins og þær kalla það, krefst út- gjalda og það sama má segja um einkaþjálfunina, Diesel gallabux- urnar, gelneglurnar, strípurnar og allt það. Guggan eeeellskkarrr líka útlönd og er vanalega með plön um ferðalög einhversstaðar á listanum. „Löndin" sem verða fyrir valinu eru London, NewYork, LA og einhverjar sólarstrendur á Spáni. Working girl Allar Guggur dreymir um að verða annaðhvort verlsunarstjórar í tískuvöruverslunum, flugfreyjur eða förðunardömur með karríer. Fæstar komast samt í þessi störf þar sem þau eru náttúrlega ekki á hverju strái. Þá láta þær sér duga önnur djobb sem borga vel og eru tiltölulega auðveld. Guggur vinna til dæmis aldrei á elliheimilum eða leikskólum. Djísuss nei oj, skeina rassal! Frekar vinna þær á síma einhversstaðar, hjá tryggingafyrir- tækjum eða aðrar hreinlegar vinn- ur sem bjóða upp á að hægt sé að snyrta gelneglurnar á meðan. Faðernismál Margar Guggur eru einstæðar mæður. Þá gera þær yfirleitt sitt besta til að sinna barninu en yfir- leitt er það samt ansi mikið fyrir. Ef pabbinn er búinn að viðurkenna faðernið má koma því fyrir hjá hon- um, eða ömmu og afa eða öðrum ættingjum. Guggur borga ekki fyr- ir pössun af því þær eiga ekki fyrir henni. Gelneglur kosta. Uppeldisaðferðir Guggunnar eru grundvallaðar á sjónvarpi, tölvu- leikjum og pasta með tómatsósu. Svo lengi sem unginn er ekki með of mikið vesen þá dugar það sem góð uppeldisaðferð að mati Gug- gunnar. Framhaldið... Eins og fyrr detta flestar Guggur úr Guggugírnum upp úr 25 ára. Þá fer þeim að líða meira eins og Bridget Jones en Paris Hilton. Það fer að vanta eitthvað meira í lífið og brúðkaupsþátturinn JÁ fer að tala meira til þeirra. Kannski að það sé kominn tími á að slappa að- eins af? Fókusera meira á sófann, kæró og kósí kvöld með kertum, kóki og kartöfluflögum. Fitna svo, grennast, fitna, grennast, verða ólétt, fitna, grennast, fara í átak, fara í Vikuna, verða fitt, giftast, hætta í Ijósum, fara í skóla... The End Hefurðu farið í þrísom? Setið fyrir í BB? Ertu með naflalokk? Elllskaru Friends og Sex and the City og Bachelor? Drekkurðu marga lítra af Diet Coke á dag? Reykirðu Salem Lights? Ferðu í plokkun til Birtu? Æfirðu í World Class? Hefurðu keppt í Fit- ness? Farið í fegurðarsamkeppni? Ertu með gelneglur? Ertu stundum með 15 glugga opna á msn? Djammarðu til að lifa, li- firðu til að djamma eða bæði? Eru feministar Ijótir og kvenrétt- indi fyrir feitar konur? Ertu fastakúnni á Smart? Oliver? Rex? TJÉLLINGAR AF KLÁMKYNSLÓD Djísöss kræst, ógisslega ertu brúúúunnnn... Geeðððveiiikkttt Texti eftir Margréti Hugrúnu Gústavsdóttur Ertu brún? Ferðu ekki út fyrir hússins dyr án þess að mála þig? - Ertu með heillitað hár? Áttu sléttujárn? Ertu með sílikon eða planarðu að fara í aðgerð? Er skylda að horfa á Americas Next Top Model? Finnst þér Paris Hilton æðisleg? Fór Silvía Nótt í taugarnar á þér fyrst þegar hún kom á skjáinn en dýrkaru hana núna? I
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60

x

Orðlaus

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Orðlaus
https://timarit.is/publication/942

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.